„Nú verða allir að líta í eigin barm“ Árni Sæberg skrifar 23. júlí 2026 11:31 Vilhjálmur Birgisson er formaður Starfsgreinasambandsins. vísir/Vilhelm Formaður Starfsgreinasambandsins segir baráttuna við verðbólguna vera á kolrangri leið, enda haldi verðbólga áfram að aukast. 100 prósent líkur séu á að forsendur kjarasamninga muni bresta í ágústmælingu verðbólgu.
Hagstofan tilkynnti í morgun að verðbólga í júlí hafi mælst 5,3 prósent, samanborið við 5,2 prósent í júní. „Það er alveg greinilegt að við erum á kolrangri leið, það þarf ekkert að fara í grafgötur með það. Núna heldur hún áfram að hækka og við færumst alltaf lengra frá því að forsenduákvæði kjarasamninga virkist ekki. Það er ekki nema ein mæling eftir,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, í samtali við Vísi í tilefni af verðbólgumælingunni. Kjarasamningar undir í ágúst Mælist verðbólga yfir 4,7 prósentum í næstu verðbólgumælingu virkjast forsenduákvæði lífskjarasamninganna svokölluðu, sem undirritaðir voru árið 2024. Það þýðir að verkalýðshreyfingunni verður heimilt að slíta samningunum í lok september. Getum við ekki afskrifað það að kjarasamningar haldi? „Jú. Ég sagði í síðasta mánuði að það væru 99,99 prósent líkur á því að forsendur myndu ekki halda. Ég held að það sé algjörlega orðið ljóst að það sé óhætt að segja að það séu 100 prósent líkur á því núna vegna þess að verðbólgan í ágúst í fyrra var mínus 0,15 prósent. Það er sá hluti sem mun detta út næst, þannig að það liggur algjörlega fyrir að forsendur kjarasamninga eru brostnar og það er miður. Það virðist lítið vera að gera til þess að reyna að snúa þessu við, því miður. Þannig að það verður bara að koma í ljós hvernig við munum bregðast við þegar niðurstaðan liggur fyrir að forsendur séu farnar.“ Of seint í rassinn gripið Greint var frá því í maí að fulltrúar ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur, Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins hefðu hafið þríhliða samtal með það að markmiði að forsendur kjarasamninga á almennum vinnumarkaði héldu í haust. Vilhjálmur segist taka virkan þátt í því samtali enda séu það stéttarfélögin sem gerðu lífskjarasamningana sem fara með umboðið varðandi það hvort þeim verði sagt upp og hvernig yrði brugðist við því í framhaldinu. „Það er ekki Alþýðusambandið sem fer með samningsumboðið fyrir aðildarfélögin heldur eru það stéttarfélögin sjálf og í þessu tilfelli eru það Starfsgreinasambandið, Efling og Samiðn sem sömdu og ruddu brautina árið 2024 og settu þetta forsenduákvæði.“ Í samtalinu hingað til hafi farið fram einhvers konar vinna og hugmyndir komið fram um hvernig væri hægt að vinna bug á verðbólgunni, með það að markmiði að koma í veg fyrir að samningar bresti. „Það ferli fór bara af stað allt, allt of seint. Enda held ég að það sjáist algjörlega í þessum tölum að það ferli fór af stað of seint. Það liggur fyrir að forsendur muni bresta og það mun bara koma í hlut Starfsgreinasambandsins, Eflingar og Samiðnar hvernig þau munu bregðast við hvað sinn kjarasamning varðar.“ Vandamál í túnfætinum en athyglin á öðru Að hans mati hefði þurft að hefja samtalið ekki síðar en í febrúar síðastliðnum og hann hafi haft orð á því á þeim tíma að hægt hefði verið að stuðla að því að samningar myndu halda með því að fá fyrirtæki til þess að skuldbinda sig til þess að halda aftur af verðlagi. Fá ríkið til að skuldbinda sig til þess að hækka ekki hér gjaldskrár og skatta sem hefðu áhrif á vísitöluna og það sama með sveitarfélögin. „Því miður var ekki ráðist í þetta nægilega snemma og árangurinn náttúrulega bara blasir við okkur. Síðan verða menn uppteknir af því að horfa fram hjá vandamálunum og núna mun allur fókus fara á þessa þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst. Sem er dálítið vont þegar við erum með svona alvarlega hluti í túnfætinum hjá okkur, ef að þannig má að orði komast.“ Ótímabært að segja til um það hvort ákvæðið verði virkjað Nú er svo gott sem öruggt að verðbólga verði yfir þeim 4,7 prósentum sem mælt er fyrir um í forsenduákvæði kjarasamninga. Það þýðir þó ekki að kjarasamningar muni sjálfkrafa slitna. Til þess þurfa verkalýðsfélögin að virkja ákvæðið. Sérðu einhvern möguleika á því að það verði ekki nýtt? „Það er eiginlega í raun og veru ótímabært að svara því. Það mun reyna dálítið mikið á Samtök atvinnulífsins. Ég vil bara minna á það að það var íslenskt verkafólk sem var tilbúið hér í apríl 2024 til að semja með hófstilltum hætti, taka áhættu gegn loforði um að allir myndu róa í sömu átt, ríkið myndi halda aftur af verðlagi, sveitarfélög myndu halda aftur af gjaldskrárhækkunum og verslun og þjónusta myndu stuðla hér að stöðugleika í verðlagi. Því miður hafa allir þessir aðilar svikið sitt og það verður íslenskt verkafólk sem síðan mun taka ákvörðun um það hvað það mun raunverulega gera í haust og hvað þarf að koma til, til að íslenskt verkafólk verði tilbúið til þess að framlengja samninginn út samningstímann.“ Allir þurfi að líta í eigin barm Hagstofan birtir niðurstöður ágústmælingar verðbólgu þann 27. ágúst og Vilhjálmur segir að tíminn einn verði að leiða í ljós hvað verkalýðshreyfingin gerir í framhaldinu. Hann myndi skjóta á að það fari að skýrast um miðjan september en það verði að liggja fyrir í lok sama mánaðar. Hver niðurstaðan verði velti á ýmsu. „Ég er hræddur um að stjórnvöld þurfi að hysja upp um sig brækurnar. Mér finnst að sveitarfélög þurfi að gera það líka og Samtök atvinnulífsins. Nú verða allir að líta í eigin barm og spyrja sjálfan sig að því hvernig má það vera að þetta fór með þessum hætti.“
Stéttarfélög Vinnumarkaður Verðlag Efnahagsmál Atvinnurekendur Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Neytendur Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Viðskipti innlent Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Viðskipti innlent Gigg-hagkerfið: Iðnaðarmenn sannreyndir og yfir þúsund í hundagöngu Atvinnulíf Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Viðskipti innlent Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Viðskipti erlent Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Viðskipti innlent Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Viðskipti innlent Uppfærsla setti strik í hleðslureikninginn Neytendur Greiðsluáskorun Samstarf Fleiri fréttir Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Frá Wise til VÍS Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Tveir nýir sérfræðingar til Jónsbókar Tæplega 50 milljarða halli hins opinbera á öðrum fjórðungi Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Gengið aldrei verið lægra Hafa samband við farþega Flugvirkjar fara í verkfall Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Spurðu hvað fyrirtæki ætluðu að gera og hafa þegar fengið svar Ráðinn fjármálastjóri Háskólans á Bifröst Bein útsending: Hærri skattar, töpuð tækifæri? Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Sjá meira