Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 23. júlí 2026 12:00 Hildur Björnsdóttir borgarstjóri hyggst kynna aðgerðir næstu daga vegna innbrotahrinunnar. Vel hefur tekist að bregðast við fjölda innbrota í miðborg Reykjavíkur í þessum mánuði að sögn lögreglu en þrír hafa verið handteknir vegna innbrotanna. Borgarstjóri fundaði í gær með lögreglu vegna málsins auk íbúasamtökum og hyggst kynna aðgerðir á næstu dögum.
Greint var frá því í síðustu viku að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafi fengið tugi tilkynninga um innbrot á heimili og í fyrirtæki í miðborg Reykjavíkur frá mánaðarmótum júní júlí. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hafa nú þrír verið handteknir í tengslum við innbrotin en ekki er um skipulagða glæpastarfsemi að ræða heldur tilviljunarkennd innbrot á heimili. Tveir af þremur sitja nú í fangelsi vegna eldri dóma en þriðji maðurinn er enn í gæsluvarðhaldi vegna aðildar að stórum hluta innbrotanna. Lögregla segir nú sextíu innbrot skráð á stöð 1 sem sinnir Vesturbæ, Miðborg, Hlíðum, Laugardal, Háaleiti og Seltjarnarnesi en þau voru 48 í síðustu viku og telur lögregla vel hafa tekist að stemma stigu við fjölda þeirra. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri boðaði til samráðsfundar í vikunni vegna innbrotanna með lögreglu, íbúasamtökum og fyrirtækjaeigendum í miðbænum. „Við ræddum svolítið stöðuna, vorum að meta framhaldið og hvaða aðgerðir Reykjavíkurborg getur gripið til og hvað það er sem lögregla getur gert. Við munum kynna aðgerðir núna á næstu dögum sem snúa aðallega að því að styðja við íbúa og fyrirtæki með fræðslu og aðgerðum til þess að tryggja öryggi.“ Meðal annars hafi verið rætt um að auka myndavélaeftirlit í miðborginni. „Af því við viljum auðvitað búa hér í öryggri borg en mér finnst þó mikilvægt að taka fram að það er ekkert í gögnum lögreglunnar sem bendir til þess að fólk þurfi að vera hrætt eða að hér sé eitthvað hættulegt fólk á ferli. Þetta er í flestum tilfellum einstaklingar sem hafa kannski villst af leið í lífinu og eru í svona tækifærisinnbrotum frekar en einhverri skipulagðri brotastarfsemi það er meirihluti þessara innbrota sem eru skráð.“ Mikil umræða um möguleg innbrot og ábendingar á íbúahópum á samfélagsmiðlum séu af hinu góða. „Það er bara gott að hafa vakandi auga fyrir þessu og að þeir sem eru að reka fyrirtæki hugi að sínum öryggisatriðum og að við sem eigum heimili hugum líka að því hvernig fyrirbyggjum við innbrot heima hjá okkur og það eru slíkar aðgerðir sem við ætlum okkur að fara í til að styðja við íbúa og fyrirtækjarekendur hér í Reykjavík.“
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Fleiri fréttir Fjórtán fá styrk frá Eyjólfi Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Sjá meira