Viðskipti innlent

Fyrr­verandi for­stjóri Play í landeldið

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Einar Örn Ólafsson var síðast forstjóri Play.
Einar Örn Ólafsson var síðast forstjóri Play. Aðsend

Eggert Þór Kristófersson hefur látið af störfum sem forstjóri First Water og í hans stað hefur Einar Örn Ólafsson, fyrrverandi forstjóri Play, verið ráðinn. 

„Stjórn First Water og Eggert Þór Kristófersson, forstjóri félagsins, hafa komist að samkomulagi um að Eggert láti af störfum sem forstjóri félagsins,“ segir í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.

Eggert Þór hefur starfað sem forstjóri undanfarin fjögur ár og unnið að uppbyggingu First Water í Þorlákshöfn og náð mikilvægum áföngum í framleiðslu og sölu á landeldislaxi. Varð fyrirtækið undir hans stjórn eitt af fyrstu landeldisfyrirtækjum heims til að selja landeldislax sem vegur fimm kíló eða meira.

„Þetta hefur verið krefjandi en afar skemmtilegur tími. Á örfáum árum hefur okkur tekist að byggja upp öfluga starfsemi og framleiða hágæða landeldislax sem hefur hlotið afar góðar viðtökur á erlendum mörkuðum,“ er haft eftir Eggerti Þór í tilkynningunni.

Þá er einnig haft eftir Orra Haukssyni stjórnarformanni að Eggert skilji við félagið á traustum grunni. Stjórn félagsins hefur ráðið Einar Örn sem nýjan forstjóra. Einar hafi áratuga reynslu af bankastarfsemi, fjármögnun, fjárfestingum og fyrirtækjarekstri en hann starfaði síðast sem framkvæmdastjóri flugfélagsins Play.

„Ég hlakka til að byggja áfram á þeim sterka grunni sem hefur verið lagður og leiða félagið inn í næsta áfanga vaxtar,“ er haft eftir Einari.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×