„Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Árni Sæberg skrifar 19. ágúst 2026 13:02 Már Wolfgang Mixa, dósent við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. vísir/egill Prófessor í viðskiptafræði segir að lántaki sem tók fimmtíu milljóna króna óverðtryggt lán til 20 ára í heimsfaraldri kórónuveiru muni greiða 120 þúsund krónum meira á ári af láninu eftir vaxtahækkun í morgun. Þá sé það bull og vitleysa að hækkunin hafi engin áhrif á verðtryggð lán.
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti um 0,25 prósentustig. Þeir eru nú 8 prósent. Fjórir nefndarmenn studdu þessa ákvörðun en einn vildi halda vöxtum óbreyttum. Már Wolfgang Mixa, prófessor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, ræddi ákvörðun peningastefnunefndar í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Bull og vitleysa að hækkun bíti ekki á verðtryggð lán Hann segist hafa tekið saman áhrif vaxtahækkuninnar á fólk sem tók húsnæðislán á Covid-tímabilinu, þegar margir hafi tekið lán í trausti þess að vextir myndu haldast lágir til lengri tíma. „Ef þú ert með 50 milljóna óverðtryggt lán til 20 ára þá hækkar árleg greiðslubyrði um um það bil 120 þúsund krónur. Oft er sagt að vextirnir bíti ekki á verðtryggð lán, það er bull og vitleysa. Greiðslubyrðin hækkar ekki jafnmikið en hún hækkar um 80 þúsund krónur. Þetta munar bara ansi miklu fyrir marga, þessi litla 25 punkta hækkun. Auðvitað að því gefnu að þessir 25 punktar fari út í hagkerfið.“ Allir búnir að verðleggja miðað við hækkun Már segist nokkuð viss um að ákvörðun peningastefnunefndar hafi valdið ansi mörgum vonbrigðum. Ákvörðunin þurfi þó ekki að koma neinum á óvart, enda hafi nánast allir verið búnir að verðleggja miðað við hana á skuldabréfamarkaði. Hann bendir þó á óvænt aukning verðbólgu sé að þremur fjórðu hlutum til komin vegna verðhækkana erlendis, samkvæmt nýrri skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Þannig hafi lítill hagvöxtur verið á íslandi undanfarið, nánast núll prósent, og atvinnuleysi um fimm prósent. Hristir höfuðið yfir gjaldskrárhækkunum Þá segist hann hrista höfuðið yfir því að ríki og sveitarfélög hafi hækkað gjaldskrár umfram verðbólgumarkmið og þannig stuðlað að aukningu verðbólgu, líkt og seðlabankastjóri kom inn á í morgun. Hann blási á þau rök að til langs tíma geti gjaldskrárhækkanir dregið úr verðbólgu til lengri tíma, með því að draga úr neyslu og bæta afkomu hins opinbera. Loks segist hann hafa athugað hvar í heiminum hæstu raunstýrivextirnir séu miðað við daginn í dag. „Við erum að sjálfsögðu efst þar á lista. Við erum núna með álag upp á 2,7 prósent eftir þessa hækkun og Norðmenn eru með 1,5 prósent og Bretland með rúmlega 1 prósent.“
Verðlag Efnahagsmál Seðlabankinn Lánamál Íslenska krónan Bítið Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Sjá meira