Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Áróra L Davíðsdóttir skrifar 19. ágúst 2026 23:46 Kvikmynd um andlát Hind Rajib, The Voice of Hind Rajab, var tilnefnd til Óskarsverðlaunanna í ár. Getty/Massimo Rosi Ísraelsher hefur í fyrsta sinn viðurkennt að hafa, árið 2024, hafið skotárás á bíl sem í var sex manna palestínsk fjölskylda, þar á meðal fimm ára gömul stúlka, Hind Rajab, sem lést seinna af sárum sínum. Ísarelsher greindi frá því í dag að hefja ætti rannsókn á atvikinu.
Hind var í bíl ásamt fjölskyldu sinni á leið sinni frá Gasa þegar Ísraelsher hóf skotárás á bílinn. Fjölskyldan lést í árásinni en Rajab lifði árásina af og komst í samband við hjálparsamtökin Rauða hálfmánann til að fá aðstoð. Símtalið stóð yfir í margar klukkustundir og þremur klukkustundum síðar var sjúkrabíll sendur til þess að sækja Rajab í samráði við Ísraelsher. Hann varð fyrir sprengjuárás og Rajab og tveir sjúkraflutningamenn létust. Rauði hálfmáninn í Palestínu hafi síðar staðfest að sjúkrabíllinn hafi verið sprengdur af ísraelskum hersveitum og sagt hernámsliðið beina árásum sínum vísvitandi að bíl á vegum Rauða hálfmánans. Í yfirlýsingu Ísraelshers frá því í dag er greint frá því að hefja eigi rannsókn á andláti Hind, fjölskyldu hennar og heilbrigðisstarfsmannanna, segir í umfjöllun BBC. „Vegna meintra mistaka í samræmingu á ferðum sjúkrabíls Rauða hálfmánans í Palestínu hefur verið ákveðið að hefja sakamálarannsókn á atvikinu á vegum rannsóknardeildar herlögreglunnar,“ segir í yfirlýsingunni. Höfðu neitað ítrekað að hermenn hefðu verið á svæðinu Ísraelsher neitaði ítrekað að hermenn hefðu verið á svæðinu þegar atvikið átti sér stað en fljótlega litu dagsins ljós gögn sem bentu til þess að svo hefði verið, segir í umfjöllun Guardian. Andlát Hind var fordæmt á alþjóðavettvangi og vakti mikla reiði eftir að upptaka af henni að tala við sjúkraflutningamenn Rauða hálfmánans í Palestínu fór í dreifingu um heim allan. Kvikmynd um atvikið, The Voice of Hind Rajab, var tilnefnd til Óskarsverðlaunanna í flokknum Besta erlenda kvikmyndin. Auk rannsóknarinnar á Hind, fjölskyldu hennar og sjúkraflutningamönnunum, sagði Ísraelsher einnig að dráp 15 Palestínumanna yrði rannsakað, eftir að Ísraelsher skaut sjúkrabíla, slökkviliðsbíl og ökutæki merk Sameinuðu þjóðunum í Rafah á suðurhluta Gasa í mars 2025. „Að lokinni yfirferð niðurstaðna, þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að skothríðin sem átti sér stað í atvikinu veki rökstuddan grun um refsiverða háttsemi, hefur verið ákveðið að hefja rannsókn á atvikinu,“ sagði í yfirlýsingu Ísraelshers. Rannsóknir leiði sjaldnast til sakfellingar Þetta er í fyrsta sinn sem ítarleg skýrsla Ísraelshers um meinta stríðsglæpi er birt frá upphafi Gasa-stríðsins, segir í umfjöllun BBC. Ísraelsher sé undir þrýstingi að sýna fram á innri rannsóknir til að reyna að koma í veg fyrir alþjóðlegar málsóknir, einkum frá Alþjóðasakamáladómstólnum. Ísraelsk mannréttindasamtök, á borð við Yesh Din, segja að rannsóknir á hermönnum innan Ísraelshers leiði sjaldan til sakfellingar og fáar ákærur séu gefnar út miðað við fjölda kvartana á hendur hermönnum. Í þeim fáu tilvikum sem hermenn séu sakfelldir endurspegli refsingin sjaldnast alvarleika brotanna.
Átök í Ísrael og Palestínu Ísrael Palestína Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Sjá meira