Sport

Tveir látnir og sjö særðir eftir að maður ók niður hjól­reiðalið

Aron Guðmundsson skrifar
Frá háskólasvæði Milligan háskólans þar sem að mikil sorg ríkir nú
Frá háskólasvæði Milligan háskólans þar sem að mikil sorg ríkir nú

Tveir liðsmenn hjólreiðaliðs Milligan háskólans í Bandaríkjunnum eru látnir og sjö liðsmenn særðir eftir að ökumaður bifreiðar ók henni vísvitandi á liðið á fjallvegi í Tennesee. Ökumaðurinn, sem er á sjötugsaldri hefur verið ákærður fyrir manndráp.

Greint er frá málinu á vef The Atheltic núna í morgun en tveir nemendur á öðru ári við Milligan skólann sem voru í hjólreiðaliðinu eru látnir.

Ökumaðurinn, hinn 69 ára gamli John Benfield, hefur verið ákærður í tveimur liðum. Fyrir manndráp af gáleysi og alvarlega líkamsárás. Hann situr nú í fangelsi. 

Sjö af þeim ellefu hjólreiðamönnum úr liði Milligan háskólans sem voru á fjallveginum voru fluttir á Johnson City sjúkrahúsið til meðhöndlunar. Ekki er vitað að fullu um ástand þeirra. 

Hjólreiðaliðið hafði notið góðs árangurs upp á síðkastið. Meðal annars unnið landstitil í tímatöku á USA Cycling Collegiate Road Nationals mótinu. 

„Þetta er ekki bara hópur af krökkum sem ákváðu að fara saman út að hjóla,“ lét Steven R. Finney, saksóknari í Carter -sýslu hafa eftir sér. „Þessir hjólreiðamenn vissu hvað þeir voru að gera. Þeir hjóluðu saman í peloton hóp og einn af drengjunum hafði unnið mót bara um síðustu helgi.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×