Erlent

Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Donald Trump vill að sundið muni heita Trumpsund eftir sér sjálfum.
Donald Trump vill að sundið muni heita Trumpsund eftir sér sjálfum. EPA

Donald Trump Bandaríkjaforseti spyr í færslu á samfélagsmiðlum hvort hann ætti að breyta heiti Hormússunds í Trumpsund. Nokkrir dagar eru síðan hann tilkynnti um breytingu á Ontaríó-vatni.

„Núna þegar við höfum það undir stjórn Bandaríkjanna, ættum við að breyta heiti Hormússunds í TRUMPSUND???“ spyr Trump í færslu á samfélagsmiðlinum Truth Social sem er í hans eigu.

„Eins og Bandaríkin, myndi þetta vera „heitara“ en nokkru sinni áður! Takk fyrir að beina athygli ykkar að þessu máli.“

Færsla Trump.

Tæp vika er liðin frá því að Hvíta húsið tilkynnti að Trump hefði undirritað tilskipun þess efnis að breyta heiti Ontaríó-vatnsins í Ameríku-vatn. Stöðuvatnið liggur á milli New York-fylkis og Ontaríó-héraðsins í Kanada.

Það gerði hann eftir að tollasamkomulag Bandaríkjanna og Kanada gekk ekki upp.

Sjá nánar: Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn

Þar áður, í byrjun seinna kjörtímabilsins síns, undirritaði hann tilskipun um að breyta heiti Mexíkóflóa í Ameríkuflóa. Stórfyrirtæki á við Google fylgdu tilskipuninni svo ef notendur Google Maps á Íslandi leita að Mexíkóflóa birtist heitið Ameríkuflói í sviga þar fyrir aftan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×