Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áróra L Davíðsdóttir skrifar 5. september 2026 20:15 Bíll við bíl á Suðurlandi. Aðsend Þriggja bíla árekstur varð rétt austan við Sólheimajökul á sjöunda tímanum í kvöld. Fjórir voru fluttir á Landspítalann með þyrlu Landhelgisgæslunnar til aðhlynningar vegna slyssins. Þar af voru tveir alvarlega slasaðir. Langar bílaraðir hafa myndast þar sem veginum hefur verið lokað meðan á vinnu á vettvangi stendur.
Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar segir þyrluna hafa verið kallaða út að beiðni lögreglu. Að sögn Írisar Eddu Heimisdóttur, aðalvarðstjóra hjá Lögreglunni á Suðurlandi, voru samtals átta farþegar í bílunum þremur sem lentu í slysinu. Fjórir þeirra voru fluttir til aðhlynningar með þyrlu Gæslunnar til Reykjavíkur. Tveir þeirra voru alvarlega slasaðir, segir í Facebook-færslu Lögreglunnar á Suðurlandi. Tveir voru fluttir með sjúkrabíl á Heilbrigðisstofnun Suðurlands til aðhlynningar. Lokað er fyrir umferð í báðar áttir á Suðurlandsvegi austan við Sólheimajökul meðan á vinnu á vettvangi stendur. Íris segir umferðarþunga vera á svæðinu en lögregla á vettvangi reyni að finna hjáleið sem hægt er að beina umferð annað. Rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi vinnur nú að vettvangsvinnu sem gæti dregist fram á kvöld, segir í færslu lögreglu. Hún biðlar til vegfarenda að sýna tillitssemi á meðan vettvangsvinnu stendur. Á vef Vegagerðarinnar segir að búast megi við umferðartöfum á Hringvegi undan Sólheimajökli. Búist sé við því að vegurinn verði opnaður kl 21:30 að nýju. Íris segir að nú um tíuleytið hafi verið opnað fyrir umferð aftur til vesturs en enn sé lokað til austurs. Ákveðinn tíma þurfi til þess að rannsaka tildrög slyssins. Umferðin sé nokkuð þung og langar bílaraðir hafi myndast. Að sögn eins vegfaranda hafa sumir beðið í bílaröð í núna um tvær og hálfa klukkustund á þjóðvegi eitt á Suðurlandi. Fréttin hefur verið uppfærð.
Landhelgisgæslan Lögreglumál Samgönguslys Mýrdalshreppur Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira