Fangar þurfi að fylgja samþykktri dagskrá í dagsleyfum Birgir Olgeirsson skrifar 15. september 2026 14:26 Móðirin, sem kemur fram undir nafnleynd til að vernda barn sitt, lýsti því sem nýju áfalli að sjá Hannes Valle Þorsteinsson fyrir utan heimili sitt. Í almennum svörum vegna málsins segir Fangelsismálastofnun dagsleyfi háð samþykktri dagskrá og skilyrðum sem geti takmarkað ferðir fanga og samskipti þeirra við aðra. Anton Brink Fangar þurfa að skila ítarlegri dagskrá áður en þeir fá dagsleyfi og fallast á þau skilyrði sem leyfinu fylgja. Að sögn Fangelsismálastofnunar liggur áhættumat fyrir þegar um alvarleg brot er að ræða og hægt er að takmarka ferðir fanga og samskipti þeirra við aðra.
Þetta kemur fram í svörum frá Fangelsismálastofnun við spurningum Vísis í kjölfar umfjöllunar um dagsleyfi Hannesar Valle Þorsteinssonar. Stofnunin kveðst almennt ekki tjá sig um einstaka fanga. Svörin lýsa því almennum reglum og framkvæmd dagsleyfa, án þess að tekin sé afstaða til afplánunar Hannesar eða atviksins sem fjallað var um. Móðir sem var meðal foreldra sem kærðu Hannes vegna meintra brota á leikskólanum Múlaborg sagði í samtali við Vísi að hún hefði séð hann fyrir utan heimili sitt 5. september, þegar hann hefði verið í dagsleyfi. Hún lýsti því sem nýju áfalli og óttaðist að börnin gætu rekist á hann í hverfinu. Í fréttinni kom ekki fram að hann hefði haft samband við brotaþola eða aðstandendur þeirra. Hannes var í maí dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun gegn ungri stúlku á leikskóla og afplánar á Sogni, sem er opið fangelsi. Meta brotið, hegðun og meðferðarþátttöku Að sögn Fangelsismálastofnunar eru dagsleyfi liður í því að undirbúa endurkomu fanga út í samfélagið í áföngum. Fangar leggi fram ítarlega dagskrá sem stofnunin samþykki eða geri athugasemdir við. Samkvæmt 60. grein laga um fullnustu refsinga skal við mat á umsókn skoða brotið, sakaferil, afplánunarferil, hegðun og meðferðarþátttöku. Sérstaka gát skal sýna vegna meðal annars kynferðisbrota. Strok útilokar leyfi í minnst tvö ár, misnotkun fyrra leyfis í átta mánuði og áfengis- eða vímuefnaneyslu eða agabrot í sex mánuði. Skilyrði um ferðir, samskipti og eftirlit Samkvæmt 65. grein laganna má fangi hvorki fara úr landi né neyta eða hafa áfengi, vímuefni eða lyf sem honum eru ekki ætluð. Ferðir og athafnir verða að samræmast tilgangi leyfisins. Auk þess má setja skilyrði um: Bann við komu á ákveðna staði eða samskiptum við tiltekna einstaklinga. Rafrænt eftirlit. Tilkynningar til lögreglu eða fangelsisyfirvalda. Að tilteknir einstaklingar annist ferðir til og frá fangelsinu. Öndunar-, blóð- eða þvagsýni. Líkamsleit við endurkomu. Umsókn skal vera skrifleg. Fanginn undirritar samþykki skilyrðanna og fær skírteini með reglum og afleiðingum brota samkvæmt 66. grein. Að sögn Fangelsismálastofnunar er unnt að setja skilyrði um að fangar umgangist ekki brotaþola í dagsleyfum og er það ávallt gert þegar t.d. er um að ræða kynferðisbrot gegn börnum. Í slíkum tilvikum er sérstaklega farið yfir dagskrá leyfisins og sem dæmi væri almennt ekki fallist á að einstaklingur með slíkt brot verji dagsleyfi á stað eins og sundlaug þar sem börn og aðrir viðkomandi hópar eru til staðar. Tímamörk á dagsleyfum Samkvæmt 59. grein laganna veitir forstöðumaður leyfið með samþykki Fangelsismálastofnunar. Almennt þarf samfelld afplánun að ná þriðjungi refsitímans og minnst einu ári. Eftir fjögur ár má veita leyfi þótt þriðjungur sé óliðinn. Hámarkið er tólf leyfi árlega með minnst 30 daga millibili. Leyfi varir mest 14 klukkustundir, með undanþágu vegna langrar heimferðar. Brotaþolar geti óskað upplýsinga Fangelsismálastofnun segir brotaþolum alla jafna tilkynnt um dagsleyfi hafi þeir sérstaklega óskað eftir upplýsingum um tilhögun afplánunar. Á vef stofnunarinnar kemur fram að heimilt sé að veita upplýsingarnar ef brotaþoli óskar þess og brýnir hagsmunir hans krefjast þess. Þar undir geti meðal annars fallið upplýsingar um dagsleyfi.
Reykjavík Dómsmál Lögreglumál Ofbeldi gegn börnum Kynferðisofbeldi Fangelsismál Kynferðisbrot á Múlaborg Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fleiri fréttir Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Sjá meira