Níu ákærðir fyrir að flytja inn rúm hundrað kíló kókaíns Árni Sæberg skrifar 18. september 2026 11:06 Fíkniefnin voru um borð í skipi sem lagt var við höfn við Straumsvík í Hafnarfirði. Vísir/Vilhelm Níu karlmenn, sex erlendir ríkisborgarar og þrír Íslendingar, hafa verið ákærðir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, með því að hafa flutt inn 106 kíló af kókaíni með skipi frá Brasilíu í júní síðastliðnum.
Þetta staðfestir Karl Ingi Vilbergsson, settur varahéraðssaksóknari, í samtali við Vísi en Ríkisútvarpið greindi fyrst frá. Karl Ingi segir ekki unnt að afhenda ákæruna að svo stöddu, þar sem hún hafi ekki verið kynnt öllum ákærðu. Ríkisútvarpið hefur hana þó undir höndum. Í frétt Rúv segir að þeir Vasile Costache, Arthur De Araujo Faria, Corneliu Radulescu, Eziquiel De Lima Pereira og Wagner Alexandre De Silva sæti ákæru fyrir skipulagða brotastarfsemi og stórfellt fíkniefnalagabrot með því að sammælast um að flytja efnin inn. Í öðrum ákærulið sé einn erlendur ríkisborgari ákærður fyrir hlutdeild í broti mannanna, með því að hafa flutt inn kafarabúning, sem notaður var til að ná kókaíninu úr sjókistu skipsins. Loks séu þeir Lúther Ólason og Lárus Freyr Einarsson ákærðir fyrir tilraun til fíkniefnalagabrots, með því að hafa reynt að taka á móti efnunum, og Atli Freyr Fjölnisson fyrir að hafa gefið þeim fyrirmæli um móttöku þeirra. Karl Ingi segir að allir níu séu í gæsluvarðhaldi en það hafi verið framlengt um fjórar vikur í gær.
Straumsvíkurmálið Fíkniefnabrot Smygl Lögreglumál Dómsmál Tengdar fréttir Allir níu áfram í haldi Gæsluvarðhald yfir öllum níu sakborningunum í Straumsvíkurmálinu svokallaða hefur verið framlengt á ný. Allir þurfa því að dúsa í haldi í rúmar sex vikur til viðbótar. 1. september 2026 20:22 Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Tveir brasilískir kafarar eru í hópi þeirra níu sem sitja í gærsluvarðhaldi vegna Straumsvíkurmálsins svokallaða, mesta kókaínsmygli Íslandssögunnar. Atli Freyr Fjölnisson sem hlaut áður dóm í stóru fíkniefna máli er einnig í haldi. 17. júlí 2026 08:55 Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fleiri fréttir Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sjá meira
Allir níu áfram í haldi Gæsluvarðhald yfir öllum níu sakborningunum í Straumsvíkurmálinu svokallaða hefur verið framlengt á ný. Allir þurfa því að dúsa í haldi í rúmar sex vikur til viðbótar. 1. september 2026 20:22
Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Tveir brasilískir kafarar eru í hópi þeirra níu sem sitja í gærsluvarðhaldi vegna Straumsvíkurmálsins svokallaða, mesta kókaínsmygli Íslandssögunnar. Atli Freyr Fjölnisson sem hlaut áður dóm í stóru fíkniefna máli er einnig í haldi. 17. júlí 2026 08:55