Vaxandi verðbólguáhyggjur en vaxtahækkun kæmi „nokkuð á óvart“
Þótt verðbólga og verðbólguvæntingar hafi hækkað frá síðustu vaxtaákvörðun og rök séu fyrir því að Seðlabankinn herði taumhaldið enn frekar telja greinendur IFS líklegast að peningastefnunefnd haldi stýrivöxtum óbreytum í næstu viku. Hagkerfið er í hægagangi, raunvextir áfram háir og óvissa á vinnumarkaði mikil, en ekki er útilokað að gripið verði til einnar vaxtahækkunar til viðbótar síðar á árinu.
Tengdar fréttir
Óttast „harða lendingu“ með efnahagssamdrætti og verulegu atvinnuleysi
Skýr merki eru komin fram um að hagkerfið sé að kólna mun hraðar en flestar hagspár hafa gert ráð fyrir og hætta er á að áfram dragi úr hagvexti á næsta ári samhliða verulega auknu atvinnuleysi, að mati greinenda Acro. Þeir óttast að þrálát verðbólga og háar verðbólguvæntingar komi í veg fyrir að Seðlabankinn geti brugðist við versnandi efnahagsástandi með vaxtalækkunum og að niðurstaðan verði „hörð lending“.
Sendir röng skilaboð og hreyfir við verðbólguvæntingum á brothættum stað
Afleiðingarnar af því að boða hækkun á gjöldum ríkisins í samræmi við verðbólgu, sem hefur verið gert í síðustu tveimur fjárlagafrumvörpum, verða til þess að hreyfa við verðbólguvæntingum sem eru fyrir á „brothættum stað“, að sögn varaseðlabankastjóra, og að Seðlabankinn myndi gjarnan vilja sjá þetta endurhugsað. Hann segir jákvætt að aðhaldsstigið í ríkisfjármálum eigi að aukast á milli ára og varar við því að fara í meiri launahækkanir á vinnumarkaði, einkum núna þegar það er að myndast „mikill slaki í þjóðarbúinu.“
Aukinn launakostnaður gæti kallað á enn frekara aðhald Seðlabankans
Þrátt fyrir vaxandi merki um kólnun í hagkerfinu, meðal annars á fasteignamarkaði, er útlit fyrir þráláta verðbólgu á komandi mánuðum og er þróunin á vinnumarkaði sögð geta ráðið miklu um hvort peningastefnunefnd Seðlabankans sjái ástæðu til frekara aðhalds. Spár flestra greinenda gera ráð fyrir að tólf mánaða verðbólgan hækki í nærri sex prósent í lok þessa mánaðar.
Telja að hallinn geti orðið yfir fjörutíu milljarðar þrátt fyrir fyrirheit um afgang
Útlit er fyrir að afkoma ríkissjóðs á árinu 2027 verði umtalsvert lakari en lagt er upp með í nýju fjárlagafrumvarpi, að mati greinenda Acro, sem telja líklegustu sviðsmyndina vera halli upp á 43 milljarða. Forsendur frumvarpsins eru sagðar of bjartsýnar, „svo ekki sé fastar að orði kveðið“, miðað við hægari efnahagsumsvif og án frekari aðgerða sé erfitt að sjá hvernig markmið um fimm milljarða afgang geti gengið eftir.