Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 22. október 2026 17:55 Ómar Valdimarsson og Alexander Máni í bakgrunni. Vísir/Vilhelm Landsréttur hefur snúið við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur og fallist á kröfu Ómars Valdimarssonar lögmanns um að úrskurður um að hann skyldi áminntur verði felldur úr gildi.
Ómar Valdimarsson hefur eldað grátt silfur við úrskurðarnefnd lögmanna um tíma og ítrekað verið áminntur af henni. Ómar sendi dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur, dómstjóra sama dómstóls og 26 öðrum lögmönnum tölvupóst þar sem hann kvartaði undan lágri málsvarnarþóknun og sagðist þurfa að segja starfsmanni upp hennar vegna. Úrskurðarnefnd lögmanna barst kvörtun og hún áminnti Ómar fyrir. Málið snýr að málsmeðferð Bankastræti club-málsins svokallaða. Í því var Ómar verjandi Alexanders Mána Björnssonar sem var dæmdur í sex ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps. „Hýrudráttur í S-1075/2023“ Málið var umfangsmikið, réttarhöld fóru fram í veislusal yfir heila viku og verjendur voru 25 talsins, jafnmargir og sakborningar. Í dómsorði dóms Héraðsdóms Reykjavíkur, sem kveðinn var upp af Sigríði Hjaltested héraðsdómara, segir að Alexander Máni skuli greiða Ómari tvo þriðju hluta málsvarnarlauna hans, 7,8 milljónir króna. Samkvæmt úrskurði úrskurðarnefndar vildi Ómar ekki una þessari niðurstöðu Sigríðar og sendi henni bréf. Í því segir að hann hafi fengið greidd 43,7 prósent þeirra málvarnarlauna sem hann krafðist samkvæmt framlagðri tímaskýrslu. Hann spurði hana hvort ólaunaði hlutinn væri „þegnskylduvinna“ og bað dómara um að benda á hvaða starfsmann hann ætti að reka. Næsta dag sendi hann tölvupóst á 26 lögmenn með yfirskriftinni „Hýrudráttur í S-1075/2023“ og kannaði áhuga á að lýsa því yfir að þeir myndu ekki flytja sakamál hjá viðkomandi dómara framvegis. Þessar vangaveltur fengu takmarkaðar undirtektir. Héraðsdómur ekki haft beina aðild Ómar höfðaði mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur til að fá þessum úrskurði hnekkt en þar var fallist á að Ómar hefði átt skilið áminningu vegna háttsemi hans og hafnaði kröfu hans um ógildingu úrskurðarins. Allir dómarar við dóminn viku sæti sínu og dómari við Héraðsdóm Reykjaness endaði á því að dæma í málinu. Ómar áfrýjaði dómnum til Landsréttar sem komst að þeirri niðurstöðu að Héraðsdómur Reykjavíkur hefði ekki haft aðild að málinu fyrir úrskurðarnefnd lögmanna. Háttsemi áfrýjanda hafi fyrst og fremst varðar tvo tiltekna dómara, ekki dómstólinn sem stofnun. Þar sem kvartandi hefði ekki haft aðild var úrskurðarnefndinni óheimilt að taka málið til efnismeðferðar. Fallist var því á kröfu Ómars og úrskurður úrskurðarnefndar lögmanna frá 9. júlí 2024 var felldur úr gildi. Íslenska ríkinu var gert að greiða áfrýjanda 1.800.000 kr. í málskostnað fyrir héraðsdómi og Landsrétti.
Dómsmál Lögmennska Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fleiri fréttir Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Sjá meira