Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Árni Sæberg skrifar 27. október 2026 12:15 Þrjótarnir náðu mestum fjármunum út úr Landsbankanum. Vísir/Vilhelm Um sjötíu manns hafa verið ákærðir fyrir fjársvik og peningaþvætti í tengslum við umfangsmikið fjársvikamál sem kom upp í nóvember í fyrra. Hundruð milljóna króna voru svikin út úr Landsbankanum með nýtingu galla hjá Reiknistofu bankanna.
Á mánudag verður mál Héraðssaksóknara á hendur um sjötíu manns þingfest fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Samkvæmt heimildum Vísis er um svokallað Landsbankamál að ræða, sem var í fréttum í nóvember síðastliðnum. Tveir aðalmenn Samkvæmt heimildum varðar þetta tiltekna mál aðeins hluta svikanna, sem námu alls um fjögur hundruð milljónum, og tveir hinna ákærðu eru aðalmenn samkvæmt ákæru. Fjórir aðrir eru ákærðir fyrir hlutdeild í brotum þeirra og hinir ákærðu eru ákærðir fyrir peningaþvætti, með því að taka við fjármunum frá aðalmönnunum. Vísir hefur óskað eftir því að fá ákæruna afhenta en að sögn Héraðssaksóknara hefur hún ekki verið birt öllum ákærðu og því sé ekki heimilt að afhenda hana fjölmiðlum að svo stöddu. Hún var gefin út á föstudag í síðustu viku. Hvar verður aðalmeðferðin? Lögmenn sem Vísir hefur rætt við velta því fyrir sér hvernig meðferð málsins verður háttað hjá Héraðsdómi Reykjavíkur, enda er ljóst að ekki er pláss fyrir sjötíu sakborninga auk verjenda í húsakynnum dómstólsins. Þingfesting málsins fer fram í stærsta sal dómshússins við Lækjartorg en reiknað er með að hún taki sex klukkustundir. Í flestum málum eru tíu mínútur teknar frá fyrir þingfestingu. Ekki er óþekkt að dómstólar taki sal á leigu vegna plássleysis í dómshúsinu en það var gert í Bankastrætis Club-málinu svokallaða árið 2023. Blaðamanni er ekki kunnugt um önnur dæmi um slíkt. Þingfesting málsins fer fram í sal 101 í dómshúsinu við Lækjargötu en nokkuð ljóst má telja að ekki verði hægt að há aðalmeðferð þar.Vísir/Vilhelm Aðalmeðferð í því máli fór fram í veislusalnum Gullhömrum þar sem sakborningar þess voru 25 talsins, verjendur jafnmargir og réttargæslumenn tveir.
Sviku milljónir af Landsbankanum Efnahagsbrot Landsbankinn Lögreglumál Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Fleiri fréttir Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Sjá meira