Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sindri Sverrisson skrifar 1. nóvember 2026 08:03 Andrea Kolbeinsdóttir var skælbrosandi á lokakaflanum í hlaupinu í Suður-Kóreu og brosti enn þegar hún ræddi við Vísi um stórkostlegan sigur sinn. vísir/Sigurjón Andrea Kolbeinsdóttir skráði nýjan kafla í hlaupasögu Íslands með sigri í sjálfu úrslitahlaupi Golden Trail-keppnisraðarinnar í Suður-Kóreu. Hún brákaði rifbein sex dögum fyrir keppni, rann til og skall á tré í hlaupinu en kom skælbrosandi í mark.
Andrea er enn helaum í rifbeinunum, ekki síst eftir ferðalagið langa heim til Íslands, en orðlaus yfir viðbrögðunum eftir sigurinn sem svo sannarlega veitir henni enn stærri tækifæri í framtíðinni. Þjálfari hennar grínaðist með að hún þyrfti oftar að brjóta rifbein vegna þess hvaða áhrif það hafði á hana. „Þegar maður er í góðum gír og hefur trú á sér þá geta ótrúlegustu hlutir gerst,“ segir Andrea en viðtalið við hana og tilþrif hennar í hlaupinu má sjá hér að neðan. Klippa: Andrea orðlaus yfir viðbrögðunum Andrea brákaði rifbein á æfingu í Suður-Kóreu og segir það mögulega á vissan hátt hafa hjálpað sér andlega fyrir hlaupið. Þá hafi 28 kílómetra löng keppnisbrautin, með 2.400 metra hækkun í heildina og þremur „klifrum“, hentað henni vel þar sem hún búi yfir sérstaklega góðri tækni við að hlaupa niður í móti, eins og sýndi sig í harðri keppni við hina rúmensku Madalinu Florea. „Þetta er minn dagur“ „Strax frá byrjun var ég í stuði og þessi braut var eiginlega gerð fyrir mig. Það var blautt, rigning og sleipt, og brautin mjög tæknileg. Ég var strax frekar framarlega, leið ógeðslega vel í fótunum og var með hausinn á réttum stað. „Þetta er minn dagur,“ hugsaði ég. Smátt og smátt pikkaði ég upp stelpur strax í fyrsta klifrinu, svo kom fyrsta niðurhlaupið og þá var ég strax komin í þriðja sætið í lokin á því. Í næsta klifri var ég komin í bakið á fremstu konu og þetta gekk bara allt saman upp þennan dag,“ segir Andrea. View this post on Instagram A post shared by Golden Trail World Series (@goldentrailseries) Golden Trail keppnisröðin er sú sterkasta í heimi, ásamt UTMB sem er þó frekar fyrir enn lengri utanvegahlaup. Í Suður-Kóreu kepptu því þær bestu í heimi en Andrea kom í mark á þremur klukkutímum, 19 mínútum og 56 sekúndum og var rúmlega fimm mínútum á undan Florea sem hlaut silfur. „Þó að hún sé ótrúlega sterk þá var ég bara svo jákvæð og hugsaði: „Ég er sterkari en hún. Ég er betri en hún í tæknilegu.“ Í næsta tæknilega niðurhlaupi, sem er minn styrkleiki, náði ég smá bili á hana en fyrir síðasta klifrið náði hún mér aftur. Einhvern veginn náði ég svo samt að setja bil á hana aftur, með bara eitt niðurhlaup eftir og þá vissi ég að þetta væri komið sem var samt svo skrýtin tilfinning í svona sterku og stóru hlaupi. Þetta var geðveikt.“ Miklar tilfinningar í lokin En hvernig gekk að einbeita sér þegar Andrea sá fram á að fagna þessum tímamótasigri? Ekki einfalt, segir Andrea: „Sérstaklega síðustu 200 metrana þegar ég sá borðann í markinu og vissi að þetta væri hundrað prósent komið í höfn. Þá var ég að gefa áhorfendum „five“ og var alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi. Það var næstum því erfitt að hlaupa áfram því maður var svo fullur af tilfinningum.“ View this post on Instagram A post shared by Golden Trail World Series (@goldentrailseries) Eins og fyrr segir gerir það sigur Andreu enn merkilegri að hún skuli hafa hlaupið með brákað rifbein og þurft verkjalyf til að geta keppt. Hún óttaðist svo það versta þegar hún rann til í hlaupinu, komin í fyrsta sæti. Hugsaði „ó, nei!“ þegar hún lenti á trénu „Þjálfarinn minn grínaðist með að það þyrfti að brjóta í mér rifbein fyrir fleiri keppnir því þetta gekk svo vel. Þetta tók í rauninni pressu og stress í burtu því ég var bara með áhyggjur af að geta verið með á startlínunni. Þá var ég því ekki að stressa mig á hlaupinu sjálfu og svo var ég bara svo þakklát þegar ég stóð á ráslínunni og að finna þá ekki mjög mikið til. Þetta hafði svo ekki nein áhrif í hlaupinu. Maður lét sig hafa það að taka nokkur verkjalyf og svo var maður fullur af adrenalíni svo þetta hafði engin áhrif á hlaupið. Ég vissulega datt á rifbeinið í hlaupinu og fór að finna mikið fyrir því en þá var ég full af adrenalíni og að leiða hlaupið svo maður var ekkert að hugsa um það. Þetta truflaði ekkert í hlaupinu en ég er búin að vera mun verri eftir hlaupið,“ segir Andrea. En hvernig leið henni þegar hún féll við í einni brekkunni? „Ég var hrædd við að detta og hugsaði bara „ó, nei!“ því ég lenti akkúrat á þessari síðu þar sem ég brotnaði, á trénu. En maður var bara í keppnisgírnum og hugsaði ekkert meira um þetta. En þetta hefur aðeins versnað, sérstaklega eftir ferðalagið heim og svo er maður hættur að taka verkjalyf. Vonandi verður þetta betra sem fyrst,“ segir Andrea létt í bragði. „Orðlaus yfir öllum skilaboðunum“ Þessi 27 ára Árbæingur sem sett hefur læknisfræðinám sitt á ís til að einbeita sér að hlaupunum samdi við íþróttavöruframleiðandann Salomon í ágúst. Þar á bæ fagna menn eflaust vel eftir að Andrea stimplaði sig inn sem nýjasta stjarna hlaupaheimsins. Næst á dagskrá hjá henni er Valencia-maraþonið en svona sigur opnar allar dyr: „Í fyrsta lagi er ég orðlaus yfir öllum viðbrögðunum og skilaboðunum sem ég hef fengið. Það er ótrúlega gaman að lesa yfir þau öll og svara hamingjuóskunum. Maður fær örugglega stærri tækifæri eftir þetta í keppnishlaupum og samstarf við fleiri aðila. Það eru góðir tímar fram undan.“
Hlaup Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Enski boltinn Fleiri fréttir Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Hlaut heilahristing og er enn með hausverk en aganefnd gaf grænt ljós Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Njarðvík sagði upp samningi við Smit Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun „Sóknarleikurinn vel smurður“ Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Freyr að eignast markakóng eftir enn einn sigurinn Brentford bjargaði United frá fallsæti Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Góður sigur stráka Sigga Ragga í lokaleiknum Gylfi tekur við Víkingi Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Sjá meira