Skoðun

Tví­skinnungur ætt­jarðarástar

Gunnlaugur Stefánsson skrifar

Ég bjó í sveit í 33 ár. Nágrannar mínir voru bæði Íslendingar og útlendingar og sama gilti um eigendur eyðijarða í sveitinni. Aldrei man ég eftir að það hafi skipt máli í dagsins önn eða að við værum upptekin af þjóðerni okkar. Við deildum kjörum saman í sátt og samlyndi.

Nú les ég lærðar greinar um að útlendingar séu hættulegt fólk og megi alls ekki eiga jarðir í landinu né hasla sér þar völl. Á sama tíma mega útlendingar fjárfesta og eignast hvað sem er í ferðaþjónustu þjóðarinnar og flestar dyr þar þeim opnar upp á gátt.

Í sjávarútvegi telja flestir það til landráðs að opna miðin og veiðarnir fyrir útlendingum. Svo má alls ekki blanda útlenskum erfðavísum í íslenska kúastofninn. Það yrði ávísun á hrun í íslenskum landbúnaði.

Firðirnir eru líka fallegir

Það vekur þess vegna athygli að mörgum þeim sem vilja vernda landið gegn ásælni útlendinga finnst í fínu lagi að gefa útlendingum heilu firðina á silfurfati til að ala frjóan lax í opnum sjókvíum, ekki íslenskan lax, heldur innfluttan frá útlöndum.

Þá er allri ættjarðarást varpað fyrir róða af því að vonin um gróða af eldinu vegur þyngra en ástin á landi og þjóð. Þetta var í bernsku minni kallað tvískinnungur.

En þessi gróði er dýrkeyptur af því að örlætið við útlendingana í eldisiðjunni felur í sér mengun á lífríkinu í fjörðunum og erfðablöndun við villtan íslenskan lax. Það mun fyrr en varir höggva stórt skarð í búsetuna og atvinnulífið í dreifðum byggðum.

Engar mótvægisaðgerðir geta forðað því nema lokaðar kvíar og ófrjór lax með nýjum lögum sem setja útlensku eldisiðjunni skýr mörk.

Laxinn er samfoinn í lífræðilega fjölbreytni náttúrunnar. Firðir landsins eru auður fólksins og fegurðar. Viljum við fórna þessu fyrir útlenskan skammtímagróða í opnu sjókvíaeldi?

Kvótavæða gjöfina

Svo er barist fyrir því að öllum gjafaleyfunum í opna sjókvíaeldinu til útlendinganna verði breytt í varanlegan eignarkvóta svo hægt verði að versla með firðina á markaðstorgum í útlöndum. Þar með yrði formlegur og virkur útflutningur á íslensku landi kominn á fullt skrið.

Þetta boðaði frumvarp síðustu og núverandi ríkisstjórnar og flutt á Alþingi. Enginn þingmaður gerði athugasemdir við gjafagjörninga á fjörðum landsins til útlendinga, ekki einu sinni úr röðum Miðflokks og Framsóknarflokks sem segja stundum á hátíðarstundum að elski Ísland meira en flestir.

Samkvæmni í fyrirrúmi?

Einu sinni var börnum boðað að vera sjálfum sér samkvæm. Það kemur í huga, þegar menn mæra opna sjókvíeldið, gefa útlendingum firðina og létu með einu opinberu pennastriki fylgja með sérstakt leyfi til að ala þar frjóan og útlenskan lax sem er hrein aðför að íslensku lífríki. Það eru því öfugmæli, þegar sömu menn stíga nú á stokk og segjast elska landið sem megi alls ekki verða útlendingum að bráð.

Afhverju gilda gilda ekki sömu reglur um fjarfestingar og eignarhald í opnu sjókvíaeldi og í íslenskum sjávarútvegi?

Hefur hér samkvæmni skolast til og tvískinnungur tekið yfir og innblásinn af dágóðum skammti af hræsni?

Eigi að síður er ættjarðarástin falleg, - og líka þegar við deilum henni með útlendingum í sátt og samlyndi lífinu til farsældar.

Höfundur er fyrrv. alþingismaður og fyrrv. sóknarprestur í Heydölum í Breiðdal.




Skoðun

Sjá meira


×