Bæjarstjórnin vilji hefja uppbyggingu en ríkisstjórnin doka við Ríkisstjórnin telur ekki ráðlegt að hefja stórtækt endurreisnarstarf í Grindavík vegna óvissu með áframhald jarðhræringa. Bæjarstjóri vill hins vegar hefja uppbyggingu og saknar áætlunar um að halda við innviðum til að bjarga verðmætum. Innlent 18. mars 2025 19:15
Fólk á góðum launum ráði ekki við erfið verkefni Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að skólar eigi að vera griðastaður barna, en ekki vettvangur daglegs ofbeldis árum saman. Hann gerði ofbeldisvandann í Breiðholtsskóla að umtalsefni á Alþingi í dag, en hann segir að fullorðið fólk á góðum launum í stjórnsýslunni ráði ekki við erfið mál og kasti þeim frá sér. Innlent 18. mars 2025 16:25
Forystukrísa Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði á sér margar kostulegar birtingarmyndir! Nú hefur Rósa Guðbjartsdóttir þingkona Sjálfstæðisflokksins og bæjarfulltrúi í Hafnarfirði og formaður bæjarráðs og stjórnarkona í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga tjáð sig um stjórnarsetu sína í sambandinu. Skoðun 18. mars 2025 15:31
Þingmanni blöskrar svör Rósu Þingmaður Samfylkingarinnar segir galið að Rósa Guðbjartsdóttir ætli að halda áfram störfum í bæjarstjórn og sitja í stjórn sveitarfélaga meðfram þingmennsku. Það feli í sér hagsmunaárekstur og trúnaðarbrest við sveitarfélögin í landinu. Innlent 18. mars 2025 12:44
Gæti hætt en ekki viss: „Ég vinn bara mjög langa vinnudaga“ Þingmaður Sjálfstæðisflokksins ætlar ekki að hætta í bæjarstjórn í Hafnarfirði á næstu vikum. Þá ætlar hún einnig að halda setu áfram í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga. Hún sé með heilan hug á báðum stöðum og hún vilji fylgja ákveðnum málum eftir. Innlent 18. mars 2025 10:49
Þjóðin verði að átta sig á að fimmtungur sé ekki íslenskumælandi Logi Már Einarsson menningarráðherra segir það kýrskýrt að íslensk tunga eigi að vera í öndvegi í opinberri stjórnsýslu sem og annars staðar en að þjóðin verði að átta sig á því að fimmtungur hennar sé ekki íslenskumælandi. Það sé því sjálfsagt að koma til móts við þennan hóp og nota ensku þegar nauðsynlegum upplýsingum skal miðlað til þeirra. Innlent 17. mars 2025 21:14
„Allt það besta og allt það versta“ sé í skólum landsins Mennta- og barnamálaráðherra segir mál Breiðholtsskóla einstaklega flókið en vandamálið sé ekki í skólanum sjálfum heldur sé skólinn að spegla samfélagið. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins benti á að víkja megi börnum ótímabundið úr skóla. Innlent 17. mars 2025 20:33
Menningarráðherra hvetur opinber fyrirtæki til að að bjóða upp á ensku Snorri Másson þingmaður Miðflokksins gagnrýnir menningarráðherra fyrir meinta linkind í málefnum íslenskrar tungu. Hann segist skynja uppgjafartón í orðræðu hans um málaflokkinn. Menningarráðherra hvatti fjölmiðla og opinber fyrirtæki til að bjóða upp á ensku í upplýsingamiðlun. Innlent 17. mars 2025 18:49
„Þá erum við komin út á hálan ís“ Ekki liggur fyrir hvenær möguleg athugun stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis á byrlunarmálinu svokallaða verður tekið fyrir hjá nefndinni en hún fundaði í dag. Þingmaður Samfylkingarinnar í nefndinni og fyrrum fjölmiðlamaður gagnrýnir áformin harðlega og segir Alþingi ekki eiga að skipta sér af málinu. Innlent 17. mars 2025 12:22
Varar við aðkomu þingsins og segir Vilhjálm hafa talað ógætilega Það tíðkast ekki í alvöru lýðræðisríkjum að stjórnmálamenn „rannsaki fréttaflutning fjölmiðla, grennslist fyrir um heimildarmenn þeirra eða yfirheyri fréttamenn um vinnubrögð“. Innlent 17. mars 2025 07:46
Við erum ekki Rússland Líkt og fram hefur komið í viðtölum við Vilhjálm Árnason, formann stjórnskipunar og eftirlitsnefndar Alþingis, hefur nefndinni borist erindi þar sem óskað er eftir því að sett verði á laggirnar rannsóknarnefnd Alþings vegna "byrlunarmálsins" svonefnda. Ekki er óalgengt að borgarar óski eftir því að þingnefndir skoði mál en það er afar fátítt að stofnuð hafi verið sérstök rannsóknarnefnd og hefur það reyndar bara gerst fimm sinnum. Skoðun 17. mars 2025 07:32
Gripið verði inn í strax í leikskóla Ingibjörg Isaksen, þingmaður Framsóknarflokksins, og Kolbrún Baldursdóttir, þingmaður Flokks fólksins, segja það brýnt að gripið sé inn í mál barna með fjölþættan vanda strax í leikskóla. Innlent 16. mars 2025 12:04
Fagnar að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd skoði byrlunarmálið Formaður Blaðamannafélagsins fagnar því að byrlunar- eða skæruliðamálið svokallaða verði tekið fyrir í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis. Rannsaka þurfi málið heildstætt og rýna í kjölinn á rannsókn lögreglunnar á Norðurlandi eystra. Innlent 14. mars 2025 16:15
Ingibjörg æf vegna bókunar meirihlutans í borginni Þingmaðurinn Ingibjörg Isaksen nær vart upp í nef sér vegna bókunar meirihlutans í Reykjavík þar sem þeir segja að felling trjáa í Öskjuhlíð sé ekki í þágu borgarbúa. Meirihlutinn vill að ríkið borgi brúasann. Innlent 14. mars 2025 15:45
Vilja vita hvort Jón Gunnarsson hafi brotið siðareglur þingmanna Náttúruverndarsamtök Íslands hafa sent forsætisnefnd Alþingis erindi um hvort að Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hafi brotið siðareglur fyrir alþingismenn ef hann þáði boð eiganda Hvals hf. á alþjóðlega ráðstefnu. Jón hefur sagst hafa greitt allan kostnað við ferðina sjálfur þrátt fyrir orð sonar hans um annað á leynilegri upptöku. Innlent 14. mars 2025 09:41
Vill rannsóknarnefnd Alþingis vegna byrlunarmálsins Lögmaður Páls Steingrímssonar skipstjóra hefur óskað eftir því við formann stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar að sett verði á fót rannsóknarnefnd Alþingis til þess að rannsaka byrlunarmálið svokallaða. Slíkar rannsóknarnefndir hafa örsjaldan verið skipaðar. Innlent 14. mars 2025 09:21
Jóhann Páll: Vertu í liði með náttúrunni ekki gegn henni Ákvörðun umhverfisráðherra um 600 milljóna króna niðurskurð til umhverfis- og náttúruverndar hefur vakið furðu á meðal okkar umhverfisverndarsinna. Ráðherrann segir niðurskurðinn engin áhrif hafa á lögbundin verkefni eða aðgerðir sem þegar hafi verið ákveðið að ráðast í. En er það örugglega svo? Skoðun 14. mars 2025 08:01
Ætlar að finna jarðvarma á köldum svæðum Umhverfisráðherra er sannfærður um að hægt sé að finna jarðvarma á köldum svæðum og hefur blásið til átaks í því skyni. Verja á milljarði í verkefnið á næstum árum. Bylting ef vel tekst til, að sögn bæjarstjóra Vestmannaeyja. Innlent 13. mars 2025 20:30
Jón Gnarr vill skikkjur og hárkollur á þingmenn Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar, hélt enn áfram að höggva í sama knérunn og gerði að umtalsefni klæðaburð sinn og annarra þingmanna í ræðu sem hann flutti í dagskrárliðnum störf þingsins nú rétt í þessu. Innlent 13. mars 2025 10:56
Stórafmælið hefur afleiðingar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins er fimmtugur í dag. Hann segir það hafa afleiðingar, því nú er hann á leið í smá frí og tekur varaþingmaður sæti hans á þingi á meðan. Hann segist ekki vera búinn að ákveða hvert hann ætli, finnst þetta undarleg tímamót en segir að nú gefist sér tími í bókaskrif. Lífið 12. mars 2025 14:52
Stöndum með börnum Við búum í landi ofgnóttar, það má segja að hér drjúpi smjör af hverju strái. Náttúran hefur gefið okkur margt t.d.: Hreina loftið, heitt vatn úr iðrum jarðar, yndislegt kalt vatn, sjávarauðlindina, græna raforku og hrein íslensk matvæli. Skoðun 12. mars 2025 12:47
Telur tillögu um afnám áminningar á leið í ruslið Hildur Sverrisdóttir þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins beindi fyrirspurn til Daða Más Kristóferssonar fjármála- og efnahagsráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum: Hvað verður um tillöguna um að fella brott áminningar til opinberra starfsmanna? Innlent 11. mars 2025 14:08
Viðbúinn hærra vöruverði og færri ferðamönnum vegna tolla Mögulegt tollastríð gæti haft umtalsverð áhrif á íslenskan almennig að mati seðlabankastjóra. Vöruverð gæti hækkað og ferðamenn síður skilað sér til landsins. Seðlabankinn vinnur að greiningu á líklegum áhrifum. Viðskipti innlent 11. mars 2025 12:14
Bein útsending: Ásgeir og Þórarinn ræða skýrslur peningastefnunefndar Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis heldur opinn fund í dag þar sem fjallað verður um skýrslur peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands til Alþingis fyrir árið 2024. Innlent 11. mars 2025 08:24
Að komast frá mömmu og pabba Að kaupa sína fyrstu fasteign er stórt og spennandi skref, en fyrir marga unga Íslendinga virðist það oft vera nánast ómögulegt verkefni. Hátt fasteignaverð, strangar lánareglur og síhækkandi daglegur kostnaður hafa gert það að verkum að mörg ungmenni eiga erfitt með að kaupa sína fyrstu íbúð án aðstoðar. Skoðun 10. mars 2025 10:47
Efast um að ráðherra sé í herferð gegn fjölmiðlum Formaður Blaðamannafélags Íslands segir skorta rök fyrir stefnubreytingu ríkisstjórnarinnar þegar kemur að styrkjum til fjölmiðla sem boðaðir hafa verið. Varaformaður Sjálfstæðisflokksins segir útlit fyrir að refsa eigi fjölmiðlum sem reynst hafi erfiðir stjórnvöldum. Innlent 7. mars 2025 13:00
Skilur ekkert í afstöðu samtakanna Til stendur að snúa umdeildri breytingu á Búvörulögum í fyrra horf áður en Hæstiréttur kveður upp sinn dóm um lögin. Formaður Bændasamtakanna segir breytingu í fyrra horf vega að hagsmunum bænda, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekanda segir afstöðu samtakanna óskiljanlega. Innlent 6. mars 2025 19:23
Leikskólarnir ekki fyrst og fremst fyrir foreldra „Stærsti vandi leikskólanna í dag er skortur á leikskólakennurum. Og hvernig ætla einkafyrirtækin að fá leikskólakennara? Þau ætla að hækka launin þeirra. Er þetta ekki sama fólk og kvartar yfir því oft á tíðum ef laun kennara eru hækkuð,“ sagði Ásthildur Lóa Þórsdóttir, mennta- og barnamálaráðherra í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Innlent 6. mars 2025 12:32
Aukið fjármagn til að stytta bið Heilbrigðisráðherra ætlar að setja auka þrjú hundruð og fimmtíu milljónir króna í baráttuna við vímuefnavanda. Með því vonast ráðherrann til að hægt verði að stytta bið eftir úrræðum og koma í veg fyrir sumarlokanir. Innlent 6. mars 2025 12:06
„Ríkismiðillinn eins og púkinn á fjósbitanum“ Snorri Másson þingmaður Miðflokksins kvaddi sér hljóðs á Alþingi í dag, í dagskrárliðnum Störf þingsins, og fór yfir það sem hann kallaði brenglað rekstrarumhverfi fjölmiðla á Íslandi. Innlent 5. mars 2025 15:53