England

England

Höfuðborg: London. Mannfjöldi: 58,6 milljónir (2024). Flatarmál: 132.932 ferkílómetrar.

Fréttamynd

Starmer segir af sér

Keir Starmer hyggst segja af sér sem leiðtogi breska Verkamannaflokksins og forsætisráðherra Bretlands. Hann mun gegna embættunum þar til að nýr leiðtogi Verkamannaflokksins hefur verið kjörinn í haust. 

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Konungur Norðursins sækir að Starmer

Andy Burnham, fyrrverandi borgarstjóri Manchester og rísandi stjarna innan breska Verkamannaflokksins tryggði sér sæti á breska þinginu í aukakosningu sem fram fór í Makerfield kjördæminu í gær.

Erlent
Fréttamynd

Jökull, Goggi og Róbert Wessman í leik­húsi draumanna

Rauðu djöflarnir í Manchester United unnu glæstan 3-2-sigur á erkifjendum sínum í Liverpool á Old Trafford í gær. Róbert Wessman, forstjóri Alvotech, mætti með fríðu föruneyti á völlinn og fylgdist með sínum mönnum fara með sigur af hólmi.

Lífið
Fréttamynd

Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn

Essa Suleiman, 45 ára bresk-sómalskur maður, hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps eftir að hann stakk tvo menn af gyðingaættum í Lundúnum. Hann er talinn hafa stungið annan mann fyrr um daginn.

Erlent
Fréttamynd

Vilja festa símabannið í lög

Ráðamenn í Englandi vilja setja það í lög að nemendum verði bannað að vera með síma í skólum þar í landi. Jacqui Smith, menntamálaráðherra, sagði á breska þinginu í dag að lögð yrði fram breytingartillaga á skólalögum þar sem forsvarsmönnum skóla yrði skylt að banna síma.

Erlent
Fréttamynd

Banksy opin­beraður, enn einu sinni

Hulunni hefur enn einu sinni verið svipt af götulistamanninum Banksy, sem hefur í rúma þrjá áratugi farið huldu höfði, að mestu. Hann er fæddur 1973 sem Robin Gunningham og er frá Bristol í Englandi. Hann breytti þó nafni sínu í David Jones til að eiga auðveldara með að fara huldu höfði.

Erlent
Fréttamynd

John Alford fannst látinn í fangelsinu

Leikarinn John Alford er látinn. Hann lést föstudaginn 13. mars í HMP Bure fangelsinu í Norfolkfangelsi, tveimur mánuðum eftir að hann var dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn tveimur unglingsstúlkum. 

Erlent
Fréttamynd

Soham-morðinginn látinn

Ian Huntely, sem myrti tvær ungar stúlkur í Soham árið 2002, lést á sjúkrahúsi eftir að hafa orðið fyrir árás í hámarksöryggisgæslufangelsi. Hann starfaði sem húsvörður í skóla stúlknanna.

Erlent
Fréttamynd

Andrew látinn laus

Andrew fyrrverandi Bretaprins hefur verið látinn laus úr haldi lögreglu á sjöunda tímanum í dag. Hann var handtekinn á heimili sínu í Wolferton í morgun vegna rannsókna á meintum leka á trúnaðargögnum, meðal annars til milljarðamæringsins og barnaníðingsins Jeffrey Epstein.

Erlent
Fréttamynd

Andrew hand­tekinn á heimili sínu

Breska lögreglan mætti í morgun heim til Andrew fyrrverandi Bretaprins við Sandringham höll og handtók hann. Vísir fylgist með málinu í vakt sem finna má neðst í fréttinni. Andrew á afmæli í dag og er 66 ára gamall.

Erlent