Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Einn var fluttur undir læknishendur eftir að tveir bílar rákust á í kjölfar framúraksturs á Hrútafjarðarhálsi á Norðvesturlandi á sjöunda tímanum í kvöld. Þrír voru í bílunum en sá sem var fluttur með sjúkrabíl er ekki alvarlega slasaður. Lögreglan biðlar til fólks að sýna þolinmæði en tvö keimlík slys hafa orðið á Norðvesturlandi í kvöld. Innlent 3.8.2026 18:26
Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Verulega harður árekstur þriggja bíla varð á sjötta tímanum í dag þegar ökumaður ætlaði sér að taka fram úr bílaröð á Hringveginum skammt frá Þrístöpum á Norðvesturlandi. Miklar bílaraðir hafa myndast á vegkaflanum en mikil umferð hefur verið á svæðinu í dag. Enginn er alvarlega slasaður en tveir af þremur bílum eru óökufærir að sögn lögreglu. Innlent 3.8.2026 17:55
Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Kattarauga nefnist friðlýst tjörn í Vatnsdal í Húnaþingi sem þykir sérstök sökum þess að á henni eru tvær fljótandi eyjar. Þjóðsagan segir að þar sé falin gullkista. Innlent 28.7.2026 23:26
Rabarbari hafinn til vegs og virðingar á Blönduósi Húnvetningar efna til rabarbarahátíðar á Blönduósi næstkomandi laugardag, 27. júní. Aðstandendur segjast vilja upphefja rabarbarann og kynna um leið allskonar rétti sem vinna má úr honum, eins og bjór, saft og freyðivín. Innlent 23. júní 2026 09:19
Símasamband verra eftir að slökkt var á eldri sendum Miklar kvartanir vegna verra símasambands heyrast frá Norðurlandi eftir að slökkt var á gömlu farsímakerfunum. Oddviti Húnabyggðar segir brýnt að þétta netið með því að fjölga nýjum sendum. Innlent 18. júní 2026 22:44
Malbika í gegnum hólana í Vatnsdal Íbúar Vatnsdals í Húnaþingi sjá fram á umtalsverðar vegarbætur með lagningu bundins slitlags á þrettán kílómetra vegarkafla. Vanda þarf sérstaklega til verksins þar sem kaflinn liggur í gegnum friðlýsta Vatnsdalshóla. Innlent 17. júní 2026 07:22
Húnvetningar sjá fram á mikla fjölgun starfa Framkvæmdir eru hafnar við tvöföldun gagnavers Borealis við Blönduós til að mæta þörfum gervigreindarfyrirtækja og kalla þær á allt að tvöhundruð manns í vinnu á verktíma. Oddviti Húnabyggðar segir að milli þrjátíu og fjörutíu ný varanleg störf séu að verða til í héraðinu vegna gagnaversins. Innlent 16. júní 2026 07:07
Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Laxveiðitímabilið er að hefjast þessa dagana í ám landsins, þar á meðal í Vatnsdalsá í Húnaþingi. Hinn heimsfrægi tónlistarmaður Eric Clapton er einn þriggja leigutaka Vatnsdalsár. Innlent 11. júní 2026 06:06
Um mögulega 20 km styttingu Hringvegar á Norðurlandi vestra Nú styttist væntanlega mjög í að Alþingi samþykki samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026-2030 auk frumvarps til laga um nýtt innviðafélag sem annist gerð vega og annarra samgöngumannvirkja og innheimti gjald fyrir notkun þeirra. Skoðun 9. júní 2026 10:15
„Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ Fjölmiðlamaðurinn Atli Fannar Bjarkason og fjölskylda hans týndu „enn og aftur“ tuskudýrinu Sæta Stebba á ferðalagi um Norðurland. Ævintýralemúrinn hefur einstakt lag á að týnast, tvívegis verið grafinn lifandi og varði nokkrum á golfvellinum í Öndverðarnesi. Lífið 4. júní 2026 15:19
Lokatölur í Húnabyggð: D listinn bætir við sig og nær meirihluta D-listinn í Húnabyggð bætti við sig manni í sveitarstjórnarkosningunum í gær og á nú fimm sveitarstjórnarmenn af níu. Hann ræður þannig meirihluta. Innlent 17. maí 2026 09:40
Að kjósa af yfirvegun Ég man ekki allt úr æsku minni. Minnið virkar sjaldan þannig. Það sem situr eftir eru minningarbrot, í ljóma fortíðar og á stangli. Skoðun 7. maí 2026 20:33
Skíðagöngumennirnir komnir í skjól Björgunarsveitir hafa nú náð til skíðagönguskíðamanna sem voru á Hofsjökli og óskuðu aðstoðar. Þeir hafa verið flutt í skjól og unnið er að því að ná búnaði þeirra einnig niður af jöklinum. Innlent 13. mars 2026 15:47
Dæmd fyrir að slasa farþega þegar hún sofnaði undir stýri rútu Kona sem sofnaði undir stýri hópferðabifreiðar sem lenti utan vegar sunnan við Blönduós árið 2023 var dæmd í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi. Hún var sakfelld fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi vegna áverka sem þrír farþegar hlutu í slysinu. Innlent 20. febrúar 2026 14:53
Stytting framhjá Blönduósi ekki á samgönguáætlun Hringvegurinn mun styttast umtalsvert á nokkrum köflum á Suðausturlandi á næstu tíu til fimmtán árum. Hins vegar er ekki gert ráð fyrir styttingu framhjá Blönduósi, samkvæmt áformum sem kynnt eru í samgönguáætlun. Innlent 22. desember 2025 21:51
„Við erum með stórt sár á sálinni“ Ellefu manna fjölskylda slapp lygilega vel úr alvarlegu bílslysi á Þverárfjallsvegi á leið sinni úr skírnarveislu á Sauðarkróki. Fjölskyldan sem taldi afa og ömmu, þrjú uppkomin börn þeirra og fjögur barnabörn þeirra ferðaðist á tveimur bílum, einn fyrir framan annan, þegar bíll þveraði veginn og skall á bílunum tveimur með þeim afleiðingum að báðir fóru út af og annar valt. Innlent 26. nóvember 2025 19:02
Allir bílarnir ónýtir og mildi að ekki fór verr Varðstjóri hjá lögreglunni á Norðvesturlandi segir mildi að ekki hafi farið verr þegar að tvö umferðarslys urðu með um fimmtán mínútna millibili á svæðinu í gær. Aksturskilyrði versnuðu mjög skyndilega. Vegurinn hafði ekki verið hálkuvarinn. Innlent 24. nóvember 2025 12:02
Þrír fluttir með þyrlu en enginn í lífshættu eftir tvo árekstra á Norðvesturlandi Þrír voru fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar til Reykjavíkur eftir að tvö umferðarslys urðu á svipuðum tíma á Norðurlandi vestra síðdegis í dag, við Blönduós annars vegar og í Miðfirði hins vegar. Allir hinna slösuðu eru komnir undir læknishendur en enginn er talinn í lífshættu, að sögn viðbragðsaðila. Innlent 23. nóvember 2025 22:09
Þriggja fólksbíla árekstur nálægt Blönduósi Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið ræst út eftir að árekstur varð milli þriggja fólksbíla á Þverárfjallsvegi í Austur-Húnavatnssýslu upp úr klukkan 16 í dag. Tólf manns voru í bílunum. Einhverjir hafa verið fluttir undir læknishendur. Miklar umferðartafir eru á Norðurlandi vestra en annað bílslys varð á svæðinu á svipuðum tíma. Innlent 23. nóvember 2025 17:47
Hyggjast opna lágvöruverslun og Orkustöð á Blönduósi Drangar hf. og félag í eigu InfoCapital ehf. hafa undirritað samning um uppbyggingu verslunar og þjónustu á Blönduósi. Fyrirhugað er að opna lágvöruverslun og veitingaþjónustu ásamt eldsneytissölu, hraðhleðslu og bílaþvottastöð í bænum. Viðskipti innlent 24. október 2025 10:08
Banaslys á Skagavegi 2024: Drukknaði eftir að hafa misst stjórn í beygju Meginorsök banaslyss sem varð á Skagavegi í september á síðasta ári var að ökumaður missti stjórn á bílnum í beygju á malarvegi, ók á vegrið einbreiðrar brúar, og hafnaði á hvolfi út í á. Ökumaðurinn, sem 34 ára karlmaður frá Hong Kong, lést í slysinu en farþeginn slasaðist lítið. Innlent 29. september 2025 14:33
Flugvél með fjórum innanborðs fór út af flugbraut Eins hreyfils flugvél hlekktist á við lendingu á Blönduósflugvelli og lenti utan flugbrautar á fimmta tímanum í dag. Flugmaður og þrír farþegar voru fluttir til skoðunar á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Blönduósi. Innlent 15. september 2025 17:26
Þrír laxar reyndust úr sjókví í Dýrafirði Matvælastofnun hefur staðfest að þrír laxar sem fundust í Haukadalsá í vikunni reyndust eldisfiskar úr sjókví í Dýrafirði. Innlent 21. ágúst 2025 17:47
„Þetta er innrás“ Formaður Veiðifélags Vatnsdalsár segir stjórnvöld hafa skilað auðu í málum er varða sjókvíaeldi og verndun íslenska laxastofnsins. Niðurstöðu úr erfðarannsókn á löxum sem veiddust í Haukadalsá í síðustu viku er enn beðið. Innlent 20. ágúst 2025 13:01