Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Uppbygging sautján hæða hótelturns Radisson Red við Skúlagötu er sögð í uppnámi eftir að verktakar voru óvænt sendir heim í gær og byggingarsvæðinu lokað. Banki er sagður hafa lokað fyrir greiðslur til framkvæmdafyrirtækisins. Viðskipti innlent 3.11.2026 19:47
Daði og Guðlaugur kaupa út aðra hluthafa Visku sjóða Tveir af stofnendum Visku sjóða, þeir Daði Kristjánsson og Guðlaugur Steinarr Gíslason, hafa keypt út fjóra aðra hluthafa sjóðastýringarfélagsins og fara nú saman með allt hlutafé þess. Félagið breikkaði út starfsemina sína á liðnu ári með stofnun nýs hlutabréfasjóðs sem er um tveir milljarðar að stærð. Innherji 3.11.2026 14:54
Dómari í eigin sök? Ef grafið er undan trúverðugleika tilnefningarnefnda má búast við því að hluthafar, sem bera endanlega ábyrgð á kjöri stjórnar, leggi minna upp úr tillögum nefndanna og leiti þá annarra leiða við mat á frambjóðendum til stjórna og ákvörðun um ráðstöfun atkvæða. Umræðan 3.11.2026 13:00
Yfirmaður hlutabréfasjóða hjá Íslandssjóðum hættir störfum Mogens Mogensen, forstöðumaður hlutabréfasjóða hjá Íslandssjóðum, hefur látið af störfum hjá sjóðastýringarfyrirtækinu eftir að hafa starfað þar um langt árabil. Innherji 31. október 2026 13:35
Minni loðnuveiði og hærri fjármagnskostnaður lækka verðmat SVN Þrátt fyrir að útlit sé fyrir eitt besta rekstrarár í sögu Síldarvinnslunnar (SVN) þá hefur verðmat á félaginu verið lækkað nokkuð, samkvæmt nýrri greiningu. Minni loðnuveiði á næsta ári, hækkandi fjármagnskostnaður og styrking krónunnar vega þungt í endurskoðuðu mati hlutabréfagreinenda. Innherjamolar 31. október 2026 12:39
„Miður að við séum komin á þennan stað“ Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna segir miður að „menn séu komnir á þennan stað“ eftir að Icelandair sendi póst beint á félagsmenn með samningstillögum í kjaraviðræðum. Engin samskipti hafa verið á milli félagsins og Icelandair í kjölfarið. Innlent 31. október 2026 12:35
Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Samkeppniseftirlitið hefur samþykkt kaup Ása, áður Símans, á Öryggismiðstöð Íslands og Opnum kerfum. Samþykkið er þó háð því skilyrði að Öryggismiðstöðin bjóði ekki betri kjör á öryggisþjónustu ef kaupandi er í fjarskiptaviðskiptum við Símann. Viðskipti innlent 30. október 2026 14:35
Bláa lónið á markað í nóvember Á hluthafafundi Bláa Lónsins hf. í dag var formlega samþykkt að efna til almenns hlutafjárútboðs og óska eftir töku hlutabréfa félagsins til viðskipta á aðalmarkað Nasdaq Iceland. Hluthafar samþykktu einnig kaupréttaráætlun fyrir allt fastráðið starfsfólk samstæðunnar. Viðskipti innlent 30. október 2026 13:17
Kostnaðaraukning umfram spár vegur á móti kröftugum tekjuvexti Íslandsbanka Kröftugur vöxtur vaxtatekna Íslandsbanka á þriðja ársfjórðungi dugði ekki til að skila afkomu í samræmi við væntingar markaðarins, einkum vegna meiri rekstrarkostnaðar og virðisrýrnunar útlána. Greinendur telja uppgjörið engu að síður gott og benda á sterkan vöxt kjarnatekna. Innherjamolar 30. október 2026 10:37
Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Arion banki hefur ákveðið að ganga til einkaviðræðna við Íslensk verðbréf fyrir hönd óstofnaðs sérhæfðs sjóðs um kaup sjóðsins á öllu hlutafé dótturfélags bankans, Landeyjar ehf., í Blikastaðalandi ehf., sem á og þróar Blikastaðaland í Mosfellsbæ. Viðskipti innlent 30. október 2026 09:43
Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Austur Holding AS hyggst, með fyrirvara um endanlega samningsgerð, veita ábyrgð að fjárhæð 25 milljónir evra, um það bil 3,4 milljarða króna, vegna lánasamnings Kaldvik AS við lánveitendur sína. Ísfélag hf. er 43,4 prósenta hluthafi í Austur Holding AS. Kaldvík stefnir á stóra hlutafjáraukningu á yfirstandandi ársfjórðungi. Viðskipti innlent 30. október 2026 09:30
Kaldvík boðar fjórtán milljarða hlutafjáraukningu eftir röð áfalla í rekstri Fiskeldisfyrirtækið Kaldvík hyggst ráðast í hlutafjáraukningu upp á að lágmarki fjórtán milljarða króna fyrir áramót sem er forsenda þess að samkomulag við lánveitendur um langtímafjármögnun geti tekið gildi. Stærð hlutafjárútboðsins er umtalsvert meiri en sem nemur núverandi markaðsvirði Kaldvíkur, en gengi félagsins hefur hríðfallið að undanförnu. Innherji 30. október 2026 09:26
Tekjur Nova í hæstu hæðum Nova Klúbburinn skilaði hæstu tekjum í sögu sinni á þriðja ársfjórðungi, en þetta er fyrsti heili fjórðungurinn eftir að félagið Ofar kom inn í samstæðuna. Tekjur námu 5,8 milljörðum króna og hagnaður jókst um 24 prósent milli ára. Viðskipti innlent 29. október 2026 22:52
Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Stjórn Þristasjóðs, Flugsafn Íslands og DC-3 Þristavinafélagið hafa komist að samkomulagi um að eignarhald flugvélarinnar TF-NPK, eða Þristsins Páls Sveinssonar, færist til Flugsafns Íslands á Akureyri og til framtíðarvarðveislu. Viljayfirlýsing þess efnis var undirrituð í Flugsafninu á Akureyrarflugvelli í dag. Innlent 29. október 2026 21:43
Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Hagnaður af rekstri Íslandsbanka nam 7,3 milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi þessa árs. Jókst hann ár frá ári en bankinn hagnaðist um 6,9 milljarða á sama þriggja mánaða tímabili árið 2025. Alls hefur Íslandsbanki hagnast um 21,8 milljarða króna á fyrstu níu mánuðum þessa árs, samanborið við 19,3 milljarða á sama tímabili árið 2025. Viðskipti innlent 29. október 2026 16:00
„Óskiljanlegt“ að nær alltaf sé sjálfkjörið í tilnefningarnefndir félaga Hluthafar skráðra félaga ættu að beita sér mun meira við val á fulltrúum í tilnefningarnefndir, að mati stjórnarformanns Íslandsbanka, sem þykir „óskiljanlegt“ af hverju sé nær undantekningarlaust sjálfkjörið í þær. Framkvæmdastjóri Birtu segir að innkoma tilnefningarnefnda hafi „stórbætt“ fyrirkomulagið um hverjir eigi að taka sæti í stjórnum skráðra félaga. Innherji 29. október 2026 15:36
Mikill samdráttur í framlegð N1 dregur niður afkomu Festar Mikill samdráttur í framlegð eldsneytissölu hjá N1 vó þungt í afkomu Festar á þriðja ársfjórðungi, sem var talsvert undir spám greinenda. Krónan skilaði hins vegar kröftugum rekstrarbata og var eini helsti starfsþáttur samstæðunnar sem var í takt við væntingar markaðaðarins. Innherji 29. október 2026 11:45
Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Nýr alþjóðaflugvöllur verður opnaður við Ilulissat, þriðja stærsta bæ Grænlands, í dag. Bæði Icelandair og Air Greenland hyggjast fljúga þangað á Airbus-þotum en hann er með 2.200 metra langri flugbraut, sem leysir af völl við hliðina með aðeins 845 metra langri braut. Innlent 29. október 2026 10:50
Arion telur byggingarlánasafnið þola frekari verðlækkanir og sölutafir Hægari sala nýbygginga er ein helsta sértæka áhættan í útlánasafni Arion, sem fjármagnar um 15 til 20 prósent nýrra íbúða sem ætlaðar eru til sölu á markaði, en bankinn telur álagspróf sýna talsvert svigrúm til að mæta bæði sölutöfum og verðlækkunum á íbúðamarkaði. Arion skilaði yfir sextán prósenta arðsemi á þriðja fjórðungi, sem var í samræmi við spár, og var afkoman drifin áfram af kröftugum vaxtatekjum á meðan þóknanatekjur gáfu eftir við krefjandi markaðsaðstæður. Innherji 29. október 2026 09:58
Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi er í samræmi við markmið að sögn bankastjóra. Hann segir áform stjórnvalda um að hækka bankaskatt um ríflega 75 prósent þó vera skammsýna ráðstöfun og það sé nauðsynlegt að til staðar sé framtíðarsýn um starfsumhverfi fyrirtækja. Skattahækkunin muni í tilfelli Arion banka nema um 1.700 milljónum á ári. Viðskipti innlent 28. október 2026 17:10
Einskiptiskostnaður skyggir á afkomubata í rekstri Ása Uppgjör Ása, áður Símans, fyrir þriðja ársfjórðung sýnir merki um bata í undirliggjandi rekstri samstæðunnar en einskiptiskostnaður vegna yfirtaka og skipulagsbreytinga setti hins vegar talsvert mark á afkomuna, að sögn hlutabréfagreinenda. Tekjuvöxtur í fjarskiptastarfseminni reyndist meiri en vænst var og kostnaðaraðhald hefur batnað. Innherjamolar 28. október 2026 08:37
Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Þorgerður Kristín Þráinsdóttir forstjóri ÁTVR segir til skoðunar að hefja heimsendingu á vörum Vínbúðarinnar. Það væri aðallega til að auka þjónustu og aðgengi að vöruúrvali sem er meira í netverslun þeirra en í verslunum þeirra. Viðskipti innlent 28. október 2026 07:58
Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Afkomendur síðasta böðulsins á Íslandi búa enn á Illugastöðum á Vatnsnesi, á jörðinni þar sem morðin voru framin sem leiddu til þess að þau Friðrik Sigurðsson og Agnes Magnúsdóttir voru hálshöggvin á Þrístöpum í Vatnsdalshólum árið 1830. Þetta var síðasta aftaka sem fram fór á Íslandi. Innlent 28. október 2026 06:00
Vill setja fimmtungshlut í Landsvirkjun á markað til að laða að erlenda fjárfesta Framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs telur að skráning Landsvirkjunar á hlutabréfamarkað og sala á minnihluta í fyrirtækinu gæti laðað erlenda fjárfesta til landsins og gert íslenska markaðinn, sem sé núna „í þriðju deild í ensku“, að álitlegri fjárfestingarkost. Hann segir jafnframt að það sé ekki „góður bragur á því“ að haldnir hafi verið reglulegir óformlegir fundir stjórnar orkufyrirtækisins án þátttöku fráfarandi forstjóra og er þeirrar skoðunar að slíkt fyrirkomulag samræmist tæplega leiðbeiningum um góða stjórnarhætti fyrirtækja. Innherji 27. október 2026 20:26