Chelsea og Manchester United hafi spurst fyrir um Klopp Marc Kosicke, umboðsmaður þýska knattspyrnustjórans Jurgen Klopp, segir að bæði Manchester United og Chelsea hafi bæði spurst fyrir um áhuga Þjóðverjans að gerast knattspyrnustjóri sinna liða þrátt fyrir að hann hafi ekki sagst ætla taka við öðru liði á Englandi eftir að hafa farið frá Liverpool. Enski boltinn 16. febrúar 2026 19:21
Hjólar í hræsnarann Ratcliffe: „Hann er sjálfur innflytjandi“ Enska knattspyrnugoðsögnin Gary Lineker lætur Jim Ratcliffe, einn af eigendum Manchester United heyra það eftir að sá síðarnefndi kvartaði yfir „gríðarlegum fjölda innflytjenda“ sem gert hefðu Bretland að „sinni nýlendu.“ Enski boltinn 14. febrúar 2026 09:01
Ratcliffe þykir leitt að hafa „móðgað sumt fólk“ Sir Jim Ratcliffe, hinn umsvifamikli jarðeigandi á Íslandi og einn eigenda Manchester United, hefur sent frá sér yfirlýsingu eftir að ummæli hans um innflytjendur í Bretlandi féllu í grýttan jarðveg. Enski boltinn 12. febrúar 2026 15:00
Forsætisráðherra og fleiri krefjast afsökunarbeiðni frá eiganda Man. United Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, sagði ummæli Sir Jim Ratcliffe um að innflytjendur hefðu „numið land“ í landinu vera „móðgandi og röng“ og krafðist þess að meðeigandi Manchester United bæðist afsökunar. Enski boltinn 12. febrúar 2026 06:32
Sjáðu ótrúlega dauðafærið sem Palmer klúðraði og öll mörkin úr enska Fjórir leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi og það var dramatískur viðsnúningur í þeim öllum. Sigurgöngur Manchester United og Chelsea enduðu og bæði Bournemouth og Newcastle unnu á útivelli. Enski boltinn 11. febrúar 2026 08:32
Engin klipping því Manchester United gerði jafntefli Mark frá Benjamin Sesko undir lok leiks tryggði Manchester United dramatískt jafntefli á útivelli gegn fallbaráttuliði West Ham í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Lokatölur 1-1. Enski boltinn 10. febrúar 2026 22:11
„Hann er kominn í rétta stöðu“ Miðjumaðurinn Bruno Fernandes, leikmaður Manchester United, hefur leikið einstaklega vel í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu. Hann hefur komið að 12 mörkum United í síðustu tíu leikjum liðsins. Í 22 leikjum í deildinni í vetur hefur hann skorað sex mörk og gefið tólf stoðsendingar. Enski boltinn 10. febrúar 2026 12:31
„Ég vissi að Carrick gæti orðið frábær stjóri“ Bruno Fernandes, fyrirliði Manchester United, hrósaði áhrifum og hæfileikum aðalþjálfarans Michael Carrick eftir að Manchester United vann sinn fjórða leik í röð síðan fyrrum miðjumaður félagsins tók við stjórnartaumunum á Old Trafford. Enski boltinn 9. febrúar 2026 06:31
Sjáðu fjórða sigur United, þrennu Palmer og tvennu Gyökeres Mörkin úr stórleikjum gærdagsins í ensku úrvalsdeildinni má sjá hér fyrir neðan. Manchester United fagnaði fjórða sigrinum í röð, Cole Palmer skoraði þrennu í fyrri hálfleik fyrir Chelsea og Viktor Gyökeres kom boltanum tvívegis í netið fyrir Arsenal. Enski boltinn 8. febrúar 2026 13:18
Farinn að leita að rakara og vill fá tíma 10. febrúar Frank Ilett, betur þekktur sem aðalmaðurinn á bak við The United Strand-samfélagsmiðilinn, hefur að eigin sögn bókað tíma í klippingu þriðjudaginn 10. febrúar, en það verður þá í fyrsta sinn í meira en ár sem hann fer í klippingu. Enski boltinn 7. febrúar 2026 23:17
United fagnaði fjórða sigrinum í röð Manchester United vann fjórða sigurinn í röð undir stjórn Michael Carrick er Tottenham heimsótti Old Trafford. Lokatölur 2-0 eftir mörk Bryan Mbeumo og Bruno Fernandes. Cristian Romero fékk rautt spjald í fyrri hálfleik sem eyðilagði leikinn fyrir gestina. Enski boltinn 7. febrúar 2026 12:02
Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford Það var nóg af mörkum í leikjum gærdagsins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Ekki var dramatíkin minni, Leikhús draumanna iðar af lífi og Dominic Solanke skoraði eitt af flottustu mörkum ársins gegn Manchester City. Enski boltinn 2. febrúar 2026 07:02
Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Knattspyrnugoðsögnin Jaap Stam, fyrrverandi varnarmaður Manchester United, AC Milan, Lazio, Ajax og hollenska landsliðsins, heimsótti fótboltaverslunina Jóa Útherja í samstarfi við Manchester United klúbbinn á Íslandi. Samstarf 30. janúar 2026 10:45
Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Patrick Dorgu, sem hefur skorað í síðustu tveimur leikjum Manchester United, er meiddur aftan í læri og verður frá í um tíu vikur. Enski boltinn 27. janúar 2026 11:45
Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Manchester United sótti 3-2 sigur á útivelli gegn Arsenal á Emirates leikvanginum í 23. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Varamaðurinn Matheus Cunha skoraði sigurmarkið eftir seint jöfnunarmark Mikel Merino. Enski boltinn 25. janúar 2026 18:30
Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Kai Rooney, sonur Manchester United goðsagnarinnar Wayne, fetaði í fótspor föður síns og spilaði með Manchester United á Old Trafford í gærkvöldi, í sigri gegn Derby County í FA bikar ungmenna. Enski boltinn 24. janúar 2026 10:25
Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Manchester United hefur gert samning við kvikmyndarisann Lionsgate um gerð sjónvarpsþáttaraðar í líkingu við „The Crown“. Enski boltinn 22. janúar 2026 06:33
Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Lisandro Martínez, miðvörður Manchester United, hefur skorað á Paul Scholes og Nicky Butt að endurtaka gagnrýni sína augliti til auglitis eftir að þeir sögðu að Erling Haaland myndi láta varnarmann Manchester United líta út eins og „lítið smábarn“ í Manchester-slagnum. Enski boltinn 21. janúar 2026 06:31
Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Í síðasta þætti af Sunnudagsmessunni á Sýn Sport var farið í reglulegan dagskrárlið sem nefnist Fylltu í eyðurnar. Enski boltinn 20. janúar 2026 15:33
„Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Antonio Conte þjálfari Napoli virtist skjóta aðeins á Ruben Amorim, fyrrverandi aðalþjálfara Manchester United, og gefa í skyn að hroki fyrri þjálfara hafi hindrað þroska Rasmus Höjlund sem framherja. Enski boltinn 20. janúar 2026 06:30
„Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Manchester United var öðrum fremur lið helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni eftir frábæran og sannfærandi sigur á nágrönnunum í Manchester City í fyrsta leik sínum undir stjórn Michael Carrick. Enski boltinn 19. janúar 2026 22:45
Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Bryan Mbeumo, sem kom Manchester United á bragðið í 2-0 sigrinum á Manchester City, var að vonum hæstánægður eftir leikinn á Old Trafford. Hann segir margt hafa breyst hjá United síðan hann fór í Afríkukeppnina í skömmu fyrir jól. Enski boltinn 17. janúar 2026 15:46
Draumabyrjun hjá Carrick Michael Carrick fékk sannkallaða draumabyrjun sem þjálfari Manchester United en liðið lagði Manchester City að velli, 2-0, í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Bryan Mbeumo og Patrick Dorgu skoruðu mörkin í seinni hálfleik. Enski boltinn 17. janúar 2026 14:25
Alveg sama hvað Roy Keane hefur að segja Michael Carrick segir háværa umræðu í kringum Manchester United ekki trufla sig og ummæli Roy Keane bíta ekkert á hann. Enski boltinn 17. janúar 2026 09:01
Carrick tekinn við Manchester United Michael Carrick hefur verið ráðinn þjálfari Manchester United út yfirstandandi tímabil. Frá þessu greinir Manchester United í yfirlýsingu í kvöld. Enski boltinn 13. janúar 2026 19:34
Hvað sagði verðandi þjálfari United í einkaviðtali við Sýn Sport? Fátt virðist koma í veg fyrir að Michael Carrick verði ráðinn þjálfari Manchester United út tímabilið. Fyrir rúmum tveimur mánuðum var Carrick í einkaviðtali við Sýn Sport þar sem hann svaraði spurningum um ferilinn, stöðu United, breytingar á fótboltanum og margt fleira. Enski boltinn 13. janúar 2026 14:31
Samningur í höfn hjá Carrick og Manchester United Manchester United hefur samkvæmt heimildum David Ornstein hjá The Athletic náð munnlegu samkomulagi við Michael Carrick og þjálfarateymi hans um að stýra liðinu út tímabilið. Enski boltinn 13. janúar 2026 09:04
Búast við því að Carrick verði kynntur hjá United innan tíðar Allt virðist benda til þess að Michael Carrick taki við sem þjálfari Manchester United og stýri liðinu út tímabilið. Enski boltinn 12. janúar 2026 16:32
Fæstir leikir hjá Man Utd síðan í fyrri heimsstyrjöld Manchester United féll í gær út úr ensku bikarkeppninni eftir tap fyrir Brighton & Hove Albion á heimavelli. Enski boltinn 12. janúar 2026 12:00
Carrick nú talinn líklegastur til að taka við Man Utd Manchester United hefur enn ekki staðfest hver muni taka við liðinu en samkvæmt breska ríkisútvarpinu er Michael Carrick nú talinn líklegastur til að verða ráðinn knattspyrnustjóri Manchester United til bráðabirgða. Enski boltinn 12. janúar 2026 09:00