Reykjavík

Reykjavík

Mannfjöldi: 138.772 (2025). Flatarmál: 244 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Grateful Dead á Sæ­brautinni

Það var heiðskírt í Reykjavík á föstudagskvöldið, sem telst orðið nægilegt tilefni til að menn taki eftir veðrinu, og um tíuleytið hafði Sæbrautin breyst í útileikhús. Ferðamenn stóðu þar með þrífætur og síma á lofti, sumir í nýjum dúnúlpum sem líklega höfðu verið keyptar fyrr um daginn með þeirri hugarró sem fylgir því að sjá ekki kortareikninginn fyrr en heim er komið.

Skoðun
Fréttamynd

Til­kynnt um tvær líkams­á­rásir

Einn var í nótt eða gærkvöldi handtekinn vegna líkamsárásar í hverfi 105. Greint er frá því í dagbók lögreglu í dag. Þar kemur fram að maðurinn hafi verið vistaður í fangaklefa. Einnig var óskað aðstoðar lögreglu vegna líkamsárásar í hverfi 101. Í dagbók kemur fram að gerandi hafi flúið af vettvangi áður en lögregla kom.

Innlent
Fréttamynd

Góð­kunningi lög­reglunnar grunaður um líkams­á­rás

Lögreglu á stöð eitt barst tilkynning um líkamsárás í miðbæ Reykjavíkur í morgun eða í dag. Þegar laganna verði bar að garði var gerandinn farinn af vettvangi en þó telur lögreglan sig vita um hvern ræðir og er málið í rannsókn. Ekki liggur fyrir um hversu alvarlega áverka var að ræða.

Innlent
Fréttamynd

Beitti úðavopni á veg­far­endur

Í nótt kom til átaka milli fólks eftir að einn beitti úðavopni á vegfarendur í miðborg Reykjavíkur. Sá var handtekinn vegna málsins og reyndist hann eftirlýstur af lögreglu. 

Innlent
Fréttamynd

Skemmti­stað lokað í mið­borginni vegna fjölda ung­menna

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lokaði skemmtistað í miðborg Reykjavíkur í gærkvöldi eða nótt eftir að afskipti voru höfð af talsverðum fjölda ungmenna undir aldri sem voru inni á staðnum, segir í dagbók lögreglu. Að auki voru tveir handteknir og vistaðir í fangaklefa, hvor vegna sinnar líkamsárásarinnar, annar í miðborg Reykjavíkur og hinn í hverfi 221 í Hafnarfirði.

Innlent
Fréttamynd

Þyrlan lenti við Hörpu

Landhelgisgæslan hélt upp á aldarafmæli sitt í dag með pomp og prakt. Þyrla Gæslunnar lenti tvisvar við Hörpu í dag, klukkan eitt og klukkan fjögur síðdegis í tilefni dagsins.

Innlent
Fréttamynd

Daði spreytir sig í Gettu betur

Fjármálaráðherra, rektor Háskóla Íslands og útvarpsstjóri etja kappi við sigurlið MH í Gettu betur í dag. Viðureignin er hluti af hátíðardagskrá í tilefni sextíu ára afmælis Menntaskólans við Hamrahlíð.

Innlent
Fréttamynd

Howie B og Hiraki Saka í Gamla bíó

Breski tónlistarmaðurinn og upptökustjórinn Howie B heldur tónleika í Gamla Bíó föstudaginn 16. október ásamt japanska myndlistarmanninum Hiraki Sawa. Saman koma þeir fram undir nafninu 3 Sticks. Sérstakur gestur 3 Sticks á tónleikunum verður tónskáldið og bassaleikarinn Borgar Magnason.

Tónlist
Fréttamynd

Stefna á að taka inn skjól­stæðinga í næstu viku

SÁÁ stefnir á að taka inn nýja skjólstæðinga tvo daga í næstu viku en lokað hefur verið fyrir innlagnar þar ótímabundið vegna mönnunarvanda. Forstjóri stofnunarinnar segir unnið að því að leysa vandann í samstarfi við heilbrigðisyfirvöld.

Innlent
Fréttamynd

Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða

Gunnar Dofri Ólafsson, sviðsstjóri þjónustu- og samskiptasviðs Sorpu, segir það til skoðunar að fara í mál við fólk sem skilur sorp eftir við grenndargáma sem ekki á að fleygja þar. Það varði við lög að skilja rusl eftir á víðavangi og hæsta sekt geti numið einni milljón króna.

Innlent
Fréttamynd

Barnið ekki í við­eig­andi öryggis­búnaði

Ökumaður var í gær kærður af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu fyrir að gæta þess ekki að hafa barn sitt í viðeigandi öryggis- og verndarbúnaði. Atvikið átti sér stað í umdæmi lögreglustöðvar 3 sem sinnir Breiðholti og Kópavogi. 

Innlent
Fréttamynd

Quang Lé frjáls sinna ferða

Quang Lé er í fyrsta sinn í tvö og hálft ár frjáls sinna ferða eftir að lögregla ákvað að fara ekki fram á framlengt farbann yfir honum. Hann er grunaður um mansal, peningaþvætti og skipulagða glæpastarfsemi.

Innlent
Fréttamynd

Líkams­á­rás í Breið­holti

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í gær tilkynning um líkamsárás í Efra-Breiðholti. Brotaþoli er sagður hafa hlotið minniháttar áverka og var einn handtekinn. Sá var í annarlegu ástandi og vistaður í fangageymslu.

Innlent
Fréttamynd

Barn stakk sig á sprautunál á skóla­lóðinni

Barn í Laugarnesskóla stakk sig á sprautunál sem það fann á skólalóð skólans í gær. Skólameistari biðlar til foreldra um að ræða við börn sín vegna málsins en brugðist var við málinu í samræmi við öryggisferla skólans.

Innlent
Fréttamynd

Hefja at­hugun á fjár­hags­að­stoð Reykja­víkur­borgar

Mikilvægt er að vinnufært fólk festist ekki á fjárhagsaðstoð og komist aftur út á vinnumarkað, segir Hildur Björnsdóttir borgarstjóri. Hún styður athugun endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar á aðstoðinni, þar sem meðal annars er óskað eftir upplýsingum um þjóðerni þeirra sem þiggja hana.

Innlent
Fréttamynd

Boða stórsókn í skóla- og mennta­málum í Reykja­vík

Unnið er að nýrri aðgerðaáætlun í skóla- og menntamálum í leik- og grunnskólum í Reykjavík. Nýr meirihluti hefur boðað til samráðsfundar með fjölbreyttum fulltrúum heimilis og skóla. Björg Magnúsdóttir, forseti borgarstjórnar, segir ekki hafa verið nógu skýran fókus á skóla- og menntamálum í Reykjavík og að nýr meirihluti ætli að breyta því. Það sé stórsókn og hún viti að það sé stórt orð en þau ætli að reyna að standa undir því.

Innlent