Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina

Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina

Vetrarólympíuleikar fara fram í Mílanó og Cortina d'Ampezzo á Ítalíu dagana 6. til 22. febrúar 2026.

Fréttamynd

Fjórar með nóró daginn fyrir fyrsta leik á ÓL

Finnska kvennalandsliðið í íshokkí hefur orðið fyrir barðinu á nóróveirunni á versta tíma, eða daginn fyrir fyrsta leik liðsins á Vetrarólympíuleikunum á Ítalíu. Önnur lið reyna nú að forðast smit.

Sport

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

„Hún er í af­neitun“

Formaður Skíðasambands Íslands segir Hólmfríði Dóru Friðgeirsdóttur vera í afneitun um alvarleika eigin meiðsla. Fótbrot hennar sé ekki gróið að fullu og samkvæmt læknisráði sé hún ekki hæf til keppni. Ákvörðunin hefði ekki átt að koma henni á óvart.

Sport
Fréttamynd

„Mjög svekkt og sár“ út í Skíða­sam­band Ís­lands

Skíðakonan Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir er mjög sár og svekkt út í Skíðasamband Íslands fyrir að treysta henni ekki til þáttöku á komandi Vetrarólympíuleikum. Sambandið segir ákvörðunina tekna með hennar langtíma hagsmuni til hliðsjónar. Hólmfríður segist sjálf vera best til þess fallin að meta þá. 

Sport
Fréttamynd

Fer 41 árs Vonn á Ólympíu­leika?

Brundrottningin Linday Vonn vann annað heimsbikargull sitt á innan við mánuði í keppni í austurrísku ölpunum. Hún varð í desember sú elsta í sögunni til að vinna grein á heimsbikarmóti.

Sport
Fréttamynd

Fann liðsfélaga sinn látinn

Norski skíðamaðurinn Johan-Olav Botn hefur lýst áfallinu sem hann varð fyrir þegar hann fann vin sinn, Sivert Bakken, líflausan. Hann ræddi þessa hræðilegu upplifun við norska sjónvarpsstöð.

Sport
  • «
  • 1
  • 2