Börn og uppeldi

Fréttamynd

Fjár­hættu­spil í barna­her­berginu

Hver kannast ekki við þetta? Barnið situr inni í herberginu sínu og spilar tölvuleik, eitt eða með vinum sínum. Barnið er heima, í öruggu umhverfi heimilisins. Eða hvað?

Skoðun
Fréttamynd

Breyting á geð­heilsu og líkam­legu þreki

Marktækt samband er á milli netsamskipta og þunglyndis- og kvíðaeinkenna hjá stúlkum. Þetta eru niðurstöður nýrrar rannsóknar sem sýna einnig fram á að líkamlegt þrek hópsins fer versnandi.

Innlent
Fréttamynd

Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“

Sigurður Reynaldsson, framkvæmdastjóri Hagkaups, segir snyrtivörur á síðustu árum hafa orðið sífellt stærri hluta af heildarveltu fyrirtækisins. Hann segir mikla áherslu lagða á að tryggja að allar vörur uppfylli íslenskar og evrópskar reglugerðir. Hann varar við snyrtivörum sem seldar eru á svokölluðum „gráum markaði“.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Blásum til sóknar í menntun með bættum náms­gögnum

Ný greining mennta- og barnamálaráðuneytisins á stöðu stærðfræðikennslu styður við það sem margir kennarar hafa lengi bent á. Of mikill tími fer í að búa til eigið námsefni vegna þess að námsgögn eru víða komin til ára sinna og stuðningur við kennslu er ekki nægur. [1]

Skoðun
Fréttamynd

Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna

Bandarískur dómari hefur gert tæknifyrirtækinu Meta að greiða sekt upp á rúman hálfan milljarð Bandaríkjadollara fyrir að vara almenning ekki við áhættuna sem samfélagsmiðlar Meta kunna að hafa á börn. Þetta bætist við aðra sekt upp á hundruð milljóna dollara.

Erlent
Fréttamynd

„Ég mun aldrei treysta því að kerfið passi upp á son minn“

Móðir einhverfs drengs fékk sig fullsadda af því að glíma við úrræðaleysi í kerfinu og stofnaði því Þorláksskóla, grunnskóla fyrir börn með einhverfu, sem opnar dyr sínar í haust. Hún muni aldrei treysta kerfinu fyrir syni sínum og ætlar að sjá til þess að hann fái alla þá hjálp sem hann þurfi og verði sigurvegari í lífinu.

Lífið
Fréttamynd

Lesum í sumar – börnin okkar fylgjast með

Ég var nýkominn í sumarfrí og sat úti á pallinum í góða veðrinu með kaffibolla og dagblað. Í kringum mig börn að leik með tilheyrandi hlátrasköllum. Það var notaleg stund þar sem ég hafði loksins tíma til að slaka á. Stuttu síðar greip ég ósjálfrátt símann og fór að fletta fréttum og samfélagsmiðlum, kíkti líka á póstinn. Tíminn leið allt í einu mjög hratt og þegar ég leit upp tók ég eftir því að þögn ríkti allt um kring, börnin höfðu líka gripið í símana sína. Fyrir örfáum mínútum höfðu þau verið að leika sér. Þá rann upp fyrir mér að ég hafði líklega gefið tóninn – án þess að segja eitt einasta orð.

Skoðun
Fréttamynd

Barn í hoppukastala sem tókst á loft

Ungur drengur var í uppblásnum hoppukastala sem tók á loft vegna vindhviðu á Neskaupsstað eftir hádegi síðastliðinn laugardag. Drengurinn var í kjölfarið fluttur á sjúkrahús, en mun hafa sloppið með minni háttar meiðsli.

Innlent
Fréttamynd

Sætir morð­hótunum og ó­hróðri í vin­sælum Facebook-hópi

Stjórnandi Mæðra tips! á Facebook segist reglulega sæta hótunum frá ósáttum konum eða mönnum tengdum þeim vegna nafnlausra færsla í hópnum. Hún gefur ekki upp hver stendur á bak við færslurnar nema lögregla banki upp á. Aðeins færslur sem virkilega kalli á nafnleysi fái að standa.

Innlent
Fréttamynd

Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ung­menna

Viðar Jensson, verkefnisstjóri tóbaksvarna hjá embætti landlæknis, fagnar frumvarpsdrögum sem veita ráðherra heimild til að takmarka bragðbættar nikótínvörur. Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, kallar eftir auknum forvörnum og telur ýmsum spurningum ósvarað. Hún gagnrýnir sérstaklega að ÁTVR, sem annast heildsölu tóbaks og framleiðir íslenskt neftóbak, eigi jafnframt að fá eftirlit með nikótínvörum.

Innlent
Fréttamynd

Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox

Leikkonan María Birta Bjarnadóttir Fox og listamaðurinn Elli Egilsson Fox ættleiddu nýverið son og tilkynntu í gær að hann hefði fengið nafnið Isaiah Ellason Fox. Fjölskyldan telur nú fimm manns því fyrir eiga hjónin tvær ættleiddar dætur.

Lífið
Fréttamynd

Lit­blindur á fótboltavellinum

Sonur minn er 16 ára og tók þátt á knattspyrnumótinu Rey Cup um síðustu helgi. Hann er litblindur. Hann fæddist litblindur þar sem hann erfði gallað litsjónargen frá mér, móður sinni.

Skoðun
Fréttamynd

Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum

Faðir drengs í unglingalandsliðinu í körfubolta segir ungmenni og fjölskyldur þeirra þurfa að leggja út hundruðum þúsunda króna „bara til þess að fá að spila með landsliðinu“. Forseti Íþrótta- og ólympíusambands Íslands segir sambandið skorta fjármagn til að styðja við afreksfólk en eitt meginmarkmið sambandsins sé að jafna aðgengi að íþróttastarfi. 

Innlent
Fréttamynd

Biðst af­sökunar á ó­við­eig­andi sketsi með sau­tján ára Stodden

Leikarinn Jason Alexander, þekktastur fyrir leik sinn í Seinfeld, hefur beðið raunveruleikastjörnuna Courtney Stodden opinberlega afsökunar vegna óviðeigandi skets sem þau tóku upp saman þegar hún var sautján ára. Stodden varð heimsfræg sextán ára gömul þegar hún giftist 51 árs gamla leikaranum Doug Hutchison og berst í dag fyrir því að lágmarksgiftingaraldur verði hækkaður í átján ár í Kaliforníu.

Lífið
Fréttamynd

Hvað er samfélagsmiðill?

Eins og mörgum er kunnugt hefur mennta- og barnamálaráðuneytið kynnt áform um frumvarp til laga um aldursmörk fyrir aðgengi barna að samfélagsmiðlum. Samkvæmt tillögunum eiga börn ekki að fá aðgang að samfélagsmiðlum fyrr en 1. janúar það ár sem þau verða 15 ára.

Skoðun
Fréttamynd

For­eldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“

Börn mega ekki vera úti lengur en til miðnættis á sumrin en nýlega hefur skapast umræða á samfélagsmiðlum og spurningin sem virðist brenna á allra vörum er: klukkan hvað börn mega fara aftur út?  Lögreglumaður segist sjálfur hafa velt málinu fyrir sér en það fari mjög eftir aðstæðum hvort sett sé athugasemd við einsömul börn á flakki snemma á morgnana.

Innlent
Fréttamynd

Öryggisvottaðir leikvellir: Úlfur í sauðagæru

Hvers vegna líta allir leikvellir út nú til dags eins og þeir séu hannaðir af lögfræðingum. Það eru sætisbelti á rólunum, þykkt lag af fallefni úr gúmí eða plastkurli. Agnarsmáar rennibrautir og klifurgrindur sem henta í mesta lagi börnum í leikskóla. Öryggishyggjan er allsráðandi.

Skoðun
Fréttamynd

Þöglu börnin gleymast í kerfinu

„Það er ekkert að barninu mínu. Samfélagið mætir honum bara ekki. Við foreldrar þurfum stöðugt að sanna það sem ætti að vera augljóst,“ segir Þuríður Sverrisdóttir. Sonur hennar,  Sverrir Styrkár, varð fimm ára í maí. Hann er greindur með einhverfu, málröskun og erfiðleika við fæðuinntöku. Síðustu ár hafa kennt Þuríði að réttindi fást ekki sjálfkrafa þótt greining liggi fyrir.

Lífið
Fréttamynd

Ís­lendingar sópa að sér verð­launum í dansi

Heimsmeistaramótið í dansi stendur nú yfir í Dyflinni á Írlandi. Um risamót er að ræða. Keppendur þess eru á aldrinum sjö til tuttugu og fimm ára og eru þeir um ellefu þúsund í ár. Fjölmargir Íslendingar keppa á mótinu en fyrir hönd Íslands keppa meðal annars dansarar frá Danskompaníinu og Danskóla Birnu Björns. Mótið hófst 8. júní og því lýkur á morgun.

Lífið