Helmingur óánægður hefði Hildur valið Miðflokkinn Rúmur helmingur Reykvíkinga hefði verið óánægður ef Hildur Björnsdóttir hefði valið að mynda tveggja flokka meirihluta með Miðflokknum samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Væntingar til Hildar sem borgarstjóra eru þónokkrar en liðlega helmingur hefur fremur miklar eða mjög miklar væntingar til hennar. Hildur leiddi Sjálfstæðisflokkinn til sigurs í nýafstöðnum borgarstjórnarkosningum. Innlent 22.6.2026 19:40
Ökumaður vespunnar reyndist vera með allt niður um sig Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í dag, mánudaginn 22. júní, afskipti af manni sem ók um á vespu en hann reyndist vera undir áhrifum fíkniefna, með fíkniefni á sér, án ökuréttinda og vespan, sem reyndist stolin, var ljóslaus og án skráningarmerkja. Innlent 22.6.2026 18:10
Árásin á Höfðatorgi: Þrír ákærðir fyrir tilraun til manndráps Héraðssaksóknari hefur ákært þrjá menn fyrir tilraun til manndráps í bílakjallara á Höfðatorgi í Reykjavík aðfararnótt 17. mars síðastliðins. Sá sem fyrir árásinni varð fer fram á 10 milljónir króna í miskabætur. Innlent 22.6.2026 14:40
Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Maður og kona voru leidd út í járnum í lögregluaðgerð í Skipholti í Reykjavík rétt eftir hádegi í dag en þau höfðu brotist inn í listagallerí sem er þar til húsa. Fjöldi lögreglumanna sem og sérsveitarmanna voru á vettvangi. Innlent 21. júní 2026 12:21
„Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Kona á tíræðisaldri slasaðist í Grafarvogi þegar hún flaug úr hjólastól sínum á sprunginni gangstétt í hverfinu þar sem hún var á leið í klippingu. Sonur konunnar kallar eftir því að borgaryfirvöld bregðist strax við og geri við gangstéttina þar sem hafi orðið mörg slys. Innlent 21. júní 2026 10:40
HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Háskólinn í Reykjavík útskrifaði í dag sjö hundruð og tuttugu nemendur. Tvískipt athöfn fór fram í Eldborgarsal Hörpu. Innlent 20. júní 2026 22:44
Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu skoðar mál manns sem ónáðaði hlaupakonur miðsvæðis í Reykjavík í dag. Maðurinn kom aðvífandi á rafskútu og ýmist kleip í eða sló á rass þeirra. Innlent 20. júní 2026 18:14
Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Jensína Edda Hermannsdóttir leikskólastýra Laufásborgar er Reykvíkingur ársins 2026. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri tilkynnti valið við opnun Elliðaáa í morgun en þangað voru þær Jensína mættar eldsnemma við formlega opnun árinnar í dag. Innlent 20. júní 2026 10:57
Sektaður fyrir að aka á göngugötu Lögreglan á Hverfisgötu sektaði í nótt ökumann fyrir að aka um göngugötu í Reykjavík. Auk þess var óskað eftir aðstoð lögreglunnar vegna innbrots í heimahús og vegna árásar fyrir framan bar. Innlent 20. júní 2026 08:17
Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Mikið tjón er á íbúð við Klapparstíg eftir að eldur kom þar upp í morgun, að sögn slökkviliðs. Einn var fluttur með sjúkrabíl til athugunar. Innlent 20. júní 2026 07:29
Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Mótmælandinn Hólmsteinn Harðarson segist hafa brotnað niður þegar honum varð ljóst að hvalveiðiskipi væri stefnt á haf út - þegar hann var um borð í tunnu þess. Hann vonar að gjörningurinn hafi áhrif til góðs og segist íhuga hvort hann eigi að leita réttar síns. Innlent 19. júní 2026 19:03
Fresta opnun Sundhallar Reykjavíkur Reykjavíkurborg frestar fyrirhugaðri enduropnun Sundhallar Reykjavíkur um nokkra daga. Viðhaldsvinna hefur staðið yfir síðustu vikur sem átti að ljúka um helgina og átti að opna laugina á mánudag. Í tilkynningu segir að vegna „ófyrirséðra atriða“ í búningsklefum verði ekki hægt að opna á mánudag. Innlent 19. júní 2026 14:52
Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Leikararnir Hilmir Snær Guðnason og Vala Kristín Eiríksdóttir, sem saman eiga eina dóttur og hafa verið í sambandi í ríflega þrjú ár, leika hjón í verkinu Djöflar sem verður fyrsta frumsýningin á Nýja sviði Borgarleikhússins á næsta leikári. Lífið 19. júní 2026 13:55
Síðustu móhíkanarnir Fyrsta aldarfjórðung ævi minnar bjó ég í verkamannabústöðunum á Ásvallagötu í Reykjavík. Á þessum árum vandi ég komur mínar í hina rómuðu verslun Kjötborg, sem er staðsett á horni Ásvallagötu og Blómvallagötu. Skoðun 19. júní 2026 09:31
Ólafur Þ. Harðarson sakaður um fánaslugs Ólafur Þ. Harðarson prófessor emeritus er furðu lostinn. Hann er mikill fánamaður og hefur unun af fánasafni sínu. Nú hefur einhver nágranni hans sakað Ólaf um að hafa ekki haft sómakennd í sér til að flagga íslenska fánanum á 17. júní. Ólafur er furðu lostinn. Innlent 19. júní 2026 09:12
Tveir á slysadeild eftir eld í Jörfabakka Tveir íbúar fjölbýlishúss voru fluttir á slysadeild eftir að eldur kom upp í ruslageymslu í Jörfabakka í Breiðholti í nótt. Innlent 19. júní 2026 08:36
Segir óheimilt hafi verið að sigla af stað með mótmælandann um borð Valgerður Árnadóttir formaður Hvalavina segir að óheimilt hafi verið að sigla með mótmælandann sem kom sér fyrir í tunnu í hvalveiðiskipinu Hval 9 um borð. Innlent 18. júní 2026 20:51
Lögregla varar við svikahrappi í Árbæ Lögreglu bárust tvær tilkynningar í dag um karlmann á ferð um Árbæ sem falaðist eftir styrkjum fyrir góðgerðarsamtök. Hann leitaðist eftir styrk að upphæð tvö þúsund krónur en að tvö þúsund evrur hafi verið teknar af kortum þeirra sem féllust á að styrkja málefnið. Lögregla varar við manninum. Innlent 18. júní 2026 18:25
Sigldu af stað með mótmælandann um borð Hvalveiðiskipið Hvalur 9 hefur siglt úr höfn en Hólmsteinn Harðarson situr nú í tunnu mastursins til að mótmæla hvalveiðum. Hann sagðist fyrr í dag ekki ætla niður sjálfviljugur en að hann væri með takmarkað nesti, eitthvað vatn og lítið batterí á símanum. Innlent 18. júní 2026 16:38
Annmarkar á fleiri en einu stigi málsins Innri endurskoðun og ráðgjöf (IER) telur að annmarkar hafi verið á stjórnsýslu- og leyfisferlum í tengslum við uppbyggingu vöruskemmu við Álfabakka, „græna gímaldinu“ svokallaða. Úttektin var kynnt á fundi borgarráðs í morgun. Innlent 18. júní 2026 15:26
Systir Ming Ting: Catherine „ekki sjálfstæð“ Yngri systir Ming Ting Mancel, sem er ákærð fyrir að bana dóttur sinni í samráði við eiginmann sinn á Edition-hótelinu í Reykjavík, segir að dóttir þeirra hjóna hafi ekki verið sjálfstæð og raunar hafi hún virst háð foreldrum sínum. Ming Ting hefur haldið því fram að dóttirin hafi sjálfviljug leyft foreldrum sínum að svipta sig lífi. Innlent 18. júní 2026 14:17
Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Rekstur A-hluta Reykjavíkurborgar var neikvæður um tæpa 4,6 milljarða króna á fyrsta ársfjórðungi. Þótt það sé framför frá því í fyrra var niðurstaðan tæplega 1,6 milljarði krónum verri en áætlað var. Viðskipti innlent 18. júní 2026 14:05
Klórför eins og þegar fólk „reynir að losa sig úr kyrkingunni“ Réttarlæknir segir að dóttir Ming Ting Mancel, sem er ákærð fyrir morð í Edition-málinu, virðist hafa verið með klóráverka á hálsi og áverka eftir snöru. Klóráverkarnir gætu bent til þess að dóttirin hafi streist á móti er hún hafi verið haldin hálstaki af foreldrum sínum. Ming Ting hefur haldið því fram að dóttirin hafi sjálfviljug leyft foreldrum sínum að svipta sig lífi. Innlent 18. júní 2026 13:03
Hópur fólks hafi setið um matinn í frískápnum Hannes Bjarnason, svæðisforingi Hjálpræðishersins, segir miður að loka hafi þurft frískápnum við Hjálpræðisherinn. Hópur fólks hafi setið um matinn sem var settur í skápinn og grunur hafi leikið á um að hópurinn væri að selja matinn áfram. Hjálpræðisherinn gefur matinn áfram en með öðrum leiðum. Innlent 18. júní 2026 10:51