Bítið
1 2 3 4 5 6 … 33 ›
Tókust á um Borgarlínuna Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, og Pétur Marteinsson, oddviti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar, tókust á um Borgarlínuna í Bítinu á Bylgjunni. Hildur telur að endurskoða þurfi áætlunina frá grunni en Pétur bendir á að verkefnið sé þegar hafið og skiljanlegt sé að finna fyrir einhverjum vaxtaverkjum. Þau sammælast um að flýta þurfi Miklubrautargöngunum. Innlent 25.3.2026 11:24
„Þið komið ekki til Íslands til að brjóta af ykkur“ Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir mikið hafa áunnist í baráttu við glæpi á Íslandi en alltaf sé hægt að gera betur. Hún segir íslenskan lagaramma eiga að senda skýr skilaboð til glæpamanna um að Ísland sé ekki góður áfangastaður. Innlent 24.3.2026 10:59
Þeir svartsýnustu trúi varla að Trump muni ráðast á Kúbu Eyjólfur Eyvindarson, formaður Víkur – Vináttufélags Íslands og Kúbu og tónlistarmaðurinn Sesar A, er staddur á Kúbu og fór þangað með hópi fólks sem fór með hjálpargögn til Kúbu. Hópurinn siglir undir heitinu Nuestra America Flotilla og koma flest hjálpargögnin frá Mexíkó. Von er á stóru skipi með hjálpargögnum og olíu í dag. Innlent 24.3.2026 09:01
„Ég sit ekki hér og hóta því að við séum á leiðinni í verkfall“ Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segist ekki vilja fara í kjaraviðræður í haust en Efling sé tilbúin í slíkar viðræður og vel undirbúin. Hún segir verka- og láglaunafólk ekki bera ábyrgð á stöðunni sem sé upp komin í efnahagi landsins. Innlent 19.3.2026 09:28
Aldrei séð flóð falla á þessum stað á átján ára ferli Gestur Hansson, snjóflóðaeftirlitsmaður á Siglufirði, segir veðrið á Siglufirði að ganga niður og það hafi verið bærilegt í nótt. Innlent 16.3.2026 08:47
Hafna ásökunum um hönnunarstuld Fataframleiðandinn Icewear segist hafna með öllu ásökunum um að prjónauppskrift sem fyrirtækið selur sé eftirherma af hönnun íslenskrar prjónakonu. Prjónahönnun byggi oft á sameiginlegri hefð og þannig geti líkindi komið fram án þess að um eftirhermu sé að ræða. Viðskipti innlent 9.3.2026 11:20
„Erum við ekki að fara aðeins fram úr okkur“ Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segist skoða það þegar að því kemur hvort hún myndi ráða sig sem bæjarstjóra í Vestmannaeyjum eða annars staðar. Íris tilkynnti nýlega að hún ætli ekki aftur fram. Íris var til viðtals í Bítinu og ræddi þar einnig samgöngumál til Vestmannaeyja sem hún segir óboðleg á þessari stundu. Innlent 4.3.2026 08:30
Bjuggust ekki við því að búa við sprengjuregn í Barein Guðlaug Sigfúsdóttir hefur verið búsett í Barein í Miðausturlöndum í fjórtán ár. Hún segist aldrei hafa átt von á því að búa við sprengjuárásir, landið sé svo friðsælt. Fjölskyldan hefur lítið sofið fyrir sprengjum og sírenum síðustu nætur og heldur sig bara heima. Innlent 3.3.2026 08:13
Leggur lokahönd á þingsályktun um þjóðaratkvæðagreiðslu Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra leggur nú lokahönd á þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um samningaviðræður við Evrópusambandið um inngöngu Íslands. Hún segir stríðið í Íran geta haft veruleg áhrif á Íslendinga og að borgaraþjónustan aðstoði nú fjölda Íslendinga erlendis vegna stríðsins. Innlent 2.3.2026 09:12
Bein vaxið yfir augun og fólk afmyndast í andliti við notkun peptíða Una Emilsdóttir, sérnámslæknir í atvinnu- og umhverfislæknisfræði, segir alvarlegt að ungt fólk sprauti sig með ólöglegu peptíði. Þó svo að efnin geti haft einhver jákvæð áhrif sé of lítið vitað um áhrifin á líkamann í heild. Dæmi séu um að flutt séu inn eitruð peptíð. Þeir geti valdið hraðari vexti krabbameins og afmyndun beina í andliti. Innlent 26.2.2026 13:30
Einar fundar með borginni um málefni miðborgar Skrifstofa borgarstjóra ætlar að funda með Einari Bárðarsyni, framkvæmdastjóra Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði, um ýmis mál er varða veitingarekstur í miðborginni. Þau vilja ekki kalla það „friðarviðræður“ eins og Einar hefur kallað eftir en Eva Bergþóra Guðbergsdóttir, samskiptastjóri borgarinnar, segir eiga að ræða ýmis mál er varða miðborgina á fundinum. Innlent 25.2.2026 13:25
Fjögur ár frá innrás Rússa: Sorg sé ekki nógu stórt orð Óskar Hallgrímsson, blaðamaður og ljósmyndari búsettur í Úkraínu, segir sorg ekki vera nægilega gott orð til að lýsa tilfinningunum sem vakna í dag. Fjögur ár eru síðan innrás Rússa í Úkraínu hófst. Erlent 24.2.2026 11:09
Spyr hvort skoða þurfi mögulega árekstra eiginmanns ráðherra og fráfarandi forstjóra Ingibjörg Isaksen, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, segir stöðuna grafalvarlega á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Forstjórinn hefur sagt upp störfum og læknar líka eftir að samningum var sagt upp. Ingibjörg spyr hvort skoða þurfi hvort einhverjir árekstrar hafi orðið á milli eiginmanns ráðherra og fráfarandi forstjóra. Innlent 20.2.2026 09:52
Þeim fjölgar sem skilja Mikill meirihluti fólks sem giftir sig skilur á einhverjum tímapunkti, í hið minnsta í Bandaríkjunum. Klínískur félagsráðgjafi segir vísbendingar um að staðan sé svipuð á Íslandi og segir fólk fara of geyst af stað í sambönd. Lífið 19.2.2026 20:03
„Fjölskyldur eru margar í algjörri spennitreyju“ Oddviti Sjálfstæðisflokksins og formaður Eflingar telja nýjar tillögur Reykjavíkurleiðarinnar betri en þær sem voru kynntar í haust. Formaður Eflingar hefur áhyggjur af því að ekki sé nóg gert til að bregðast við alvarlegri stöðu innan leikskóla en er vongóð. Oddviti Sjálfstæðisflokksins hefur áhyggjur af áhrifum breytinganna á fjölskyldur og er ekki hrifin af tekjutengingu í gjaldskrá. Innlent 19.2.2026 11:07
Stillir sér upp á miðjunni Nýkjörinn formaður Framsóknarflokksins segist ekki hafa áhuga á að færa flokkinn til hægri líkt og hann telur klofningsflokkinn Miðflokkinn hafa gert. Hann segist ætla að efla flokkinn á miðjunni þar sem hann hafi sögulega verið. Innlent 16.2.2026 09:22
Síðasti leynigesturinn opinberaður Nýjasti, og jafnframt síðasti, leynigestur Bítisins í bílnum tók lagið Killing Me Softly í útgáfu The Fugees á rúntinum með Heimi, Lilju og Ómari í Bítinu á Bylgjunni og gerði það með sóma. Lífið 4.2.2026 09:48
Eins og að kasta kjarnorkusprengju inn í fjölskyldur Benedikta Eik Eiríksdóttir stofnaði á dögunum félagið Mitt DNA sem er félag rangfeðraðra. Hún segist vilja veita þeim stuðning sem eru í þessari stöðu og segir fólk alltaf verða að taka ábyrgð á mistökum sínum. Ekki eiga að leyna fólki upplýsingum um uppruna sinn. Innlent 4.2.2026 09:06
Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Þórður Gunnarsson hagfræðingur segir verðtrygginguna ekki aðalvandamálið. Þegar fólk pirri sig á verðtryggingu sé það í raun að pirra sig á verðbólgunni. Hann segir miklar launahækkanir stærra vandamál. Hann kallar eftir auknu samráði á vinnumarkaði til að finna raunverulegt svigrúm og segir það líklegra til að hafa áhrif á verðbólgu en afnám verðtryggingar. Viðskipti innlent 3.2.2026 09:57
„Ekki er þetta uppáhaldslagið þitt?“ Þá er komið að lokaþætti af vefþáttunum Bítið í bílnum sem slegið hafa rækilega í gegn síðustu vikur. Lífið 3.2.2026 09:02
Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist hafa skilning á því að fólki finnist erfitt að greiða hærri gjöld. Það sé fúlt að verðbólga hafi hækkað fyrir helgi en bendir á að undirliggjandi verðbólga sé stöðug. Hún segir fyrsta skref að afnámi verðtryggingar verða stigið um næstu áramót. Viðskipti innlent 2.2.2026 09:50
Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Sérfræðingar í fjármálalæsi barna segja lykilatriði að fjármálalæsi verði gert að skyldufagi í öllum grunn- og framhaldsskólum. Þannig fái öll börn sömu tækifæri til að læra um það hvernig á að byggja upp heilbrigðan fjárhag. Viðskipti innlent 30.1.2026 09:38
Fólk velji einföldustu leiðina og útiloki foreldra sína Klínískur félagsráðgjafi segir útskúfun barna á foreldrum vegna fjölskyldudeilna ótrúlega algenga. Sumir vilji fara einföldustu leiðina, loka á foreldra og hlaupa frá vandanum. Slíkt komi mest niður á barnabörnum sem fái ekki ömmu og afa. Flestir vilji eiga góð samskipti og fólk eigi alls ekki að opinbera slíkar erjur fyrir alþjóð. Lífið 29.1.2026 12:19
Alltaf til í slaginn en vonar að samningar haldi Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir mikla stéttskiptingu innan verkalýðshreyfingarinnar og stöðu verkafólks erfiða. Hún segist vona að kjarasamningar haldi í haust þegar forsenduákvæði verða endurskoðuð en Efling komi alltaf tilbúin til leiks og hún sé tilbúin í slaginn. Innlent 29.1.2026 09:51
Fjármál barnanna geti haft áhrif á eftirlaun foreldranna Fjármálaráðgjafi segir fjárhag barna vera eitt stærsta lífeyrismál foreldranna. Foreldrar eigi það til að seinka því að fara á eftirlaun eða skuldsetja sig til að aðstoða börnin fjárhagslega. Innlent 28.1.2026 11:17
Karlarnir leiða að ósk kvennanna Sigfús Aðalsteinsson fasteignasali leiðir lista Okkar borgar – Þvert á flokka í sveitarstjórnarkosningum í vor. Baldur Borgþórsson mun skipa annað sæti listans. Tilkynnt var um framboðið í október í fyrra. Hlynur Áskelsson, kennari í Fjölbrautaskólanum í Ármúla, tekur þriðja sæti á listanum. Sigfús og Baldur voru til viðtals um væntanlegt framboð í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Innlent 28.1.2026 10:35
Elskaði Elvis áður en hann byrjaði að labba Nýjasti þáttur af Bítið í bílnum fór heldur betur á flug en í honum fóru Heimir, Lilja og Ómar á rúntinn með leynigesti sem söng lag sem Elvis Presley gerði ódauðlegt. Lífið 28.1.2026 09:47
Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi ráðherra og varaformaður flokksins, segist engar ákvarðanir hafa tekið um breytingar á sínum högum. Það segir Þórdís í SMS-skilaboðum til fréttastofu. Innlent 27.1.2026 10:34
Draugur Lilju svífur yfir vötnum Hver ætli sé undir pokanum í nýjasta þættinum af Bítið í bílnum? Leynigesturinn réðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur og tók lag eftir kónginn sjálfan, Elvis. Lífið 27.1.2026 09:01
Tekur ekki undir greiningu Heiðu Bjargar um konur í Samfylkingunni Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir segist ekki merkja það innan Samfylkingarinnar að konum sé ekki treyst fyrir ábyrgðastöðum eða að það halli á konur. Hún segist ekki taka undir greiningu Heiðu Bjargar Hilmisdóttur á því af hverju hún hlaut ekki næga kosningu til oddvita. Steinunn segist brenna fyrir leikskóla- og velferðarmálum. Innlent 26.1.2026 09:37