Valur

Valur

Fréttir af Knattspyrnufélaginu Val frá Reykjavík.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Valur á­fram í undan­úr­slit bikarsins

Ríkjandi Íslandsmeistarar Vals áttu ekki í neinum vandræðum með að bóka sér farmiða á úrslitaviku Powerade bikarsins í handbolta. Valur hafði betur gegn FH, 21-31, er liðin mættust í átta liða úrslitum bikarsins í kvöld.

Handbolti
Fréttamynd

Kári: Það koma dalir á hverju tíma­bili

Kári Jónsson dró sína menn áfram í leik sem hægt er að lýsa sem leðjuslag þegar Valsmenn unnu Þór Þ. í framlengdum leik. Kári skoraði 22 stig og gaf átta stoðsendingar og setti mjög mikilvægar körfur í framlengingunni.

Körfubolti
Fréttamynd

Tinda­stóll vann Val í spennutrylli

Tindastóll hóf nýja árið af sama krafti og liðið lauk því síðasta, í Bónus-deild kvenna í körfubolta, með því að vinna Valskonur í háspennuleik á Sauðárkróki í kvöld, 81-79.

Körfubolti
Fréttamynd

„Þetta er skrýtið fyrir alla“

Knattspyrnumaðurinn Tómas Bent Magnússon hefur slegið í gegn með toppliði skoska boltans í vetur. Hann gekk óvænt í raðir Hearts um mitt sumar þegar hann var keyptur frá Val. Hearts tapaði gegn Hibernian 2-1 um helgina en er samt sem áður með þriggja stiga forskot á toppi skosku úrvalsdeildarinnar í fótbolta.

Sport