Golf

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Gunn­laugur Árni setti heilsuna í fyrsta sæti

Íslenski kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson þurfti að hætta keppni í golfmóti í fyrsta sinn þegar hann kláraði ekki fyrsta hring á bandaríska áhugamannamótinu, U.S. Amateur Championship, í gær.

Golf
Fréttamynd

16 ára setti vallarmet á Ís­lands­mótinu

Hinn 16 ára gamli Hjalti Kristján Hjaltason, kylfingur úr GKG, setti vallarmet á nýjum Korpúlfsstaðavelli á Íslandsmótinu í golfi í dag. Hann verður í ráshópi með efstu kylfingum á morgun.

Golf
Fréttamynd

Dag­bjartur eykur for­ystuna

Dagbjartur Sigurbrandsson jók forystu sína fyrir lokadaginn á Íslandsmótinu í golfi sem fram fer á Korpúlfsstaðavelli í Reykjavík. Hann lék hring dagsins á tveimur undir pari og er með sex högga forystu.

Golf
Fréttamynd

Reynir á kylfinga með öðrum hætti á Ís­landsmótinu í dag

Ríkjandi Íslandsmeistararnir í golfi eru í góðri stöðu nú þegar að Íslandsmótið á Korpúlfsstaðavelli er hálfnað. Aðstæður fyrir kylfinga verða krefjandi í dag en ólíkar þeim sem hafa verið uppi á fyrri hluta mótsins að mati Þorsteins Hallgrímssonar, golfsérfræðings. 

Golf
Fréttamynd

Gunn­laugur Árni tekur þátt í Ein­víginu á Nesinu

Nýjasta stórstjarnan í íslensku golfi, Gunnlaugur Árni Sveinsson, verður með á árlegu góðgerðarmóti Nesklúbbsins, Einvíginu á Nesinu, sem verður haldið á frídegi verslunarmanna. Mótið er haldið í samstarfi við Arion banka og er þetta í þrítugasta skipti sem það fer fram.

Golf
Fréttamynd

Gagn­rýnd fyrir að hrekkja kylfusveininn

Charley Hull lék fyrsta hringinn á Opna breska risamótinu í golfi á tveimur höggum undir pari. Hún vakti þó athygli á hrekk sem hún gerði við kylfusveininn sinn fyrir mótið.

Golf
Fréttamynd

Danir og Norð­menn keppa í golfinu í anda Ryder-bikarsins

Norskir og danskir kylfingar munu keppa sín á milli árlega frá og með árinu 2027 en keppnin hefur fengið nafnið „Battle of the Vikings“ og fyrsta mótið fer fram á næsta ári. Leikinn verður einn dagur í Noregi og einn dagur í Danmörku.

Golf