Björgvin á 3 högg á Örn Ævar þegar mótið er hálfnað 27. júlí 2007 20:06
Björgvin Sigurbergsson úr GK hefur þriggja högga forystu í karlaflokki þegar Íslandsmótið á Hvaleyrinni er hálfnað. Hann lék hringinn í dag á 70 höggum, eða einu höggi undir pari og er samtals á 138 höggum, eða 4 höggum undir pari. Örn Ævar Hjartarson úr GS, sem lék á 73 höggum í dag, er í öðru sæti á 141 höggi. Þrír kylfingar deila þriðja sæti; Ólafur Már Sigurðsson úr GR, sem lék á 72 höggum í dag, Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG, sem lék á 75 höggum, Heiðar Davíð Bragason úr GKj, sem lék á 72 höggum í dag og Hlynur Geir Hjartarson sem lék á 70 höggum í dag. Þeir eru allir á 2 höggum yfir pari, sex höggum á eftir Björgvini. Davíð Már Vilhjálmsson úr GKj lék á 72 höggum í dag og er samtals á 3 höggum yfir pari. Félagi hans, Kristján Þór Einarsson, lék á 77 höggum í dag og er samtals á 4 höggum yfir pari eins og Ottó Sigurðsson úr GKG sem lék á 73 höggum í dag. Ólafur Már, stigameistari síðasta árs, verður í síðasta ráshópi á morgun með þeim Björgvini Sigurbergssyni og Erni Ævar Hjartarsyni. Í næst síðasta ráshópi verða Birgir Leifur Hafþórsson, Heiðar Davíð og Kristján Þór Einarsson. Keppendum verður fækkað eftir hringinn í dag - 72 efstu í karlaflokki komast á fram og 18 efstu í kvennaflokki. Keppni er ekki enn lokið í karlaflokki og því ekki ljóst hverjir þurfa að bíta í það súra epli að fá ekki að leika tvo síðustu hringina. Kylfingur.is
Golf Mest lesið Sjáðu Dag Sig taka „Purple Rain“ með Prince á rafmagnsgítar Handbolti Íþróttafólk forðast kynlíf af ótta við að falla á lyfjaprófi Sport Svara gagnrýni Alfreðs: „Látum ekki þagga niður í okkur“ Handbolti Eini leikmaðurinn sem gaf boltann aldrei á EM Handbolti „Þetta er Sádi-Arabía, ekki Ronaldo-Arabía“ Fótbolti Fékk nóg og strunsaði út úr viðtali Sport Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs Handbolti „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Íslenski boltinn Fórnuðu Luka Doncic fyrir hann en Davis náði aðeins að spila 31 leik Körfubolti Orri hetjan er Sociedad tryggði sæti í undanúrslitum Fótbolti Fleiri fréttir LIV fær heimslistastig þótt mótaröðin uppfylli ekki skilyrði LIV-stjörnur þekkjast ekki boð PGA-manna Koepka snýr aftur og öðrum LIV-stjörnum býðst að fylgja honum Kylfingur tók áhættuna og upplifði versta golfdag lífsins McIlroy miður sín yfir ummælum áhorfenda um dóttur hans Efnilegur kylfingur meðal þeirra sem létust í brunanum í Sviss Sjá meira