Birnulausar Keflavíkurstelpur töpuðu á móti Grindavík Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. janúar 2011 21:00 Jóhann Þór Ólafsson stýrði Grindavíkurliðinu til sigurs í Keflavík í kvöld.
Grindavík vann óvæntan tólf stiga sigur í Keflavík, 71-59, í Iceland Express deild kvenna í kvöld en fyrir leikinn munaði átján stigum og fimm sætum á þessum liðum. Þetta var aðeins annað tap Keflavíkurliðsins á tímabilinu. Grindavíkurliðið byrjaði betur og var einu stigi yfir eftir fyrsta leikhluta, 19-18. Grindavíkurstelpurnar fóru síðan á kostum í öðrum leikhluta sem þær unnu 25-9 og voru þar með 17 stigum yfir í hálfleik, 44-27. Keflavík náði að minnka muninn í tíu stig, 47-57, fyrir lokaleikhlutann en Grindavíkurliðið hélt úr í fjórða leikhlutanum og fagnaði mjög óvæntum sigri. Keflavík saknaði Birnu Valgarðsdóttur í þessum leik en Jacquline Adamshick var í algjört sérflokki með 34 stig og 10 fráköst. Næst stigahæsti leikmaður Keflavíkurliðsins, Bryndís Guðmundsdóttir, skoraði aðeins 8 stig. Crystal Ann Boyd skoraði 29 stig fyrir Grindavík, Berglind Anna Magnúsdóttir var með 12 stig og 8 fráköst og Helga Hallgrímsdóttir bætti við 10 stigum og 11 fráköstum.Keflavík-Grindavík 59-71 (27-44)Stig Keflavíkur: Jacquline Adamshick 34 (10 frák.), Bryndís Guðmundsdóttir 8, Pálína Gunnlaugsdóttir 7, Hrund Jóhannsdóttir 4, Ingibjörg Jakobsdóttir 3, Aníta Eva Viðarsdóttir 2, Eva Rós Guðmundsdóttir 1Stig Grindavíkur: Crystal Ann Boyd 29, Berglind Anna Magnúsdóttir 12, Helga Hallgrímsdóttir 10 (11 frák.), Agnija Reke 9, Ingibjörg Yrsa Ellertsdóttir 8, Alexandra Marý Hauksdóttir 2, Harpa Hallgrímsdóttir 1.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Strákarnir læri af biturri reynslu Arnars með Davíð Oddssyni í Japan Fótbolti Stuðningsmaður Grindavíkur í bann fyrir bjórdósakast Körfubolti Blaðran heldur áfram að bögga McIlroy Golf „Þetta hliðarspor mun ekki breyta þeirri vegferð sem ég er á“ Íslenski boltinn Kæra komin á borð KKÍ vegna Kane Körfubolti „Eins og súpa sem vantar salt og pipar“ Fótbolti Lárus hættur í Þorlákshöfn Körfubolti Gagnrýnir Körfuboltakvöld: Samþykkja svona hegðun og afvegaleiða umræðuna Körfubolti Umdeilt víti gefur Celtic séns á titlinum en jafntefli dugir Tómasi og félögum Fótbolti Ármann yngir upp um þrjátíu ár Körfubolti Fleiri fréttir Hreinn úrslitaleikur um sæti í Bónus-deildinni Stuðningsmaður Grindavíkur í bann fyrir bjórdósakast Lárus hættur í Þorlákshöfn Kæra komin á borð KKÍ vegna Kane Uppselt á innan við þremur mínútum á þriðja úrslitaleikinn Ármann yngir upp um þrjátíu ár Gagnrýnir Körfuboltakvöld: Samþykkja svona hegðun og afvegaleiða umræðuna Fyrsti samkynhneigði leikmaður NBA deildarinnar er látinn „Eins og að mennirnir sem stjórna Tindastóli séu að missa hausinn“ „Einhver barnaskapur held ég“ Eldræða Arnars: „Hlaupa og senda fingurinn upp í stúku“ Tindastóll - Grindavík 83-86 | Stilla Stólum upp við vegg Látinn aðeins 29 ára „Fánar úti um allt og fólk er að gíra sig upp í þetta“ „Það er komin pressa“ Spilar ekki með landsliðinu vegna forræðisdeilu OKC sópaði Lakers og methálfleikur hjá Mitchell „Það þarf að klára þriðja leikinn“ „Getum ekki mætt værukærar í næsta leik“ Blikar knúðu fram oddaleik Milwaukee Bucks tilbúið að skipta Giannis Uppgjörið: Njarðvík - Haukar 75-70 | Njarðvík einum sigri frá titlinum Baldur hættur í Garðabænum Móðir heiðruð og ljótur olnbogi Búið spil hjá Elvari og félögum Martin stoðsendingahæstur í sigri Tryggvi Snær atkvæðamikill í súru tapi Arnar: Ákefðin var til staðar en hún var ekki á réttum hlutum Grindavík - Tindastóll 85-80 | Gáfu færi á sér en fögnuðu fyrsta sigri Óli Óla: Mér líður vel í Skagafirðinum líka Sjá meira