Valskonur unnu í Ljónagryfjunni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. nóvember 2012 20:58 Kristrún Sigurjónsdóttir skoraði 16 stig fyrir Val í kvöld. Mynd/Anton
Valskonur komust upp í annað sætið í Dominosdeild kvenna í körfubolta eftir fimm stiga sigur á Njarðvík, 71-66, í Ljónagryfjunni í kvöld en þetta var lokaleikur 7. umferðar. Valur, KR og Snæfell eru öll með tíu stig í 2. til 4. sæti en Valsliðið er með bestan árangur í innbyrðisviðureignum liðanna. Valskonur tryggði sér sigurinn í þessum æsispennandi leik með góðum lokaspretti en þær skoruðu 10 af síðustu 12 stigum leiksins. Lele Hardy, spilandi þjálfari Njarðvíkur var með tröllatvennu (25 stig og 30 fráköst) en það dugði ekki til. Kristrún Sigurjónsdóttir skoraði 16 stig og Alberta Auguste var með 10 af 14 stigum sínum í lokaleiklutanum. Njarðvíkurkonur byrjuðu betur, skoruðu fimm fyrstu stigin og voru 19-16 yfir eftir fyrsta leikhlutann. Njarðvík komst fimm stigum yfir í upphafi annars leuikhlutans, 23-18, en Valsliðið svaraði þá með sjö stigum í röð og tók frumkvæðið. Valur var síðan 30-28 yfir í hálfleik. Lele Hardy, spilandi þjálfari Njarðvíkur var komin með 20 fráköst í fyrri hálfleik auk 8 stiga. Guðlaug Björt Júlíusdóttir skoraði einni átta stig fyrir hlé. Hallveig Jónsdóttir og Kristrún Sigurjónsdóttir skoruðu báðar 8 stig fyrir Val í fyrri hálfleik. Njarðvíkurkonur voru skrefinu á undan í þriðja leikhlutanum og leiddu með fimm stigum, 52-47, fyrir lokaleikhlutann. Njarðvíkurliðið náði mest sjö stiga forskot í upphafi fjórða leikhluta en Valskonur lögðu grunninn að sigrinum með því að skora níu stig í röð og breyta stöðunni úr 64-61 í 64-70 á tveggja mínútna kafla. Alberta Auguste fór á kostum á þessum kafla og stal boltanum hvað eftir annað.Njarðvík-Valur 66-71 (19-16, 9-14, 24-17, 14-24)Njarðvík: Lele Hardy 25/30 fráköst/6 stolnir, Guðlaug Björt Júlíusdóttir 14, Eyrún Líf Sigurðardóttir 13/5 fráköst, Salbjörg Sævarsdóttir 10/6 fráköst, Erna Hákonardóttir 2, Sara Dögg Margeirsdóttir 2.Valur: Kristrún Sigurjónsdóttir 16, Alberta Auguste 14/8 fráköst/7 stolnir, Unnur Lára Ásgeirsdóttir 13/10 fráköst, Hallveig Jónsdóttir 8/4 fráköst, Ragnheiður Benónísdóttir 6/15 fráköst, Þórunn Bjarnadóttir 5/8 fráköst, María Björnsdóttir 4, Guðbjörg Sverrisdóttir 3/10 fráköst, Elsa Rún Karlsdóttir 2.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Willum hrifinn af norska módelinu Sport Györ - Víkingur | Víkingar stefna á aðra umferðina Fótbolti Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Sakar lækni landsliðsins um loddaraskap Fótbolti Bróðir Yamals slær í gegn á HM Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Aukinn viðbúnaður vegna sögu Englands og Argentínu Fótbolti Fleiri fréttir Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti Sjá meira