Frábær fjórði leikhluti Haukastúlkna | Unnu bikarmeistarana Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. mars 2015 20:54 Lele Hardy. Vísir/Andri Marinó
Haukakonur ætla ekki að gefa neitt eftir í baráttunni við Grindavík og Val um sæti í úrslitakeppni Dominos-deildar kvenna í körfubolta. Haukaliðið sótti mikilvæg stig á heimavöll bikarmeistara Grindavíkur í kvöld. Haukar unnu þá 11 stiga sigur á Grindavík, 80-69, eftir að hafa verið sjö stigum undir í hálfleik, 38-31, og átta stigum undir fyrir lokaleikhlutann, 54-46. Haukakonur tryggðu sér lífsnauðsynlegan sigur með frábærum fjórða leikhluta sem Hafnarfjarðarliðið vann 34-15. Lele Hardy ætlar sér að koma sínu liði í úrslitakeppnina en hún var með 36 stig, 22 fráköst og 7 stoðsendingar fyrir Hauka í kvöld. Sólrún Inga Gísladóttir skoraði 12 stig fyrir Hauka, Auður Ólafsdóttir skoraði 11 stig og Guðrún Ósk Ámundadóttir var með 10 stig og 11 fráköst. Kristina King skoraði 22 stig fyrir Grindavík og Petrúnella Skúladóttir var með 12 stig, 10 fráköst og 6 stoðsendingar. Sigurinn og tap Vals í Hólminum þýða að Haukar og Valur er bæði með 28 stig í 4. og 5. sæti en Grindavík er áfram með 30 stig í þriðja sætinu. Fjögur efstu liðin komast í úrslitakeppnina.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Landsliðsmiðverðirnir skiptu báðir um lið í dag Fótbolti Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti Spánverjar í úrslitaleikinn eftir sannfærandi sigur á Frökkum Fótbolti Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Körfubolti Uppgjörið: Györ ETO - Víkingur 2-2 | Tvö mörk Daníels komu Víkingi áfram í næstu umferð Fótbolti „Ekkert af þessu gekk og þá líður manni ömurlega“ Íslenski boltinn „Hvað viljið þið að Jude Bellingham segi?“ Fótbolti „Mikilvægasti leikurinn minn og ég er ekki hræddur“ Fótbolti Fleiri fréttir Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Sjá meira