Dómurinn yfir Sigga hakkara: Bauð unglingspiltum allt að 100 milljónir, bíla og einbýlishús sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 25. september 2015 12:12 Sigurður Ingi Þórðarson var dæmdur fyrir brot gegn níu piltum. vísir/gva
Sigurður Ingi Þórðarson, eða Siggi hakkari, þarf að greiða níu piltum, sem hann braut á á árunum 2011-2013, alls 8,6 milljónir króna í miskabætur. Um er að ræða tæplega sjötíu brot gegn piltunum, sem allir voru á unglingsárum þegar brotin áttu sér stað, þar af fjörutíu gegn einum þeirra. Bauð gull og græna skóga Sigurður bauð drengjunum himinháar peningagreiðslur, bíla, hús, tölvur, farsíma, gjafabréf og annars konar vilyrði fyrir kynmökin. Hann bauð peningagreiðslur frá nokkrum tugum þúsunda, allt upp í eitt hundrað milljónir króna. Peningana greiddi hann ekki en sveik þess í stað út fé frá að minnsta kosti einum dreng. Þá lofaði hann nokkrum þeirra að hann skyldi hakka sig inn í tölvukerfi skóla þeirra til að laga einkunnir þeirra og mætingu. Samskipti Sigurðar áttu sér flest stað í gegnum Facebook og fékk hann drengina til að hitta sig með því að telja þeim trú um að þeir fengju eitthvað í staðinn. Einum drengnum bauð hann tuttugu og fimm milljónir króna og bifreið, gegn því að drengurinn hefði við sig munnmök. Sigurður bauð drengjunum himinháar peningagreiðslur, bíla, hús, tölvur, farsíma, gjafabréf og annars konar vilyrði.vísir/gva Þrátt fyrir að pilturinn hefði neitað lét Sigurður sér ekki segjast því degi síðar bauðst hann til að greiða utanlandsferð fyrir piltinn og vini hans, gegn því að pilturinn léti karlmann hafa við sig munnmök, líkt og það er orðað í dómnum. Sigurður hélt áfram að áreita drenginn, áréttaði boð sitt um milljónirnar tuttugu og fimm, bauð honum að gerast hjá sér starfsmaður og sagðist geta breytt einkunnum hans. Um það bil mánuði síðar, eða hinn 4. desember 2012, samþykkti drengurinn að hitta Sigurð og óku þeir saman að hitaveitulögn þar sem Sigurður braut á drengnum. Sigurður gerði ítrekaðar tilraunir til að tæla drenginn með blekkingum til kynferðismaka, með því að telja honum trú um að hann fengi háar fjárhæðir og bifreið að launum. Lofaði að margfalda upphæðirnar Á jóladag árið 2012 sagðist Sigurður reiðubúinn til að margfalda upphæðirnar, gegn því að hann fengi aftur að hafa munnmök við piltinn. Hann bauðst til að bæta við 100 milljónum króna og Land Rover bifreið, gegn því að þeir myndu hittast þetta sama kvöld. Þá bauð Sigurður 200 þúsund krónur til viðbótar og hús, gegn endaþarmsmökum. Þannig héldu vilyrðin áfram eða allt til aprílmánaðar 2013. Á þessum sama tíma var Sigurður í samskiptum við fleiri drengi. Hinn 30. janúar 2013 bauð hann öðrum dreng bifreið að eigin vali, að upphæð 25-30 milljónum króna, gegn því að drengurinnn hefði við sig kynferðismök. Þá sagðist hann geta gert við hann starfssamning þar sem hann fengi tíu milljónir króna í laun á mánuði. Hann sagði drengnum jafnframt að hann skyldi opna bankareikning erlendis fyrir þangað sem greiðslurnar færu, en að hann þyrfti 120 þúsund krónur til að geta stofnað reikninginn. Vegna loforða Sigurðar lagði drengurinn inn á reikning hans fimmtíu þúsund krónur, en reikninginn stofnaði Sigurður aldrei. Sigurður var metinn sakhæfur en siðblindur.vísir/gva Sakhæfur en siðblindur Sem fyrr segir braut Sigurður gegn níu drengjum, fimmtán sinnum gegn einum þeirra og fjörutíu sinnum gegn öðrum. Hann játaði brotin á var dæmdur í þriggja ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Farið var fram á mat geðlæknis í málinu, sem mat það sem svo að Sigurður væri sakhæfur en siðblindur. Hann uppylli örugglega skilmerki fyrir persónuleikaröskun af andfélagslegri gerð. Hann þekki mun á réttu og röngu en „missi sig“ verði hann fyrir vonbrigðum. Um sé að ræða persónuleikaveilu. Sigurður var í febrúar í fyrra dæmdur í átta mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn sautján ára dreng. Níu mánuðum síðar var hann dæmdur í tveggja ára óskilorðsbundið fangelsi fyrir fjársvik. Sigurður byrjaði að hakka tölvur í kringum tólf ára aldur og starfaði síðar með Julian Assange og félögum í Wikileaks. Hann komst í heimspressuna þegar samvinna hans og Assange lauk með því að sá síðarnefndi sakaði hann um að hafa dregið að sér fé sem átti að renna til samtakanna. Dóminn má lesa hér.
Mál Sigga hakkara Kynferðisofbeldi Dómsmál Tengdar fréttir Siggi hakkari játar kynferðisbrot gegn níu drengjum Dómur verður því kveðinn upp á næstu vikum. 28. ágúst 2015 12:38 Fundar með ríkislögreglustjóra og ríkissaksóknara vegna FBI málsins - samantekt Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra kom heim frá Kína í gærdag og hefur fundað stíft síðan þá vegna FBI-málsins svokallaða. Hann hefur meðal annars setið fundi með Sigríði J. Friðjónsdóttur, ríkissaksóknara sem og Haraldi Johannessen, ríkislögreglustjóra. 11. febrúar 2013 15:15 Mál á hendur Sigga hakkara fellt niður - tveir aðrir grunaðir um að kúga fé út úr Nóa Síríus Sigurður Þórðarson, eða Siggi Hakkari, eins og hann er oft nefndur verður ekki ákærður fyrir aðild sína að fjárkúgunarmáli. Þetta kemur fram í bréfi frá Ríkissaksóknara sem Sigurður hefur nú birt á Twitter-síðu sinni. Sigurður þessi komst í fréttirnar á sínum tíma þegar í ljós kom að bandarískir alríkislögreglumenn höfðu yfirheyrt hann vegna tengsla hans við Wikileaks síðuna. 22. ágúst 2013 08:53 Siggi hakkari í tveggja ára fangelsi Sigurður Ingi Þórðarson, betur þekktur sem Siggi hakkari, hefur verið dæmdur í tveggja ára óskilorðsbundið fangelsi. 22. desember 2014 12:15 Siggi hakkari í þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn níu drengjum Héraðsdómur Reykjaness hefur kveðið upp dóm yfir Sigurði Inga Þórðarsyni. 24. september 2015 21:37 Siggi hakkari talar um barnæskuna: "Sakna þess að finnast ég venjulegur“ Sigurður Þórðarson, betur þekktur sem Siggi hakkari, var í ítarlegu viðtali sem birtist í danska miðlinum Politiken. 16. júlí 2014 17:01 Sakaður um að hafa svikið út skyndibita fyrir 350 þúsund Sigurður Ingi Þórðarson, betur þekktur sem Siggi hakkari er sakaður um að hafa svikið út mat frá American Style, KFC, Subway, Domino's og fleiri skyndibitastöðum á árunum 2012 og 2013. 11. júní 2014 14:38 Mest lesið Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Erlent Hafa miklar áhyggjur af verkfalli flugvirkja Innlent Leyfi Trump að líða eins og sigurvegara þó hann hafi ekkert unnið Innlent Vissi að viðræðum miðaði fram „þrátt fyrir skrítin kort“ Erlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Fleiri fréttir Ný umgjörð um daggæslu til skoðunar í ráðuneytinu Verkefnið sem hófst á Twitter stækkað umtalsvert Allir dómarar vanhæfir í máli ljósmóður á eftirlaunum Leyfi Trump að líða eins og sigurvegara þó hann hafi ekkert unnið Hafa miklar áhyggjur af verkfalli flugvirkja Danir sigurvegarar og ofurfólk í Heiðmörk Má heita Himbrimi og Aðalsól en ekki Kamban eða Heiðarr Eftirlýstur og með vopn á sér „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Steinhissa á sjö ára kröfu yfir „burðardýrum“ Undirrituðu viljayfirlýsingu um stækkun VMA Segja kröfulista Icelandair tefja samninga Carlsberg og Kamala komu við sögu í málsvörnum Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Moskítóflugan virðist hafa gufað upp Enginn með stöðu sakbornings vegna banaslyssins Játar innbrot í búin Reyna að afstýra verkfalli og moskítóflugan horfin Níu ákærðir fyrir að flytja inn rúm hundrað kíló kókaíns „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Sjá meira
Siggi hakkari játar kynferðisbrot gegn níu drengjum Dómur verður því kveðinn upp á næstu vikum. 28. ágúst 2015 12:38
Fundar með ríkislögreglustjóra og ríkissaksóknara vegna FBI málsins - samantekt Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra kom heim frá Kína í gærdag og hefur fundað stíft síðan þá vegna FBI-málsins svokallaða. Hann hefur meðal annars setið fundi með Sigríði J. Friðjónsdóttur, ríkissaksóknara sem og Haraldi Johannessen, ríkislögreglustjóra. 11. febrúar 2013 15:15
Mál á hendur Sigga hakkara fellt niður - tveir aðrir grunaðir um að kúga fé út úr Nóa Síríus Sigurður Þórðarson, eða Siggi Hakkari, eins og hann er oft nefndur verður ekki ákærður fyrir aðild sína að fjárkúgunarmáli. Þetta kemur fram í bréfi frá Ríkissaksóknara sem Sigurður hefur nú birt á Twitter-síðu sinni. Sigurður þessi komst í fréttirnar á sínum tíma þegar í ljós kom að bandarískir alríkislögreglumenn höfðu yfirheyrt hann vegna tengsla hans við Wikileaks síðuna. 22. ágúst 2013 08:53
Siggi hakkari í tveggja ára fangelsi Sigurður Ingi Þórðarson, betur þekktur sem Siggi hakkari, hefur verið dæmdur í tveggja ára óskilorðsbundið fangelsi. 22. desember 2014 12:15
Siggi hakkari í þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn níu drengjum Héraðsdómur Reykjaness hefur kveðið upp dóm yfir Sigurði Inga Þórðarsyni. 24. september 2015 21:37
Siggi hakkari talar um barnæskuna: "Sakna þess að finnast ég venjulegur“ Sigurður Þórðarson, betur þekktur sem Siggi hakkari, var í ítarlegu viðtali sem birtist í danska miðlinum Politiken. 16. júlí 2014 17:01
Sakaður um að hafa svikið út skyndibita fyrir 350 þúsund Sigurður Ingi Þórðarson, betur þekktur sem Siggi hakkari er sakaður um að hafa svikið út mat frá American Style, KFC, Subway, Domino's og fleiri skyndibitastöðum á árunum 2012 og 2013. 11. júní 2014 14:38