Styrkir FH stöðu sína á toppnum? Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 9. júlí 2016 12:30 Atli Guðnason skýtur að marki í leik liðanna í Kaplakrika í fyrra vísir/stefán
Einn leikur er í Pepsí deild karla í fótbolta í dag. FH tekur á móti Víkingi Reykjavík í fyrsta leik 10. umferðar í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport klukkan 16. FH hefur unnið þrjá 1-0 sigra í deildinni í röð og er með eins stigs forystu á Fjölni í efsta sæti deildarinnar. Víkingur er í 8. sæti með 11 stig en athygli vekur að bæði lið hafa aðeins skorað 12 mörk til þessa í sumar en FH er með lang bestu vörnina fram til þessa. Liðið hefur aðeins fengið 4 mörk á sig á meðan Víkingur hefur tíu sinnum þurft að sækja boltann úr netinu. Í síðustu fjórum leikjum sínum hefur Víkingur skipst á að vinna og tapa en liðið tapaði 1-0 fyrir Fylki í síðustu umferð. Víkingur er fjórum stigum frá fallsæti og þarf að sækja sigur í Kaplakrika til að koma sér í þægilega fjarlægð frá fallbaráttunni og um leið nálgast efri hluta deildarinnar í jafnri deild. FH vann báða leiki liðanna í deildinni í fyrra 1-0 og hefur alls unnið fimm síðustu deildarleiki liðanna. Víkingur vann FH síðast í deildinni í júní 1998 en síðan þá hefur FH unnið 9 leiki og fimm sinnum hafa liðin gert jafntefli. Útsending Stöðvar 2 Sport frá leiknum hefst klukkan 15:30.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kári reynir að hjálpa HK upp um deild Íslenski boltinn Liverpool vann Athletic tvívegis á Anfield Enski boltinn „Þeir standa fyrir eitthvað annað“ Fótbolti Áhorfendum vísað út af Anfield Enski boltinn „Báðir endar vallarins mættu vera betri“ Íslenski boltinn Tíu af bestu kylfingum landsins lögðu Minningarsjóð Bryndísar Klöru lið Golf „Skemmtilegra þegar vel gengur“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-3 | Létt verk fyrir meistarana Íslenski boltinn Risaskjár og stuðsvæði á Íslandsmótinu í golfi Golf Mark Kolbeins svo gott sem gulltryggði sigurinn Fótbolti Fleiri fréttir Kári reynir að hjálpa HK upp um deild „Báðir endar vallarins mættu vera betri“ „Skemmtilegra þegar vel gengur“ Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-3 | Létt verk fyrir meistarana Sjáðu umdeilda vítadóminn og sigurmarkið sem var dæmt af Sjáðu tvennu Sigurðar og snögg svör Víkinga Tómas Bent seldur til Skotlands Sigurður grautfúll: „Líður eins og við höfum tapað þessum leik“ „Dómur af himnum ofan“ Þurfa þrjú stig „ef við ætlum ekki að lenda í veseni“ „Ég veit ekkert hverjir þetta voru“ „Alltaf gaman að skora fyrir uppeldisfélagið“ Uppgjörið: FH - Víkingur 2-2 | Forza ragazzi! Uppgjör: Breiðablik - KA 1-1 | Umdeild vítaspyrna tryggði Íslandsmeisturunum stig „Lélegasti leikurinn okkar í sumar“ „Hefðum ekki átt að tapa þessum leik“ „Ég vona að tjaldið mitt sé ennþá þarna, það verður gaman í kvöld“ Uppgjörið: ÍBV - KR 2-1 | Fyrirliðinn tryggði fögnuð í Eyjum „Einhver blástur en ekkert sem á að hafa svakaleg áhrif“ ÍBV fær liðsstyrk úr Laugardal Jóhannes ræddi ekki við Val: „Ef ég ætlaði að fara frá KR var það alltaf bara út“ Kristján hættur sem þjálfari Vals en Matthías verður áfram Skoraði ekki í leiknum en dómararnir skráðu samt á hana tvö mörk Orri Hrafn í KR og getur spilað í Eyjum Alfreð og fleiri jálkar með óvænt félagaskipti yfir í Augnablik Selvén aftur í Vestra „Sætt að þetta gerðist á 91. mínútu“ KR sækir Arnar Frey af bekknum hjá HK Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 3-2 | Blikar í úrslit eftir ótrúlega endurkomu „Nákvæmlega það sem ég hef verið að sjá fyrir mér“ Sjá meira