Birna Berg ein af markahæstu leikmönnum Meistaradeildarinnar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. október 2016 12:30 Birna Berg Haraldsdóttir. Vísir/EPA
Íslenska stórskyttan Birna Berg Haraldsdóttir er heldur betur farin að minna á sig á ný eftir að hafa glímt við meiðsli síðustu misseri. Birna Berg skoraði ellefu mörk fyrir norska liðið Glassverket í Meistaradeildinni um helgina og er í hópi markahæstu leikmanna Meistaradeildarinnar eftir tvær umferðir. Birna Berg er komin með fimmtán mörk eða jafnmörg mörk og norska landsliðskonan Nora Mörk. Þær eru saman í öðru til þriðja sæti listans. Markahæsta konan í Meistaradeildinni eins og er er hollenska landsliðskonan Laura van der Heijden sem spilar fyrir Team Esbjerg í Danmörku. Van der Heijden hefur skorað 20 mörk eða fimm mörkum meira en Birna og Nora. Birna Berg var langmarkahæst í liði Glassverket sem tapaði 23-30 á heimavelli á móti Buducnost frá Svartfjallalandi. Birna Berg skoraði 48 prósent marka síns liðs og átta mörkum meira en sú næsta í norska liðinu. Birna var næstmarkahæst í fyrsta leiknum en hún skoraði þá fjögur mörk í átta marka tapi Glassverket á útivelli á móti Thüringer HC frá Þýskalandi. Birna Berg hafði auk þess skorað átta mörk í tveimur leikjum í undankeppninni þegar Glassverket tryggði sér sæti í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Nú er bara að vona að Birna Berg haldist heil og komist í enn betra form fyrir komandi leiki íslenska landsliðsins.
Íslenski handboltinn Handbolti Mest lesið Valur - FH 27-26 | Valur er Íslandsmeistari eftir sigur gegn FH í oddaleik Handbolti Yfirlýsing ÍBV: Hafdís beðin afsökunar og maðurinn í bann Handbolti Fordómar í garð Hafdísar á borð HSÍ: „Litið grafalvarlegum augum“ Handbolti „Ekki hægt að réttlæta þessa ákvörðun“ Fótbolti Valverde á spítala eftir önnur slagsmál við Tchouameni Fótbolti Markið frá Kane gæti reynst óhemju dýrmætt fyrir allt annað lið Fótbolti Hetjan Einar sleginn í punginn: „Svona á ekki heima á handboltavelli“ Handbolti Íslandsmeistari gegn uppeldisfélaginu í síðasta leiknum á ferlinum Handbolti Galin hegðun sjálfboðaliða Sport Shakira gefur út nýtt HM lag Fótbolti Fleiri fréttir Myndaveisla: Tilfinningarík stund þegar bikarinn fór á loft á Hlíðarenda Gidsel getur mölbrotið markamet Hansen „Við áttum þetta skilið“ Íslandsmeistari gegn uppeldisfélaginu í síðasta leiknum á ferlinum Magnaður Haukur með tíu marka leik í mikilvægum sigri Valur - FH 27-26 | Valur er Íslandsmeistari eftir sigur gegn FH í oddaleik Ómar Ingi markahæstur á leið í úrslitahelgina Titillinn undir í oddaleik: „Eitthvað magnað sem ræður úrslitum í kvöld“ Yfirlýsing ÍBV: Hafdís beðin afsökunar og maðurinn í bann Fordómar í garð Hafdísar á borð HSÍ: „Litið grafalvarlegum augum“ Titillinn undir: „Bæði lið hafa spilað feykilega vel“ Hetjan Einar sleginn í punginn: „Svona á ekki heima á handboltavelli“ Viktor Gísli áfram í Final Four en Orri Freyr úr leik Einar Bragi sleginn í punginn en svaraði vel fyrir sig Grátlegt tap hjá Bjarka í vítakastkeppni Mikið tap á rekstri HSÍ: „Verulegar áhyggjur“ Áfram þrátt fyrir tap í Íslendingaslag Uppgjörið: ÍBV 23-25 Valur | Valskonur einum sigri frá Íslandsmeistaratitli Íslendingaliðið tryggði sér oddaleik Geta unnið 22. leikinn í röð: „Þetta verður stál í stál“ Brosandi út að eyrum allan daginn eftir landsliðsvalið Mikil mistök að hafa selt Viggó Myndasyrpa: Landsliðsþjálfarar á ógleymanlegum slag í Krikanum „Get alveg lofað þér því að honum leiddist þetta ekkert“ „Nú er það bara kassinn út á fimmtudaginn“ „Leið eins og við værum búnir að vinna þennan leik svona fimm sinnum“ Uppgjörið: FH - Valur 37-36 | FH knúði fram oddaleik í maraþonleik „Það er ekkert grín að mæta í Kaplakrika“ Hættir með Noreg og tekur við Óðni Thea fer í rúmenskt félag með íslenska tengingu Sjá meira