FH fær ekki krónu frá Kiel fyrir einn efnilegasta handboltamann Evrópu Hörður Magnússon skrifar 7. desember 2017 19:15 Gísli Þorgeir Kristjánsson. Vísir/Ernir
FH fær ekki krónu frá þýska stórliðinu Kiel fyrir landsliðsmanninn efnilega í handknattleik, Gísla Þorgeir Kristjánsson, samkvæmt heimildum íþróttadeildar. Hafnarfjarðarliðið getur aðeins sótt uppeldisbætur fyrir leikmanninn til evrópska handknattleikssambandsins. En það eru smáaurar. FH getur sótt því aðeins sótt uppeldisbætur til EHF fyrir hvert ár sem Gísli er samningsbundinn leikmaður meistaraflokks. 2500 evrur fyrir hvert ár, 310 þúsund krónur. Samkvæmt heimildum íþróttadeildar vildi Gísli aðeins semja til eins árs síðastliðið sumar. Kiel er eitt stærsta félag Evrópu og greiddi til dæmis eina milljón evra fyrir Domagoj Duvnjak. Alfreð Gíslason hefur áður sótt leikmann til FH. Aron Pálmarsson fór til Kiel árið 2009 og samkvæmt öruggum heimildum íþróttadeildar greiddi Kiel, FH, 60 þúsund evrur á þeim tíma fyrir Aron sem eru tæpar átta milljónir á núverandi gengi. Auk þess greiddi Kiel FH ýmislegt annað í formi utanlandsferða sem nýttist félaginu á sínum tíma. Allt annað er upp á teningnum að þessu sinni. Samningur Gísla við FH rennur út í vor og þá er hann laus allra mála. Kiel fær því einn efnilegasta handboltamann Evrópu frítt og hafnarfjarðarliðið fær ekki krónu, samkvæmt öruggum heimildum íþróttadeildar. Ásgeir Jónsson formaður handknattleiksdeildar FH vildi ekkert tjá sig um málefni Gísla og varðist allra frétta þegar íþróttadeild leitaði til hans í dag.
EM 2018 í handbolta Handbolti Íslenski handboltinn Olís-deild karla Mest lesið Ósk pínir Þórdísi til sigurs: „Ég er ekki mamma eða pabbi hennar“ Sport Younghoe sparkað burt Sport Svíar vinna Ólympíubronsið 2010: „Fáránlegt að þetta hafi tekið svona langan tíma“ Sport Þrjú rauð spjöld á Sauðárkróki: Tindastóll fer á Laugardalsvöll Fótbolti Selfoss fagnaði fyrsta sigrinum gegn Fram Handbolti Kristian skoraði og lagði upp í stórsigri gegn fyrrum félögum Fótbolti Björn Borg tók of stóran skammt af eiturlyfjum Sport Valur sótti nauman sigur norður Handbolti Tímabilið byrjar vel hjá lærisveinum Guðjóns Vals Handbolti Stjarnan vann háspennuleik gegn HK Handbolti Fleiri fréttir Selfoss fagnaði fyrsta sigrinum gegn Fram Stjarnan vann háspennuleik gegn HK Valur sótti nauman sigur norður Tímabilið byrjar vel hjá lærisveinum Guðjóns Vals „Reyndum allt en ekkert gekk upp“ Uppgjörið: FH - ÍBV 36-30 | Sigur FH var aldrei í hættu gegn flötu liði ÍBV Ómar markahæstur og Gísli skoraði sigurmarkið Haukar völtuðu yfir ÍR Orri skilaði þremur úr horninu í miklum markaleik Skylda að klippa vel neglur í handbolta Róbert hættir hjá HSÍ Kastaði stól í Eyjum og fékk þriggja leikja bann Janus sagður á leið til Barcelona Sigvaldi markahæstur í öruggum sigri Kolstad Ljóst hvaða lið mætast í 16-liða úrslitum Powerade-bikarsins Uppþot í Eyjum: „Í kvöld töpuðu íþróttirnar“ Hundfúll út í Refina Arnór framlengir til 2028: „Vil sjá hversu langt við getum farið“ Guðjón Valur fagnaði sigri gegn meisturunum Meistararnir keyrðu yfir nýliðana í seinni hálfleik „Þess vegna unnum við“ „Langt frá því að vera eins og við eigum að vera“ Andrea skoraði sjö í öruggum sigri ÍR og nýliðarnir á toppnum Uppgjörið: Valur - Haukar 21-24 | Bikarmeistararnir skákuðu Íslandsmeisturunum Haukar sóttu tvö stig norður Sneypuför Stjörnumanna til Eyja Viggó magnaður í dramatísku jafntefli Staðan grafalvarleg og HSÍ leitar nýrra leiða Uppgjör: Valur - FH 27-32 | Jón Þórarinn skellti í lás þegar FH sótti tvö stig á Hlíðarenda Sjá meira