Haukar og Fram byrja á sigrum Anton Ingi Leifsson skrifar 18. september 2018 21:15 Bertha skoraði átta mörk í kvöld. vísir/bára
Íslandsmeistarar Fram í Olís-deild kvenna byrja tímabilið á sigri en meistararnir unnu sex marka sigur á Selfyssingum í kvöld, 30-24. Leikið var í nýja íþróttahúsinu á Selfossi, Hleðslu-höllinni, en jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik. Fram leiddi í hálfleik 15-13. Íslandsmeistararnir voru einfaldlega sterkari í síðari hálfleik. Lokatölur urðu sex marka sigur þeirra, 30-24, og byrjar titilvörnin því á sigri. Ragnheiður Júlíusdóttir gerði sjö mörk fyrir Fram, Steinunn Björnsdóttir sex og Þórey Rósa Stefánsdóttir fimm. Hildur Þorgeirsdóttir bætti svo við fjórum mörkum. Hjá heimastúlkum var það Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir sem var markahæst. Hún skoraði átta mörk en þær Perla Ruth Albertsdóttir og Kristrún Steinþórsdóttir skoruðu sex hvor. Haukar, sem urðu meistarar meistaranna á dögunum, byrja einnig á sigri í deildinni því í kvöld vann liðið nýliða HK örugglega, 27-18. Haukarnir byggðu upp gott forskot í fyrri hálfleiknum. Þær leiddu í hálfleik 13-7 og þær létu það forskot aldrei af hendi. Munurinn varð að endingu níu mörk. Sigríður Hauksdóttir var í sérflokki hjá nýliðunum en hún skoraði níu mörk. Berta Rut Harðardóttir og Maria Pereira drógu vagninn hjá Haukum en þær skoruðu átta mörk hvor.
Olís-deild kvenna Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Íslenski boltinn Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Íslenski boltinn Brasilísk fótboltagoðsögn lést rétt fyrir HM Fótbolti Lærisveinar Heimis missa heimaleik á hlutlausan völl Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira