Mikil markaveisla í Víkingsleikjunum í sumar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. maí 2019 13:00 Miðvörðurinn Sölvi Geir Ottesen er kominn með tvö mörk í sumar en Víkingsliðið hefur fengið á sig þrjú mörk eða fleiri í þremur af fjórum leikjum sínum. Vísir/Bára
Víkingar hafa boðið upp á mikið af mörkum en minna af stigum í fyrstu leikjum sínum í Pepsi Max deild karla í sumar. Arnar Gunnlaugsson skoraði á sínum tíma 15 mörk í 7 leikjum með Skagaliðinu sumarið 1995. Það er líka nóg af mörkum í fyrstu leikjum hans sem þjálfari Víkinga. Víkingar töpuðu 4-3 á móti Stjörnunni í gærkvöldi og hafa enn bara tvö stig í deildinni. Það er merkilegt ekki síst þar sem aðeins Skagamenn hafa skorað fleiri mörk en Víkingsliðið í Pepsi Max deildinni í sumar. Átta mörk Víkinga hafa aðeins skilað liðinu tveimur stigum sem er heldur rýr uppskera. Vandamálið er að Víkingar hafa fengið á sig ellefu mörk eða mun fleiri en öll önnur lið í deildinni. Þetta tvennt gerir hinsvegar að verkum að það hafa verið skoruð 19 mörk í fyrstu fjórum leikjum Víkinga eða næstum því fimm mörk að meðaltali í leik. Hingað til í sumar eru því 1,5 fleiri mörk skoruð í Víkingsleikjunum en í leikjum Vals og ÍBV sem komu næst Fossvogsliðinu hvað varðar markaveislu í sínum leikjum. Fæst mörk eru aftur á móti skoruð í leikjum KR og HK eða aðeins 2,3 mörk að meðaltali hjá hvoru liði.Mörk að meðaltali í leikjum liða í Pepsi Max deild karla í sumar: 1. Víkingur R. 4,8 2. Valur 3,3 2. ÍBV 3,3 4. ÍA 3,3 5. Stjarnan 3,0 5. Fylkir 3,0 7. Breiðablik 2,8 7. FH 2,8 7. KA 2,8 10. Grindavík 2,7 11. KR 2,3 11. HK 2,3
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Elísa stórbætti metið í hundrað kílómetra hlaupi: „Mér líður furðuvel“ Sport Lars Lagerbäck lenti í slysi og kemur ekki til Íslands Fótbolti Eigandi Newcastle gæti hjálpað Liverpool að kaupa Isak Enski boltinn Stuðningsmönnum danska liðsins ekki hleypt inn í Svíþjóð Fótbolti Sjáðu guttann skora geggjað mark fyrir Liverpool: Ný stjarna fædd á Anfield Enski boltinn Hinn óendanlegi leikmannahópur Chelsea Enski boltinn Kári reynir að hjálpa HK upp um deild Íslenski boltinn Liverpool vann Athletic tvívegis á Anfield Enski boltinn „Hættiði að henda dildóum inn á völlinn“ Körfubolti Máluðu dvergana sjö í kringum fræga veggmynd af Lamine Yamal Fótbolti Fleiri fréttir Kári reynir að hjálpa HK upp um deild „Báðir endar vallarins mættu vera betri“ „Skemmtilegra þegar vel gengur“ Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-3 | Létt verk fyrir meistarana Sjáðu umdeilda vítadóminn og sigurmarkið sem var dæmt af Sjáðu tvennu Sigurðar og snögg svör Víkinga Tómas Bent seldur til Skotlands Sigurður grautfúll: „Líður eins og við höfum tapað þessum leik“ „Dómur af himnum ofan“ Þurfa þrjú stig „ef við ætlum ekki að lenda í veseni“ „Ég veit ekkert hverjir þetta voru“ „Alltaf gaman að skora fyrir uppeldisfélagið“ Uppgjörið: FH - Víkingur 2-2 | Forza ragazzi! Uppgjör: Breiðablik - KA 1-1 | Umdeild vítaspyrna tryggði Íslandsmeisturunum stig „Lélegasti leikurinn okkar í sumar“ „Hefðum ekki átt að tapa þessum leik“ „Ég vona að tjaldið mitt sé ennþá þarna, það verður gaman í kvöld“ Uppgjörið: ÍBV - KR 2-1 | Fyrirliðinn tryggði fögnuð í Eyjum „Einhver blástur en ekkert sem á að hafa svakaleg áhrif“ ÍBV fær liðsstyrk úr Laugardal Jóhannes ræddi ekki við Val: „Ef ég ætlaði að fara frá KR var það alltaf bara út“ Kristján hættur sem þjálfari Vals en Matthías verður áfram Skoraði ekki í leiknum en dómararnir skráðu samt á hana tvö mörk Orri Hrafn í KR og getur spilað í Eyjum Alfreð og fleiri jálkar með óvænt félagaskipti yfir í Augnablik Selvén aftur í Vestra „Sætt að þetta gerðist á 91. mínútu“ KR sækir Arnar Frey af bekknum hjá HK Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 3-2 | Blikar í úrslit eftir ótrúlega endurkomu „Nákvæmlega það sem ég hef verið að sjá fyrir mér“ Sjá meira