Gjaldþrot Smellinn nam 650 milljónum króna Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 3. júní 2019 10:52 Um áttatíu manns störfuðu hjá Smellinn þegar mest var.
Skiptum er lokið í þrotabú byggingafyrirtækisins Smellinn á Akranesi sem framleiddi einingarhús. Lýstar veðkröfur í búið námu 657 milljónum króna. Þarf af voru veðkröfur 585 milljónir króna en almennar kröfur 72 milljónir króna. Frá þessu er greint í Lögbirtingablaðinu. Smellinn, sem var í eigu BM Vallár, var úrskurðað gjaldþrota í ágúst 2010. Smellinn varð til árið 2000 sem deild í fyrirtækinu Þorgeir og Helgi hf. á Akranesi. Árið 2004 voru gerðar skipulagsbreytingar á móðurfélaginu og stefnan tekin á framleiðslu húseininga. Var nafni fyrirtækisins þá breytt í Smellinn hf. og var starfsmannafjöldinn fljótlega kominn í 80 manns, að því er fram kom í umfjöllun Viðskiptablaðsins árið 2010. Eignarhaldsfélag Víglundar Þorsteinssonar, sem einnig var móðurfélag BM Vallá, gekk síðan frá kaupum á fyrirtækinu Smellinn hf. á Akranesi haustið 2007. BM Vallá var síðan úrskurðað gjaldþrota með 10 milljarða króna skuldir á bakinu í maí 2010.Fyrr í dag var fjallað um 12 milljarða króna Fasteignafélagsins Ármanns, sem hélt utan um fasteignir BM Vallá.BM Vallá er í dag rekið á annarri kennitölu og notast enn við Smellinn einingarlausnir.
Gjaldþrot Tengdar fréttir Móðurfélag BM Vallá kaupir Smellinn hf. Eignarhaldsfélag Víglundar Þorsteinssonar, sem einnig er móðurfélag BM Vallá, hefur gengið frá kaupum á fyrirtækinu Smellinn hf. á Akranesi. Kaupverð er ekki gefið upp. 5. nóvember 2007 18:48 Mest lesið Óttast ekki komu Starbucks til Íslands Viðskipti innlent Hömlulaus einokun á Keflavíkurflugvelli Viðskipti innlent „Þetta eru bara krakkar sem eru í þessu fyrir peningana“ Neytendur Selja Íslandsbanka á næstu vikum þó það sé „mikil óvissa“ Viðskipti innlent „Var með skipt í miðju og notaði óhóflegt magn af geli“ Atvinnulíf Buffet hættir sem forstjóri við lok árs Viðskipti erlent Minni sala í skugga slæmra efnahagshorfa Viðskipti erlent Engar viðræður fyrr en Trump fellir niður tolla Viðskipti erlent Innkalla kjúkling vegna gruns um salmonellu Neytendur Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Óttast ekki komu Starbucks til Íslands Selja Íslandsbanka á næstu vikum þó það sé „mikil óvissa“ Hömlulaus einokun á Keflavíkurflugvelli „Í markaðshagkerfi þurfa menn bara að synda“ Kaupfélagið hagnaðist um 3,3 milljarða Syndis kaupir Ísskóga Segja afkomuna ásættanlega þrátt fyrir tap „Þetta er ömurleg staða“ Landsbankinn hagnaðist um 7,9 milljarða á fyrsta ársfjórðungi Hætta við að selja hlutina í Olíudreifingu Tap á Vinnslustöðinni og fjárfestingar settar á ís Rannsaka meint samkeppnisbrot Landsvirkjunar Staðfesta frávísun vegna stefnu Samskipa í samráðsmáli Play tapaði þremur og hálfum milljarði á fyrsta ársfjórðungi Staðfesta að gjöf í formi bankakorts er skattskyld Þau vilja stýra ÁTVR Býst ekki við að verðbólgan hafi áhrif á vaxtalækkunarferlið Um þrjátíu prósent hafa miklar áhyggjur af áhrifum tolla á Ísland Lauf Cycles lýkur tæplega 500 milljóna króna fjármögnun Verðbólga eykst hressilega og fer aftur yfir fjögur prósent Tæpur tveggja milljarða hagnaður á fyrsta ársfjórðungi Ráðinn forstjóri Arctic Fish Veitingamaður ákærður fyrir hundrað milljóna skattsvik Fokdýr dómsmál tjónka ekki við ÁTVR Veiðir hrefnu í sumar og selur kjötið á Íslandi Semja við Ístak um gerð mannvirkja fyrir fyrsta vindorkuver landsins Jón segir bull að FBI-kempa hafi óvænt bankað upp á með stefnu Ekki má vanmeta áhrifin af tollastríði á íslensk fyrirtæki Pizzur í stað smurbrauðs á nýrri Króníku Fjármögnun tryggð fyrir nýrri landeldisstöð Samherja Sjá meira
Móðurfélag BM Vallá kaupir Smellinn hf. Eignarhaldsfélag Víglundar Þorsteinssonar, sem einnig er móðurfélag BM Vallá, hefur gengið frá kaupum á fyrirtækinu Smellinn hf. á Akranesi. Kaupverð er ekki gefið upp. 5. nóvember 2007 18:48