Rúnar Páll: Það getur allt gerst í þessu Guðlaugur Valgeirsson skrifar 2. júní 2019 21:32 Rúnar Páll var ánægður í kvöld. vísir/daníel
Rúnar Páll Sigmundsson var gríðarlega ánægður með sigur sinna manna gegn Val í kvöld. Þeir voru 1-0 undir í hálfleik en snéru leiknum sér í hag og unnu leikinn 2-1. Hann sagði sigurinn vera mjög mikilvægan upp á framhaldið í sumar. „Gríðarlega mikilvægur sigur og kærkomið. Við höfum ekki verið að ná í úrslit þrátt fyrir að vera betri aðilinn í leikjum fyrr í sumar þannig þetta var mjög sætt.” Rúnar var mjög ánægður með innkomu Guðmundar Steins sem skoraði sigurmark Stjörnunnar. „Já mjög sáttur, þetta er það sem hann er flinkur í. Liðið í heild sinni var frábært í dag og mættu mjög tilbúnir til leiks og við þurfum að halda þessu áfram.” Hann sagði að það hafi verið mjög svekkjandi að sjá mistökin í fyrri hálfleik sem gáfu Valsmönnum forystuna í leiknum. „Auðvitað var það svekkjandi en svona er boltinn, það getur allt gerst í þessu og við ræddum vel saman í hálfleik og vorum ákveðnir að vera þolinmóðir og það skilaði þremur stigum í dag.” Hann sagði að lokum hvað það væri mikilvægt að fara inn í landsleikjafríið með sigur á bakinu frekar en tap. „Það er gríðarlega mikilvægt og upp á framhaldið skiptir það öllu og fyrir framan þennan frábæra stuðning sem gaf mikið í dag. Við gætum ekki verið ánægðari,” sagði Rúnar Páll að lokum.
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Leik lokið: Stjarnan - Valur 2-1 | Valur á botninum eftir dramatík í Garðabæ Íslandsmeistararar Vals eru neðstir er Pepsi Max-deildin fer í frí. 2. júní 2019 21:45 Mest lesið Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Sjáðu Dag Sig taka „Purple Rain“ með Prince á rafmagnsgítar Handbolti „Þetta er alveg ótrúlegur grís“ Sport Eini leikmaðurinn sem gaf boltann aldrei á EM Handbolti „Fannst ég mjög ryðgaður ef ég á að vera alveg hreinskilinn“ Sport Juve hent út úr bikarnum í vel heppnaðri hefndartilraun Fótbolti Gæti verið valinn fyrstur í nýliðavalinu en líka endað í tuttugu ára fangelsi Sport Meistararnir stöðvuðu Mosfellinga Handbolti Uppgjörið: Valur - Haukar 34-41 | Hafnfirðingar tylla sér á toppinn Handbolti Alfons lá eftir en fékk svo boltann og skoraði Fótbolti Fleiri fréttir Samþykkti að taka slaginn en sleit strax hásin Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Böðvar kominn til ÍA frá FH Víkingar keyptu Helenu af Val Stjarnan sækir miðvörð að vestan Kralj fer til Keflavíkur Meistararnir fá liðsstyrk af Akranesi „Búið að vera smá erfitt fyrir hausinn en svona gerist“ Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik Íslandsmeistararnir byrja vel og KR sótti sigur á Akureyri Valur er Reykjavíkurmeistari árið 2026 Davíð Smári sækir fleiri leikmenn úr bikarævintýrinu Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu Sjá meira
Leik lokið: Stjarnan - Valur 2-1 | Valur á botninum eftir dramatík í Garðabæ Íslandsmeistararar Vals eru neðstir er Pepsi Max-deildin fer í frí. 2. júní 2019 21:45