Stýrir fyrirtæki í New York úr Vesturbænum Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar 21. september 2019 11:00 "Maður verður að hafa óbilandi trú á því að takast að framkvæma hluti,“ segir Eva Maria Daniels Fréttablaðið/Valli
Eva Maria Daniels kvikmyndaframleiðandi rekur farsælt fyrirtæki í New York og segir frá nýjasta verkefninu, Good Joe Bell, sem skartar Mark Wahlberg í aðalhlutverki. Þrautseigju og ástríðu segir hún vera þá eiginleika sem hafi stuðlað að velgengni síðustu ár. „Það á víst ekki að skína sól á Íslandi það sem eftir er árs,“ segir kvikmyndaframleiðandinn Eva Maria Daniels glettilega og horfir út um gluggann. Hún er stödd í íbúð sinni í Vesturbænum í Reykjavík. Það er dæmigert haustveður og í garðinum slást til og sveigjast stór reynitré í sterkum regnhviðum. Eva Maria segist kunna ágætlega við haustveðrið og hlakkar til þess að dvelja á Íslandi í vetur. „Ég hef ekki búið á Íslandi í átján ár, þótt ég hafi reyndar komið reglulega til Íslands. Ég ætla að búa hér til jóla og í raun þá kýs ég veturinn fram yfir íslenska sumarið. Finnst það bara notaleg tilhugsun að vera hér í myrkrinu.“Hún hefur verið búsett síðustu ár í New York með eiginmanni sínum og tveggja ára syni. Eiginmaður hennar, Moritz Diller, starfar í fjárfestingarbanka og fékk nýverið nýtt starf í London. Eftir áramótin ætlar fjölskyldan því að f lytja sig um set frá New York til Notting Hill hverfisins í London. Þangað til gengur tveggja ára sonur Evu í leikskóla í Vesturbænum.Vill að sonurinn læri íslensku „Mig langar til þess að sonur minn læri íslensku, því það er erfitt að halda tungumálinu við. Ég hef verið með yndislegar íslenskar au pair til þess að hann heyri sem mest af íslensku en það er ekki nóg þar sem pabbi hans talar þýsku við hann og f lestir leikfélagarnir ensku,“ segir Eva Maria. „Svo erum við líka að reyna að finna einhvern vinkil á því að búa í báðum borgum á sama tíma.“ Hún heldur um taumana á verkefnum sínum frá Íslandi en hún rekur farsælt kvikmyndaframleiðslufyrirtæki í New York, Eva Daniels Productions. Fyrirtækið stofnaði hún árið 2010 og Eva Maria hefur síðan þá framleitt þó nokkrar kvikmyndir. Til dæmis The Dinner með Richard Gere, Steve Coogan og Laura Linney í aðalhlutverkum sem Oren Moverman leikstýrði. Hún var gerð eftir skáldsögu Hermans Koch, Kvöldverðinum. Þá framleiddi hún Hold the Dark með Jeffrey Wright og Alexander Skarsgård í aðalhlutverkum og Time out of Mind með Richard Gere í aðalhlutverki. Eva Maria er einnig einn af framleiðendum End of Sentence sem er opnunarmynd RIFF í ár í leikstjórn Elfars Aðalsteinssonar. Nú framleiðir Eva Maria kvikmyndina Good Joe Bell, í leikstjórn Reinaldo Marcus Green. Í aðalhlutverki er Mark Wahlberg ásamt Connie Britton og Gary Sinise. Handritshöfundar eru Larry McMurtry og Diana Ossana, sem skrifuðu handrit kvikmyndarinnar Brokeback Mountain. Kvikmyndin byggir á ævi Joe Bell sem gekk um fylki Bandaríkjanna í marga mánuði og ræddi við alla þá sem vildu hlusta um ástæður þess að samkynhneigður sonur hans, Jadin, fyrirfór sér aðeins fimmtán ára gamall. Enn ríkja fordómar „Ég las grein um Joe Bell í New York Times fyrir fimm árum síðan og ákvað strax að lestri loknum að ég vildi taka þátt í að gera kvikmynd byggða á sögu hans. Mér tókst að semja um það í góðra vina hópi og við byrjuðum f ljótlega eftir það að þróa handritið. Við vorum ótrúlega heppin að fá til liðs við okkur þau Larry og Diönu, handritshöfunda Brokeback Mountain. Það var svo á síðasta ári sem Mark Wahlberg kom til liðs við okkur og þá fór kvikmyndin að verða að raunveruleika og tökur fóru fram í Utah í byrjun ársins,“ segir Eva Maria frá. „Saga Joe Bell tekur á svo mörgu og varð svo miklu dýpri en bara Joe að bera út þennan boðskap.Joe notaði þessa ferð til að horfast í augu við þann sársauka sem hann hafði valdið, bæði sem faðir og eiginmaður, og þurfti að standa andspænis öllum þeim fordómum sem hann var sjálfur áður haldinn. Joe hafði íhaldssamar skoðanir og á meðan sonur hans var á lífi þá gekkst hann ekki við því hver hann var og kynhneigð hans. Það þurfti andlát sonar hans til að hann áttaði sig og breytti hugarfari sínu. Hann hélt út á veginn til að ræða við fólk augliti til auglitis um fordómana og kenna því samkennd. Þetta er mjög rík karakterstúdía sem endurspeglar mjög vel Ameríku í dag,“ segir Eva Maria. „Við sem búum í frjálslyndum samfélögum höldum að fordómar gegn samkynhneigðum séu liðin tíð. En það er ekki þannig. Fordómar ríkja enn þá og fólk er áreitt vegna kynhneigðar sinnar. Það er því miður þannig að ennþá kvelst fólk vegna eineltis og áreitis.“ Kvikmyndin er í söluferli og var nýverið kynnt á árlegri kvikmyndahátíð í Toronto. „Við munum líklega ljúka við gerð kvikmyndarinnar fyrir áramót. Nú er hún í eftirvinnslu. Það fer svo eftir dreifingaraðilanum hvenær hún fer í sýningu en ég geri ráð fyrir því að það verði á næsta ári. Mér finnst það alla vega líklegt,“ segir Eva Maria. Á réttum stað á réttum tíma „Ég vil framleiða kvikmyndir sem hafa tilgang og merkingu, hreyfa við fólki. Ég hef alltaf haft ástríðu fyrir því,“ segir hún og það kemur ekki á óvart að kvikmyndaáhuginn hafi kviknað snemma. Eva Maria var aðeins 22 ára gömul þegar hún flutti frá Íslandi. Þá hafði hún stundað nám í heimspeki við Háskóla Íslands en vildi bæta við sig þekkingu á kvikmyndagerð. Hún fór því í kvikmyndaskóla í Danmörku, KBH Film & Fotoskole, og sérhæfði sig í eftirvinnslu. Eftir námið f lutti Eva Maria til London og sá f ljótlega tækifæri í því að bjóða íslenskum auglýsingaleikstjórum að vinna myndir sínar þar. „Ég bauð íslenskum auglýsingaleikstjórum að færa viðskipti sín frá Danmörku til mín í London í litaleiðréttingu og eftirvinnslu. Þá var enn notast við filmu í kvikmyndagerð og litaleiðrétting var ekki möguleg á Íslandi. Það leið ekki á löngu þar til að nærri því hver einasti auglýsingaleikstjóri var kominn í viðskipti við fyrirtækið og ég hugsa það ennþá til dagsins í dag hvað ég var ótrúlega heppin að vera á réttum stað á réttum tíma og hvað það voru margir sem gáfu mér tækifæri. Á þessum árum áttaði ég mig á styrkleikum mínum, sem fólust ekki í eftirvinnslunni sjálfri heldur í því að koma af stað verkefnum, átta mig á tækifærum og sækja þau.“Setti sér tíu ára markmið Hún fékk gott starfstilboð í New York árið 2007 og lét slag standa. Hún varð yfirmaður í kvikmyndadeild í eftirvinnslufyrirtæki þar í borg og fékk að vinna náið með leikstjórum á borð við Tim Burton. Þremur árum síðar stofnaði hún framleiðslufyrirtæki sitt, Eva Daniels Productions, með það í huga að framleiða kvikmyndir sem hafa það að markmiði að veita innblástur. „Ég ákvað að færa fókusinn yfir í kvikmyndaþróun og var mjög einbeitt. Ég setti mér tíu ára markmið um að ég skyldi starfa í þessum iðnaði og búa í London, New York og Los Angeles. Mér tókst það að minnsta kosti,“ segir hún og hlær og segir þrautseigju og þolinmæði líklega þá mannkosti sem gerðu það að verkum að henni tókst ætlunarverk sitt og rúmlega það. „Og ástríðu, maður verður að hafa óbilandi trú á því að takast að framkvæma hluti, þó að stundum gangi illa. Maður verður að búa yfir ákveðinni seiglu til þess að þola að stundum ganga hlutirnir ekki hratt og vel fyrir sig. Stundum þarf maður að hafa vit á því að bíða eftir því að púslin raðist saman.“
Birtist í Fréttablaðinu Hollywood Reykjavík Mest lesið „Þau ákváðu einfaldlega að hann væri minna fatlaður í Garðabæ“ Innlent Segir nýtt að konan sé tekin á beinið Innlent Fimmtán ára piltur ók undan lögreglu um allt höfuðborgarsvæðið Innlent „Þjóðin á ekki fiskinn í sjónum, fiskurinn á sig sjálfur í sjónum“ Innlent Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Innlent Lalli Johns er látinn Innlent Sakar Rússa um að hafa brennt stærstu verslunarmiðstöð Póllands Erlent Fær um 90 milljónir fyrir verkið sem hópur Eyjamanna vill ekki sjá Innlent Bandaríkjaforseti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“ Erlent Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli Erlent Fleiri fréttir Karl Wernersson ákærður fyrir að leyna verðmætum listaverkum fyrir skiptastjóra Martraðakennd leigubílaferð og óvelkomin sána Þorbjörg um sérstakan saksóknara: „Gerum þennan tíma upp“ Hrærður yfir áhuga stjórnarandstöðunnar en hafði annað að gera Fær um 90 milljónir fyrir verkið sem hópur Eyjamanna vill ekki sjá Fimmtán ára piltur ók undan lögreglu um allt höfuðborgarsvæðið Reyna enn einu sinni að ræða framtíð MÍR á aðalfundi Leggja til róttækar breytingar á byggingaeftirliti Á von á veiðigjaldamálinu í sína nefnd og þingstörfum fram í júlí Segir nýtt að konan sé tekin á beinið „Ofgnótt af vannýttum stæðum“ Veiðigjöldin afgreidd í nefnd og njósnarar buðu Sjóvá þjónustu sína Bein útsending: Aðgerðir til að bregðast við rakaskemmdum og öðrum byggingagöllum Mikil hætta meðan maður reyndi að flýja lögreglu í miðbænum „Þjóðin á ekki fiskinn í sjónum, fiskurinn á sig sjálfur í sjónum“ Langflestir telja stríð og átök það sem helst þjakar heiminn „Þau ákváðu einfaldlega að hann væri minna fatlaður í Garðabæ“ Kölluð út vegna viðskiptavinar með æsing Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Lalli Johns er látinn Afnám virðisaukaskatts geti skilað björgunarsveitum fúlgum fjár Ein staða fornleifafræðings eftir á Þjóðminjasafninu Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Aðgerðir gegn Temu og Shein, hraðbanki í hættu og þreyttir hlaupagarpar í beinni „Eiga sína síðustu daga í faðmi ástvina undir hamraslætti og múrborum“ Mótorhjólasamtök aðstoða börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi Hækka þurfi veiðigjald í skrefum 230 íbúðir í byggingu í Þorlákshöfn Vopnahlé og í beinni frá Basel og Öskjuhlíð Björgunarsveitir vilja undanþágu frá virðisaukaskatti Sjá meira