Stefna að miklum fjárfestingum og lækkun skulda Samúel Karl Ólason skrifar 30. september 2021 16:16 Innan samstæðunnar eru Veitur, Orka náttúrunnar, Gagnaveita Reykjavíkur og Carbix. Vísir/Vilhelm Orkuveita Reykjavíkur og dótturfyrirtæki munu fjárfesta fyrir um 106 milljarða króna á næstu sex árum. Það er samkvæmt fjárhagsspá samstæðunnar sem samþykkt var af stjórn OR í dag. Á sama tímabili er gert ráð fyrir því að vaxtaberandi skuldir lækki um 36 milljarða króna. Fjárhagsspá þessi nær öll fyrirtækin í samstæðu OR og spannar 2022 til og með 2027. Innan samstæðunnar eru Veitur, Orka náttúrunnar, Gagnaveita Reykjavíkur og Carbix. Í tilkynningu frá OR segir Bjarni Bjarnason, forstjóri, fjárhag fyrirtækjanna í samstæðu OR traustan. Engar verulegar sveiflur í tekjum eða gjöldum fyrirséðar. „Eins og jafnan áður fer verulegur hluti teknanna í að viðhalda þeim miklu eignum sem fyrirtækjunum er trúað fyrir og sjá okkur fyrir grænni orku, fersku vatni og heilnæmara umhverfi,“ segir Bjarni. Einnig er haft eftir honum að talsverðar fjárfestingar í nýsköpun sem snúi flestar að loftslagsvánni séu fram undan. „Carbfix er þar sér á báti með sína mikilvægu aðferð til varanlegrar kolefnisbindingar en líka má nefna uppfærslu allra orkumæla Veitna, sem gefa viðskiptavinum tækifæri til að fylgjast betur með sinni notkun og spara. Orka náttúrunnar verður áfram leiðandi í hleðslulausnum fyrir rafbíla, Veitur munu með einhverjum hætti koma að þeirri byltingu sem er fram undan í almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu og Ljósleiðarinn sannaði heldur betur gildi sitt í faraldrinum þegar mikill fjöldi fólks hreinlega gat ekki ferðast til vinnu og vann heima hjá sér,“ segir Bjarni. Í tilkynningunni eru nokkrir punktar úr fjárhagsspánni dregnir fram: • Fjárfestingar samstæðunnar nema samtals 106 milljörðum króna 2022-2027, eða um 17,7 milljörðum króna á ári. • Nettó vaxtaberandi skuldir OR lækka um 36 milljarða króna frá árslokum 2021 til ársloka 2027 samkvæmt spánni. • Tekjuskattur OR til ríkissjóðs verður 18 milljarðar króna á tímabilinu. • Arðgreiðslur OR til eigenda – Reykjavíkurborgar, Akraneskaupstaðar og Borgarbyggðar – munu nema 33 milljörðum kr. á árunum 2022-2026. • Allsherjaruppfærsla á orkumælum hjá viðskiptavinum Veitna er hafin. Nýir snjallmælar skapa tækifæri til fjölbreyttari og betri þjónustu við viðskiptavini. • Verulegur hluti fjárfestinga Veitna er til viðhalds umfangsmiklum veitukerfum fyrirtækisins sem eru samanlagt hátt í 10.000 kílómetrar að lengd. • Fjárfestingar Orku náttúrunnar miða að því að tryggja áfram góða nýtingu virkjana með traustri gufuöflun og að uppfylla metnað ON í umhverfis- og loftslagsmálum. Jarðhitagarður ON við Hellisheiðarvirkjun í Ölfusi verður þróaður frekar. • Lagningu Ljósleiðarans til heimila í þéttbýli Reykjanesbæjar, Árborgar og Voga á Vatnsleysuströnd verður lokið á spátímabilinu og grunnkerfi Ljósleiðarans verður eflt vegna uppbyggingar 5G farsímakerfa fjarskiptafélaga. • Sprotafyrirtækið Carbfix mun halda áfram að byggja upp kolefnishreinsun og -förgun við virkjanir ON og víðar. • Móðurfélagið mun halda áfram uppbyggingu Elliðaárstöðvar, sögu- og tæknisýningar í Elliðaárdal, ásamt endurheimt náttúrugæða í dalnum að raforkuvinnslu þar lokinni. Orkumál Reykjavík Mest lesið Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Hækka stýrivexti aftur Viðskipti innlent „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ Viðskipti innlent Enn ríður Indó á vaðið Viðskipti innlent Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Viðskipti innlent Málmhlutur í maís Viðskipti innlent „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Viðskipti innlent Að læra af fimm mistökum Steve Jobs Atvinnulíf Fleiri fréttir Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu Sjá meira
Á sama tímabili er gert ráð fyrir því að vaxtaberandi skuldir lækki um 36 milljarða króna. Fjárhagsspá þessi nær öll fyrirtækin í samstæðu OR og spannar 2022 til og með 2027. Innan samstæðunnar eru Veitur, Orka náttúrunnar, Gagnaveita Reykjavíkur og Carbix. Í tilkynningu frá OR segir Bjarni Bjarnason, forstjóri, fjárhag fyrirtækjanna í samstæðu OR traustan. Engar verulegar sveiflur í tekjum eða gjöldum fyrirséðar. „Eins og jafnan áður fer verulegur hluti teknanna í að viðhalda þeim miklu eignum sem fyrirtækjunum er trúað fyrir og sjá okkur fyrir grænni orku, fersku vatni og heilnæmara umhverfi,“ segir Bjarni. Einnig er haft eftir honum að talsverðar fjárfestingar í nýsköpun sem snúi flestar að loftslagsvánni séu fram undan. „Carbfix er þar sér á báti með sína mikilvægu aðferð til varanlegrar kolefnisbindingar en líka má nefna uppfærslu allra orkumæla Veitna, sem gefa viðskiptavinum tækifæri til að fylgjast betur með sinni notkun og spara. Orka náttúrunnar verður áfram leiðandi í hleðslulausnum fyrir rafbíla, Veitur munu með einhverjum hætti koma að þeirri byltingu sem er fram undan í almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu og Ljósleiðarinn sannaði heldur betur gildi sitt í faraldrinum þegar mikill fjöldi fólks hreinlega gat ekki ferðast til vinnu og vann heima hjá sér,“ segir Bjarni. Í tilkynningunni eru nokkrir punktar úr fjárhagsspánni dregnir fram: • Fjárfestingar samstæðunnar nema samtals 106 milljörðum króna 2022-2027, eða um 17,7 milljörðum króna á ári. • Nettó vaxtaberandi skuldir OR lækka um 36 milljarða króna frá árslokum 2021 til ársloka 2027 samkvæmt spánni. • Tekjuskattur OR til ríkissjóðs verður 18 milljarðar króna á tímabilinu. • Arðgreiðslur OR til eigenda – Reykjavíkurborgar, Akraneskaupstaðar og Borgarbyggðar – munu nema 33 milljörðum kr. á árunum 2022-2026. • Allsherjaruppfærsla á orkumælum hjá viðskiptavinum Veitna er hafin. Nýir snjallmælar skapa tækifæri til fjölbreyttari og betri þjónustu við viðskiptavini. • Verulegur hluti fjárfestinga Veitna er til viðhalds umfangsmiklum veitukerfum fyrirtækisins sem eru samanlagt hátt í 10.000 kílómetrar að lengd. • Fjárfestingar Orku náttúrunnar miða að því að tryggja áfram góða nýtingu virkjana með traustri gufuöflun og að uppfylla metnað ON í umhverfis- og loftslagsmálum. Jarðhitagarður ON við Hellisheiðarvirkjun í Ölfusi verður þróaður frekar. • Lagningu Ljósleiðarans til heimila í þéttbýli Reykjanesbæjar, Árborgar og Voga á Vatnsleysuströnd verður lokið á spátímabilinu og grunnkerfi Ljósleiðarans verður eflt vegna uppbyggingar 5G farsímakerfa fjarskiptafélaga. • Sprotafyrirtækið Carbfix mun halda áfram að byggja upp kolefnishreinsun og -förgun við virkjanir ON og víðar. • Móðurfélagið mun halda áfram uppbyggingu Elliðaárstöðvar, sögu- og tæknisýningar í Elliðaárdal, ásamt endurheimt náttúrugæða í dalnum að raforkuvinnslu þar lokinni.
• Fjárfestingar samstæðunnar nema samtals 106 milljörðum króna 2022-2027, eða um 17,7 milljörðum króna á ári. • Nettó vaxtaberandi skuldir OR lækka um 36 milljarða króna frá árslokum 2021 til ársloka 2027 samkvæmt spánni. • Tekjuskattur OR til ríkissjóðs verður 18 milljarðar króna á tímabilinu. • Arðgreiðslur OR til eigenda – Reykjavíkurborgar, Akraneskaupstaðar og Borgarbyggðar – munu nema 33 milljörðum kr. á árunum 2022-2026. • Allsherjaruppfærsla á orkumælum hjá viðskiptavinum Veitna er hafin. Nýir snjallmælar skapa tækifæri til fjölbreyttari og betri þjónustu við viðskiptavini. • Verulegur hluti fjárfestinga Veitna er til viðhalds umfangsmiklum veitukerfum fyrirtækisins sem eru samanlagt hátt í 10.000 kílómetrar að lengd. • Fjárfestingar Orku náttúrunnar miða að því að tryggja áfram góða nýtingu virkjana með traustri gufuöflun og að uppfylla metnað ON í umhverfis- og loftslagsmálum. Jarðhitagarður ON við Hellisheiðarvirkjun í Ölfusi verður þróaður frekar. • Lagningu Ljósleiðarans til heimila í þéttbýli Reykjanesbæjar, Árborgar og Voga á Vatnsleysuströnd verður lokið á spátímabilinu og grunnkerfi Ljósleiðarans verður eflt vegna uppbyggingar 5G farsímakerfa fjarskiptafélaga. • Sprotafyrirtækið Carbfix mun halda áfram að byggja upp kolefnishreinsun og -förgun við virkjanir ON og víðar. • Móðurfélagið mun halda áfram uppbyggingu Elliðaárstöðvar, sögu- og tæknisýningar í Elliðaárdal, ásamt endurheimt náttúrugæða í dalnum að raforkuvinnslu þar lokinni.
Orkumál Reykjavík Mest lesið Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Hækka stýrivexti aftur Viðskipti innlent „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ Viðskipti innlent Enn ríður Indó á vaðið Viðskipti innlent Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Viðskipti innlent Málmhlutur í maís Viðskipti innlent „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Viðskipti innlent Að læra af fimm mistökum Steve Jobs Atvinnulíf Fleiri fréttir Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu Sjá meira