Hnífstunguárás í nótt sögð tengjast árásinni á Litla-Hrauni Árni Sæberg skrifar 24. nóvember 2023 09:21 Menn hafa verið handteknir vegna málsins. Vísir/Vilhelm Hnífstunguárás sem framin var í nótt tengist annarri árás á Litla-Hrauni í gær. Þetta herma heimildir Ríkisútvarpsins. Eggvopni var sömuleiðis beitt í árásinni á Litla-Hrauni og sú árás er sögð tengjast skotárásinni í Úlfarsárdal í byrjun mánaðar.
Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir í samtali við Ríkisútvarpið að hnífstunguárás hafi verið framin í nótt og segir að árásarþoli sé ekki í lífshættu. Þá er haft eftir honum að handtökur hafi átt sér stað í tengslum við árásina en að ekki liggi fyrir hvort tekist hafi að hafa hendur í hári árásarmannsins. Heimildir Rúv herma að árásin í nótt tengist árás á Litla-Hrauni í gær. Vísir greindi frá því í gær að einn liggi þungt haldinn á spítala eftir árás samfanga með einhvers konar eggvopni á fjórtánda tímanum í gær. Heimildir Vísis herma að sú árás tengist skotárás sem framin var að Silfratjörn í Úlfarsárdal í upphafi þessa mánaðar. Nútíminn greindi svo fyrst frá því að Ingólfur Kjartansson, rúmlega tvítugur fangi, sé grunaður um árásina í gær. Hann hlaut nýverið átta ára fangelsisdóm fyrir skotárás í Bergstaðastræti og hefur verið sagður náinn vinur mannsins sem skotinn var í fótinn í Silfratjörn. Ekki hefur náðst í Lögregluna á höfuðborgarsvæðinu við vinnslu fréttarinnar.
Lögreglumál Reykjavík Fangelsismál Mest lesið Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent Inga segir já Innlent „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Innlent Fleiri fréttir Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Þorgerður beygði af í Bítinu Segir Katrínu sparka í konuna sína Ungir vinstrimenn takast á um ESB: „Enginn að ráðast á fjallkonuna á nokkurn hátt“ Hnífjafnt á laugardag eða meiri munur en allir búast við? „Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ Uppsagnirnar hafi líka áhrif á þá sem eftir verða Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“ „Þetta er ekki alveg óvænt“ Einn makrílfarmur skilar yfir 400 milljóna króna verðmæti ESB geti hvorki tekið yfir orkuauðlindir né skipað Íslandi að leggja sæstreng Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Samræmdar reglur um símafrí settar Sjá meira