Erlent

Efla við­veru danska hersins á Græn­landi

Kristján Már Unnarsson skrifar
Vivian Motzfeldt, utanríkisráðherra Grænlands, og Troels Lund Poulsen, varnarmálaráðherra Danmerkur.
Vivian Motzfeldt, utanríkisráðherra Grænlands, og Troels Lund Poulsen, varnarmálaráðherra Danmerkur. Naalakkersuisut

Grænlenska landsstjórnin og danska ríkisstjórnin hafa kynnt ákvörðun um að viðvera danska hersins á Grænlandi verði efld á næstu mánuðum. Tilgangurinn er bæði að styrkja varnarmátt danska hersins á norðurslóðum og að treysta öryggis- og björgunarviðbúnað gagnvart íbúum Grænlands.

Í fréttatilkynningu landsstjórnar Grænlands kemur fram að meðal annars verði tvær stórar herþyrlur af gerðinni EH-101 staðsettar í Nuuk, freigáta verði send til að styrkja varnarviðbúnað á hafi og F-16 herþotur verði staðsettar í Kangerlussuaq til eftirlits á vesturströnd Grænlands.

Með fréttatilkynningu um aukna viðveru á Grænlandi birti danski herinn þessa mynd af freigátunni Niels Juel, sem kom við í Þórshöfn í Færeyjum á fimmtudag á leið sinni til Grænlands.Simon Elbeck/Forsvaret

Heræfingar verði auknar með vetrarþjálfun og æfingum sérsveita í tengslum við mikilvæga innviði. Þá mun grænlenskum ungmennum bjóðast grunnþjálfun í öryggis- og björgunarmálum.

Fram kemur að landsstjórn Grænlands hafi við undirbúning málsins átt í nánu samráði við varnarmálaráðherrann Troels Lund Poulsen og yfirmann danska hersins, Michael Wiggers Hyldgaard hershöfðingja.

Dönsk F-16 herþota á Keflavíkurflugvelli. Þær hafa sinnt loftrýmiseftirliti við Ísland en verða núna staðsettar á flugvellinum í Kangerlussuaq.Flyvevåbnet

„Staða öryggis- og varnarmála krefst þess að danski herinn æfi getu sína til að starfa á og í kringum Grænland. Það hefur verið forgangsverki landsstjórnar Grænlands að tryggja þátttöku heimamanna og að við sem íbúar styrkjum framlag okkar til öryggis lands okkar. Ég hlakka til að sjá nemendur í grunnnámi á norðurslóðum leggja sitt af mörkum til verkefnisins,” er haft eftir Vivian Motzfeldt, utanríkisráðherra landsstjórnar Grænlands í fréttatilkynningu.

Ein 2.800 metra löng flugbraut er í Kangerlussuaq.Stöð 2/Egill Aðalsteinsson.

„Frá því að ég varð varnarmálaráðherra hefur það verið forgangsverkefni mitt að efla öryggi á norðurslóðum og ég kann mjög að meta hið nána samstarf sem ég á við grænlensku ríkisstjórnina. Aukin viðvera danska hersins verður að vera gerð með hliðsjón af aðstæðum á hverjum stað og sérstökum áskorunum í öryggisstefnu á Grænlandi,“ er haft eftir varnarmálaráðherra Danmerkur, Troels Lund Poulsen.

„Stjórnvöld Grænlands og Danmerkur hafa ákveðið að efla hernaðarmátt á norðurslóðum. Kjarnaverkefni danska hersins er að framfylgja fullveldi og vernda allt konungsríkið. Við erum til staðar á landi, á sjó, á ísnum og í lofti á og við Grænland. Og við gerum það í nánu samstarfi við grænlensk stjórnvöld,“ er haft eftir hershöfðingjanum Michael W. Hyldgaard í fréttatilkynningu danska hersins.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×