Spánn áfram með fullt hús stiga Siggeir Ævarsson skrifar 11. júlí 2025 18:30 Spánverjar höfðu ástæðu til að brosa í kvöld Vísir/Getty Spánn vann torsóttan 3-1 sigur á Ítalíu í kvöld á Evrópumótinu í Sviss og vinnur því B-riðil með fullt hús stiga. Ítalir komust yfir á 10. mínútu en Spánverjar voru fljótir að jafna. Ítalir vörðust vel í leiknum en sóttu lítið enda hefði þurft einhver kraftaverkaúrslit í leik Portúgal og Belgíu til að ýta Ítölum niður í 3. sæti. Esther González innsiglaði 3-1 sigur Spánar með marki í uppbótartíma og er markahæst á mótinu með fjögur mörk. Spánn og Ítalía eru því bæði komin áfram í 8-liða úrslit. EM 2025 í Sviss