Fyrirliði Evrópu greinir frá því hvað Trump sagði við hann Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 27. september 2025 11:47 Donald Trump heilsaði upp á Luke Donald þegar hann mætti til að fylgjast með Ryder-bikarnum í gær. getty/Andrew Redington Luke Donald, fyrirliði Evrópu, hefur greint frá því hvað þeim Donald Trump Bandaríkjaforseta fór á milli á fyrsta degi Ryder-bikarsins í gær.
Trump mætti á Bethpage Black völlinn í New York í gær, rétt áður en síðdegiskeppnin hófst. Hann hvatti bandarísku kylfingana til dáða og ræddi svo aðeins við Donald. „Já, ég hitti forsetann, tók í höndina á honum og heilsaði honum,“ sagði Donald um samskipti þeirra Trumps. „Hann sagði: Þú ert að verða alvöru leiðtogi. Þetta var fallega sagt hjá honum og gott hjá honum sýna þessum viðburði stuðning.“ Bandaríska liðið var 3-1 undir eftir fjórmenninginn um morguninn. Bandaríkjamenn byrjuðu vel eftir komu Trumps og minnkuðu muninn í 3-2. Evrópa tók næstu tvö stigin en liðin skiptu síðasta stiginu á milli sín. Evrópumenn eru því með forystuna fyrir seinni tvo dagana, 5 1/2 gegn 2 1/2. Keppni í fjórmenningi hófst klukkan 11:00 í dag. Sýnt verður beint frá Ryder-bikarnum á Sýn Sport 4.
Golf Ryder-bikarinn Donald Trump Mest lesið Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs Handbolti Fékk nóg og strunsaði út úr viðtali Sport Orri hetjan er Sociedad tryggði sæti í undanúrslitum Fótbolti Skoraði nær helming marka ÍR í tapi gegn KA Handbolti Dagur tók upp gítarinn og söng í bronsgleði Króatanna Handbolti „Spiluðum virkilega vel í tuttugu mínútur“ Körfubolti Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Enski boltinn Eyjamenn skoruðu fjörutíu mörk gegn Selfyssingum Handbolti Fær að mæta KR í úrslitum þrátt fyrir hnefahöggið Körfubolti Kom í einkaflugvél á Ólympíuleikana Sport Fleiri fréttir LIV fær heimslistastig þótt mótaröðin uppfylli ekki skilyrði LIV-stjörnur þekkjast ekki boð PGA-manna Koepka snýr aftur og öðrum LIV-stjörnum býðst að fylgja honum Kylfingur tók áhættuna og upplifði versta golfdag lífsins McIlroy miður sín yfir ummælum áhorfenda um dóttur hans Efnilegur kylfingur meðal þeirra sem létust í brunanum í Sviss Sjá meira