„BRÁÐUM“ Agnar Már Másson skrifar 4. janúar 2026 14:37 Danskir stjórnmálamenn eru ekki sáttir með myndbirtingu Katie Millers. Eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti fyrirskipaði árás á Venesúela til að handsama forseta landsins og gera Bandaríkjum kleift að leggja undir sig auðlindir þess, hafa spurningar vaknað um framtíð Grænlands. Samsett Mynd/Getty/X „BRÁÐUM“ skrifar Katie Miller, fyrrverandi fjölmiðlafulltrúi úr ríkisstjórn Trumps, hástöfum í færslu á X í gær þar sem hún birtir kort af Grænlandi sem er málað með bandarískum fánalitum.
Eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti fyrirskipaði árás á Venesúela til að handsama forseta landsins og gera Bandaríkjunum kleift að leggja undir sig auðlindir þess, hafa spurningar vaknað um framtíð Grænlands. Trump hefur ítrekað sagt að Bandaríkin verði að leggja undir sig Grænland með vísan til þjóðaröryggis og auðlinda. Katie Miller er ekki aðeins fyrrverandi ráðgjafi forsetans heldur einnig eiginkona Stephens Millers, varastarfsmannastjóra Hvíta hússins og eins helsta ráðgjafa Trumps. Þessi færsla birtist rúmlega hálfum sólarhring eftir að Bandaríkin réðust á Venesúela í gær.Skjáskot Hún er þó ekki lengur hluti af sjálfri ríkisstjórninni með beinum hætti en heldur úti hlaðvarpi í dag. Hún var varasamskiptastjóri Heimavarnaráðuneytisins í fyrri ríkisstjórn Trumps og svo fjölmiðlafulltrúi Mike Pence, þáverandi varaforseta. Seinna vann hún fyrir niðurskurðarstofnunina DOGE þegar auðkýfingurinn Elon Musk stóð þar í stafni en hún elti Musk þegar hann hætti hjá stofnuninni í maí 2025. Miller birti færsluna klukkan 19.58 í gær, tæplega fjórtán klukkustundum eftir að Bandaríkin réðust á Venesúela í skjóli nætur í fyrrinótt, tóku þar harðstjórann Nicolás Maduro, forseta landsins, höndum ásamt eiginkonu hans og fluttu þau úr landi til New York þar sem þeirra beið ákæra fyrir fíkniefnahryðjuverk og kókaíninnflutning. Í máli Trumps á blaðamannafundi í gær kom fram að Bandaríkin færu nú með stjórn í Venesúela um óákveðinn tíma sem hann útskýrði ekki nánar. Olían myndi „flæða sem skyldi“ og bandarískar olíusamsteypur myndu reisa við olíuframleiðsluinnviði landsins. Bandaríkjaforsetinn hefur verið ómyrkur í máli um að Bandaríkin vilji leggja undir sig eyjuna, sem heyrir undir danska krúnu. Jeff Landry, sérstakur erindreki Trump-stjórnarinnar á Grænlandi, hefur sagst ætla að beita sér fyrir því að Bandaríkin eignist landið. Katie Miller, fyrrverandi ráðgjafi í fyrri ríkisstjórn Trumps, er eiginkona Stephens Miller. Hún var varasakspitastjóri Hvíta hússins, fjölmiðlafulltrúi Mikes Pence þegar hann var varaforseti Trumps og hun vann sem ráðgjafi og talsmaður hjá DOGE þar til í maí 2025, þegar hún hæti og fór að vinna fyrir Elon Musk.Getty Grænlendingar og Danir ekki sáttir Færsla Millers vakti strax sterk viðbrögð frá Dönum og Grænlendingum. Múte Bourup Egede, formaður grænlensku landsstjórnarinnar, svarar þessu með eigin mynd af Grænlandi, litað með grænlenskum fána. „Ég get ekki sætt mig við ítrekað virðingarleysi bandarískra stjórnvalda í okkar garð og ef þessi hegðun heldur áfram dregur það í efa möguleikann á samstarfi, af því að landið okkar er ekki eitthvað sem hægt er að taka,“ skrifar Egede. Sendiherra Danmerkur í Bandaríkjunum brást við færslunni með „vingjarnlegri áminningu“. Forsetinn hefur áður neitað að útiloka hernaðaríhlutun. „Við erum náin bandalagsríki og ættum að halda áfram að vinna saman sem slík. Öryggi Bandaríkjanna er einnig öryggi Grænlands og Danmerkur. Grænland er nú þegar hluti af NATO. Konungsríkið Danmörk og Bandaríkin vinna saman að því að tryggja öryggi á norðurslóðum,“ skrifaði Jesper Møller Sørensen, sendiherra Danmerkur, á X. Hann nefndi að Danmörk hefði aukið öryggisviðbúnað sinn á norðurslóðum, til dæmis hafi Danmörk skuldbundið sig árið 2025 við að verja tæplega 14 milljörðum Bandaríkjadala á norðurslóðum og Norður-Atlantshafi. Landry segist munu sinna sendifulltrúastarfinu í sjálfboðavinnu meðfram ríkisstjórastarfi sínu í Louisianna.Getty/Win McNamee „Þetta er vegna þess að við tökum sameiginlegt öryggi okkar alvarlega. Og já, við væntum þess að full virðing sé borin fyrir landhelgi konungsríkisins Danmerkur,“ bætir sendiherrann við. Krisetlig dagblad hefur eftir danska Venstre-þingmanninum Christian Friis Bach að það sé með öllu óviðunandi að Grænland sé málað í bandarísku fánalitunum en hann kveðst ekki hafa miklar áhyggjur af málinu þar sem hún er ekki lengur formlega starfandi í ríkisstjórn. „Það er aðeins til ein mynd af Grænlandi með fána, og það er með hinum grænlenska fána,“ segir Friis Bach. „Það er samt ljóst að það eru öfl í Maga-hreyfingunni [Make America Great Again] sem sjá aðgerðina í Venesúela og tengja það saman við sterkari pressu á Grænland.“ Karsten Hønge, talsmaður danska Sósíaldemókrataflokksins í utanríkismálum, segir við Ektra Bladet að færslan sé gróf og óþarflega ögrandi. Báðir þingmenn setja þó þann fyrirvara að Miller starfi ekki lengur beint fyrir Trump-stjórnina þó maður hennar geri það. Í samtali við Guardian segir Jennifer Kavanagh, framkvæmdastjóri Defense Priorities sem eru samtök sem fara fram á á hlédrægni í utanríkismálastefnu Bandaríkjanna, segist lengi hafa gert lítið úr ummælum Trumps um Grænland. „Nú er ég ekki alveg viss,“ segir hún. „Það væri ekki svo mikið mál fyrir Bandaríkin að koma fyrir hundrað eða nokkrum þúsundum hermanna inni í Grænland, og það er óljóst hvað hægt væri að gera í því.“ Frétt hefur verið uppfærð með viðbrögðum Múte B. Egede, formanns landstjórnar Grænlands.
Grænland Danmörk Bandaríkin Donald Trump Venesúela NATO Íhlutun Bandaríkjanna í Venesúela Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Sjá meira