Kylfingur tók áhættuna og upplifði versta golfdag lífsins Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. janúar 2026 07:00 Það fór illa fyrir þessum kylfingi og hætt við að hann hafi orðið ansi kaldur. @playsmartergolf Play Smarter Golf-samfélagsmiðilinn gefur kylfingum oft góð ráð og sýnir um leið myndbönd af kylfingum í sérstakri stöðu á golfhringnum sínum.
Kylfingar þurfa oft að taka stórar ákvarðanir um hvort þeir eigi að spila öruggt eða taka áhættuna. Þetta er spurning um hvort þeir eigi að taka vítið eða reyna högg úr krefjandi aðstæðum. Gott dæmi um það er einn seinheppinn kylfingur sem tók stóru áhættuna og upplifði versta golfdag lífsins. Það eru kannski ekki margir að spila golf úti í frostinu hér á Íslandi en í Bandaríkjunum láta menn það ekki stoppa sig enda sveiflurnar í hitastigi oft mun meiri þar. „Hér er kylfingur sem tekur regluna „leiktu boltanum þar sem hann liggur“ alvarlega, jafnvel þegar boltinn liggur á vafasömum ís. Eitt högg, afgerandi brak og samstundis ískalt steypibað. Það kemur í ljós að sumar aðstæður krefjast meira en bara góðrar stöðu,“ sagði í umfjöllun um myndbandið. „Við könnumst öll við röddina sem hvetur okkur til að reyna hið ómögulega högg, en þetta er merki um að vítadropp sé ekki alltaf tap. Stundum felst snjallari leikur í því að vita hvenær á að virða hættuna, jafnvel þótt hún sé frosin.“ Myndbandið má sjá hér fyrir neðan. Þessum kylfingi var örugglega rosalega kalt eftir þetta óvænta ísbað. View this post on Instagram A post shared by PlaySmarterGolf (@playsmartergolf)
Golf Mest lesið Náðu í börn látins liðsfélaga svo þau gætu verið með á gullmyndinni Sport Notuðu ranga mynd af nýlátinni íþróttastjörnu Sport „Ég er himinlifandi með úrslitin og baráttuandann“ Enski boltinn Ofbeldisfulli pabbinn fær að mæta á mót en synirnir verða ekki þar Sport Carrick er enn ósigraður og Sesko aftur hetjan Enski boltinn Sló met Íslands en hættir vegna veikinda dóttur sinnar Fótbolti Úrslitaleikur Reykjavíkurmóts karla á miðvikudagskvöld Íslenski boltinn „Allir sem halda að þeir geti falið sig á bak við lyklaborðið ættu að hugsa sig tvisvar um“ Enski boltinn Stjórinn sem sótti Viktor og seldi Orra rekinn úr starfi Fótbolti Í hefndarhug til Íslands eftir „fíaskóið“ á EM Handbolti Fleiri fréttir Rory McIlroy: „Fjögur risamót er alveg nóg“ LIV fær heimslistastig þótt mótaröðin uppfylli ekki skilyrði LIV-stjörnur þekkjast ekki boð PGA-manna Koepka snýr aftur og öðrum LIV-stjörnum býðst að fylgja honum Kylfingur tók áhættuna og upplifði versta golfdag lífsins McIlroy miður sín yfir ummælum áhorfenda um dóttur hans Efnilegur kylfingur meðal þeirra sem létust í brunanum í Sviss Sjá meira
„Allir sem halda að þeir geti falið sig á bak við lyklaborðið ættu að hugsa sig tvisvar um“ Enski boltinn
„Allir sem halda að þeir geti falið sig á bak við lyklaborðið ættu að hugsa sig tvisvar um“ Enski boltinn