„Þú getur ekki fengið bara annaðhvort lof eða last“ Kári Mímisson skrifar 8. febrúar 2026 18:14 Björgvin Páll Gústavsson átti góðan leik í marki Vals í dag. vísir/Anton Björgvin Páll Gústavsson átti fínan leik fyrir Val þegar liðið vann afar sannfærandi átta marka sigur á Aftureldingu í Olís-deild karla í handbolta í dag. „
Þetta var geggjuð frammistaða hjá okkur. Það komu tvö særð lið til leiks eftir fyrstu umferðina eftir áramót. Við svöruðum vel fyrir tapið gegn Haukum hér í dag en það er líka svekkjandi að þurfa einn leik til að ná áttum. Afturelding er með hörkulið og því mikilvægt að mæta loksins til leiks. Ég er mjög sáttur með hvernig viðhorfið var hjá okkur en þá sást alveg frá fyrstu mínútu hversu mikil gleði var hjá okkur sem mögulega vantaði eftir síðasta leik,“ sagði Björgvin Páll. Björgvin Páll var nýlega kominn heim af EM með landsliðinu. Hann segir það geta verið erfitt að mæta til baka strax eftir stórmótin sem hann segist hafa lokað í gær með stöðufærslu á Facebook. „Það þarf bara að ná að stilla hausinn. Þetta er ekki fyrir alla, enda er þetta líkamlega erfiðast en andlega er þetta rosalega skrýtið. Þú ert í nýju umhverfi, færð réttan mat í hendurnar í heilan mánuð og allur sá pakki. Svo þegar þú kemur til baka þá fer maður að vinna í öllu því sem gerðist á mótinu. Það er ástæðan fyrir að ég setti satus á Facebook í gær, ég vildi loka mótinu og fannst það vera gott að gera það svona. Nú er það skilið eftir og ég get þá einbeitt mér að næsta verkefni. Mér fannst hausinn ekki alveg vera rétt skrúfaður eftir síðasta leik og ég þurfti að gera eitthvað til að koma mér í gírinn,“ sagði Björgvin. En er ekki partur af gagnrýninni á þig að þú hefur bara verið einn vinsælasti íþróttamaður þjóðarinnar undanfarin 15 ár? „Þú getur ekki fengið bara annaðhvort lof eða last. Ég lærði það fyrst 18 ára gamall og er búinn að vinna með þessu í ansi mörg ár. Það nýja núna er það að börnin mín eru farin að sjá gagnrýnina sem er mögulega smá erfitt fyrir þau. Þetta er samt bara góður skóli fyrir alla og ég er þannig gerður að ég fæddist ekki með bestu spilin í höndunum. Ég þekki það hvernig það er að berjast í gegnum mótlætið og fæ orku út úr þessu bulli. Ég er orðinn það klikkaður í hausnum að ég tek skjáskot af þessu og nota sem orku. Á fyrsta stórmótinu mínu var Facebook varla komið. Maður er enn að læra inn á þetta og er enn með aðgang að öllum þessum samfélagsmiðlum. Ég elska þetta líka enda er þetta partur af þjáningunni og ferlinu að vera í þessu,“ sagði Björgvin.
Olís-deild karla Valur Afturelding Mest lesið „Ég er rasisti og ég gerði þetta viljandi“ Sport Infantino hættir við allt saman Fótbolti „Ég mun að minnsta kosti sofa vel í nótt“ Fótbolti Uppgjörið: ÍBV - Fram 1-2 | Framarar unnu Þjóðhátíðarleikinn Íslenski boltinn „Þetta er mikið áfall fyrir okkur“ Íslenski boltinn JP Morgan veldur fjaðrafoki í annað sinn Fótbolti Konurnar fyrsta fórnarlambið eftir útspil Infantino Fótbolti Ný heimildarmynd um banaslys Ólympíumeistarans Sport Sagði nei við Love Island og vann svo silfur á Samveldisleikunum Sport „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Enski boltinn Fleiri fréttir Strákarnir áfram með fullt hús Ungverjagrýlan hrjáir ekki U18 lið Íslands Yngsti Skipagötu-bróðirinn skoraði þrettán mörk í fyrsta leik á EM Fjórtán marka stórsigur í fyrsta leik Var sagt upp á stórafmælinu og er haldinn út í heim Besti handboltamaður heims fór í markið Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Sjá meira