Sport

Krist­rún dæmd úr leik en Svíar áttu sviðið

Sindri Sverrisson skrifar
Kristrún Guðnadóttir keppti í tveimur greinum á Vetrarólympíuleikunum í ár.
Kristrún Guðnadóttir keppti í tveimur greinum á Vetrarólympíuleikunum í ár. Getty/IOC

Skíðagöngukonan Kristrún Guðnadóttir keppti í seinni grein sinni á Vetrarólympíuleikunum á Ítalíu í dag, þegar hún keppti í 10 kílómetra göngu með frjálsri aðferð. Hún var hins vegar dæmd úr keppni.

Kristrún fór brautina á 28:29,2 mínútum, og varð 5 mínútum og 40 sekúndum á eftir Ólympíumeistaranum Fridu Karlsson.

Tími Kristrúnar virtist duga til 82. sætis, af 111 keppendum sem skráðir voru til keppni, en Kristrún hefur núna hins vegar verið dæmd úr keppni, samkvæmt úrslitavef alþjóða skíðasambandsins. 

Ekki liggur fyrir nákvæmlega hvað gerðist en ljóst að Kristrún fór á einhverjum tímapunkti út úr brautinni og fæst tími hennar því ekki gildur.

Svíar áttu hins vegar sviðið í dag og þá sérstaklega Frida Karlsson sem var í algjörum sérflokki og vann sín önnur gullverðlaun á leikunum. 

Hún kom í mark á 22:49,2 mínútum og var langt á undan löndu sinni, Ebbu Andersson, sem fékk silfur en hún var 46,6 sekúndum á eftir Karlsson. Hin bandaríska Jessie Diggins tók svo bronsverðlaunin en hún varð þremur sekúndum á eftir Andersson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×