KA/Þór klemmdi Selfoss við botninn Sindri Sverrisson skrifar 14. febrúar 2026 17:40 KA/Þór er á leið í úrslitakeppnina og vinnur nú að því að fá heimaleikjarétt í fyrstu umferðinni. KA Akureyri Selfoss er áfram á botni Olís-deildar kvenna í handbolta eftir tap í spennuleik gegn KA/Þór á Selfossi í dag. Sæti Akureyringa í úrslitakeppninni er þar með formlega tryggt.
KA/Þór vann að lokum 26-22 sigur í leiknum á Selfossi í dag, eftir að staðan hafði verið jöfn í hálfleik, 13-13. Sigurinn þýðir að KA/Þór er nú með 15 stig í 6. sætinu og getur alfarið einbeitt sér að því í síðustu fjórum umferðunum að þokast ofar áður en sex liða úrslitakeppnin hefst. Liðið er aðeins tveimur stigum á eftir Fram, þremur á eftir ÍR og fjórum á eftir Haukum. Selfoss er hins vegar neðst með fjögur stig, stigi á eftir Stjörnunni. Nú er endanlega ljóst að annað þessara liða fellur en hitt liðið fer í umspil við lið úr Grill 66-deildinni. Akureyringar byrjuðu seinni hálfleik af miklum krafti í dag og komust í 19-14. Heimakonum tókst aldrei að brúa þetta bil en minnkuðu muninn mest í þrjú mörk þegar skammt var eftir. Bernadett Leiner virðist hafa átt afar góðan leik í marki KA/Þórs, með 48,6% markvörslu samkvæmt HB Statz. Tinna Valgerður Gísladóttir var markahæst í liðinu með 6 mörk og þær Trude Hakonsen og Bergrós Ásta Guðmundsdóttir skoruðu 5 mörk hvor. Hjá Selfossi var Hulda Dís Þrastardóttir langmarkahæst með 8 mörk.
Olís-deild kvenna KA Þór Akureyri UMF Selfoss Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Sjáðu Elísabetu vinna titilinn með fjögurra sentímetra mun Sport Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Fótbolti Almar ekki í kassanum Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira